*Stafnsættin*


Gestabók

19.4.2012 kl. 11:29

GLEÐILEGT SUMAR OG SVO ER ÞAÐ ÆTTARMÓT !!!!!!!!!!!!!!!

Kæru ættingjar,óska ykkur öllum innilega gleðilegs sumars og þakka fyrir veturinn.
Og svo er að taka frá helgina 29.júní til 1.júlí því þá verður þetta líka dúndrandi fína ættarmót hjá okkur á Breiðumýri.Mætum heldur betur hress og kát sem allra flest!!!!!!!!!!!!!.
Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum,ég fékk mér nýjan mjaðmalið fyrir 5 vikum og er að verða alveg bara skratti góð.Börn og barnabörn öll hress og spræk og svo er von á langömmubarni í byrjun júlí svo þið sjáið að lífið leikur nú bara við mig.
Hafið það sem allra best elskurnar á komandi sumri og bestu kveðjur til ykkar allra héðan.
Ester

ester

27.12.2011 kl. 22:36

Ja allir eru frekar hljóðir á þessari síðu
En gleðileg jól öllsömul var á Dalvík á jólanóttina fór svo heim
í kotið mitt á jóladag hef afar fáa hitt
Kveð að sinni látið í ykkur heyra Gunna

Gunna móða

23.12.2011 kl. 10:31

GLEÐILEG JÓL !!!!!!!!!!!

Elskulegu ættingjar og fylgifiskar !!!!!!!!!!
Bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár til ykkar allra héðan úr Vesturberginu.
Höfum það alveg yndislegt um jólin,borðum á okkur gat og verum glöð eins okkur einum er lagið,!!!!!!!!!!!

Allra bestu jólakveðjur til ykkar allra

Ester og Sæmundur

ester

8.12.2011 kl. 17:34

Afmæliskveðjur

Kærar afmæliskveðjur til afmælisbarna síðustu mánaða :) Já ansi rólegt hér, allt gott að frétta, ég komin í fulla vinnu á leikskóla og í fullu námi líka svo það er ekki mikill frítími - lífið er bara ljúft að vanda. Eigið gleðilegan desember kæru ættingjar :)

Anna Júlía

21.11.2011 kl. 23:03

Heil og sæl öll það er ansi rólegt hérna á síðunni ekkert verið ritað síðan í júlí, af okkur er allt gott að frétta við orðin tvö í heimili tviburar fóru suður í ágúst önnur að vinna en hin í háskólanum þær leigja sér saman íbúð í Dvergabakka svo nú eru þær systur orðnar þrjár fyrir sunnan en tvær eru samt hérna fyrir norðan.Ég átti merkisafmæli í haust og við skelltum okkur nánast öll fjölskyldan til Flórída allir nema Árni hennar Huldu hann var að vinna svo hann var heima .þetta var alveg yndisleg ferð í alla staði vorum í Terra Verde í tvær vikur flest öll nokkrir fóru heim aðeins fyrr.Mamma er flutt á Hlíð elliheimilið hérna og er bara ánægð þar .Ég er svo farin að huga að jólum erum að fara í laufabrauð um næstu helgi svo fjölgar eitthvað hjá okkur yfir jól og áramót og hlakka svo til sumarsins og næsta ættarmóts .hó,hó,hó kveðjur til ykkar allra .Sissa

sissa

5.7.2011 kl. 12:16

Kærar þakkir fyrir skemmtilega helgi kæru ættingjar:) Þetta var svo gaman. Enduðum reyndar á FSA á sunnudagskvöldið, litla skinnið okkar komin með lungnabólgu svo við eyðum fyrstu sólardögunum innandyra... en það má þá bara nýta þá í innandyra verkefni sem eru jú líka nauðsynleg á sumrin;)

Maja

5.7.2011 kl. 9:38

Bestu þakkir fyrir samveruna um helgina skemmtilega fólk,þetta var alger snilld og ekki skemmdi veðrið og umhverfið.
Bestu kveðjur til ykkar allra og vonandi er nú sumarið komið til að vera hjá ykkur þarna fyrir norðan.

Ester

4.7.2011 kl. 17:37

Kæru ættingjar og vinir Bestu þakkir fyrir helgina hun var allveg frabær í alla staði Bestu kveðjur til ykkar allra
Gunna

gunna

1.7.2011 kl. 16:09

Hahahahahaha... góð Kristín;)
Veikindi ákváðu að ryðjast inn á heimilið okkar, algjölega óboðin í gær!!! Rakel Bára er búin að vera með hita, kvef og mikinn hósta en við mæðgur ákváðum að halda okkur heima við í dag til þess að athuga hvort við gætum ekki rekið þennan óboðna gest í burtu fyrir morgundaginn. Stefnum samt enn að því að mæta á morgun ef þetta tekst... hvort sem við gistum eða ekki;) Hlakka til að sjá ykkur;D

Maja

1.7.2011 kl. 10:25

Sælir kæru ættingjar

Það kom að því að hægt var að taka mark á Hafþóri, betra seint en aldrei. Nú er bara að leggja í hann. Lopapeysan, stuttbuxurnar og eitthvað smotterí á grillið og þá er allt klárt.
Hlakka til að hitta ykkur. Góða ferð og farið varlega.
Kveðja undan Böggvisstaðafjalli.

Kristín

30.6.2011 kl. 15:00

:)

Hæ hæ!.
Við famelían litla í Grundargarðinum ætluðum að mæta öll en Arnþóri var svo úthlutað slökkviliðsvakt um helgina og kemst því hvorki lönd né strönd um helgina :(. En við mæðgur mætum sprækar á laugardaginn allavega ;) Frá Kvíslarhóli koma foreldrar mínir og jafnvel einhverjir fleiri :) Hlakka til að sjá ykkur öll kæru ættingjar :)

Anna Júlía, Arnþór Haukur & Katrín Eva

29.6.2011 kl. 13:29


Við Árni og Elínborg mætum, jafnvel Pjakkur með.
Hlakka til að sjá ykkur!
Kv

Hulda Jóns

27.6.2011 kl. 13:47

Við fjölskyldan á Dalvík ætlum að mæta og hlökkum bara mikið til... hafði reyndar pínu áhyggjur af því að okkur yrði kalt í tjaldi en þar sem Hafþór er búin að redda þessu með veðrið hef ég ekki miklar áhyggjur lengur;)
Hvernig er það samt með gistingu innandyra... er ekki allt orðið fullt? Bara að velta þessu fyrir mér;)
Hlökkum til að sjá ykkur öll

Maja

26.6.2011 kl. 15:25

Gömlu slörin í Vesturberginu ætla svo sannarlega að mæta og einhver slurkur af þeirra fylgifiskum líka.
Hlökkum ekkert smá til að hitta ykkur öll,ég sé að Haffi er búinn að græja góða veðrið svo að það er klárt.Annars skiptir það nú ekki öllu máli,það er góða skapið og samveran með öllu þessu frábæra fólki sem er aðal atriðið.
Sjáumst hress og kát um helgina.

Ester og co.

Ester

26.6.2011 kl. 10:42

Litla fjölskyldan í Ljósalandinu mætir hress og kát á ættarhittingin og við hlökkum ekkert smá að hitta ykkur öll:)

Kolbrún

20.6.2011 kl. 22:31

Ættarhittingur Hrísum 2011!!!!!!!!!!

Jæja kæra frændfólk,er ekkki kominn tími til þess að fara og dusta rykið af útilegugræjunum og vita hvort þær virki nú ekkki örugglega,því nú stittist í hittingin.það væri nú gaman að heyra eitthvað frá ykkur, hverjir ætla að mæta.Við sem stöndum að þessari uppákomu erum búin að panta sumar(já ekki seinna vænna)þannig að það er klappað og klárt.Erum búin að fara og skoða aðstöðuna og er hún til fyrirmyndar.Endilega söfnum nú liði og mætum öll, það verður svo mikið skemmtilegra, því þá geta allir tínst í mannfjöldanum og þurfa ekkert að fela drykkjuna,bara grín hjá mér.
En verum nú hress og ekkert stress sjáumst.

Hafþór

17.4.2011 kl. 10:04

Alltof langt síðan!!!!

Skammast mín voðalega að hafa ekki skrifað eða farið hér inn í langan tíma. Héðan er allt við það sama, vorið er vonandi bara komið til að vera, yndislegt veður á Dalvíkinni í dag, sólskin og smá gola. Börnin dafna vel, Rakel Bára orðin rúmlega 2 og hálfs árs og Alexander Már 4 og hálfs. Húsmóðirin dundar sér helst við prjónaskap þegar hún er ekki í vinnunni og að sinna börnum og buru.
Ég byrjaði í nýrri vinnu 1. febrúar s.l. færði mig yfir í hinn leikskólann á Dalvík en þar eru börn á aldrinum 4-6 ára. Þetta er mjög gaman og góð tilbreyting. Ég kem til með að vera deildarstjóri, amk. næsta árið en er nú titluð aðstoðarleikskólastjóri þar til nýr stjóri kemur til starfa í ágúst... ekki alveg það sem ég ætlaði mér þegar ég sótti um vinnuna en mér ferst þetta bara ágætlega úr hendi... vonandi ;)
Annars erum við öll farin að hlakka til sumarsins, einhvernveginn allir komnir í þörf fyrir gott frí:) Vorum svo að ákveða á dögunum að fara öll saman, stórfjölskyldan, til Flórida í september í tilefni af 60 ára afmæli mömmu og er mikil spenna hjá fjölskyldumeðlimum fyrir því:)
Bestu kveðjur frá Dalvíkinni

Maja

6.2.2011 kl. 11:52

Ágætu ættingar hér er allt svona meinhægt nema að ég handleggsbrotnaði í lok síðasta árs en það fer nú vonandi að gróa á að fara í myndatöku á þriðjudag og kemur þá í ljós hvernig þetta hefst við vonandi losna ég þá við gifsið erfitt að vera svona handlama .Annars óska ég öllum afmælisbörnum janúarmánaðar til hamingju með dagana sína og þó sérstaklega henni nöfnu minni sem átti stórafmæli í byrjun janúar.Og nú fer að birta og kemur vor áður en við vitum af alltaf svo semmtilegur tími knús til ykkar allra Sissa og co

Sissa

3.2.2011 kl. 16:00

Afmæliskveðja

Óska afmælisbörnum undanfarinna vikna innilega til hamingju með dagana sína.

Kveðja Jófríður og co á Kvísló

Jófríður Hallsdóttir

7.1.2011 kl. 18:24

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu! Vonandi fóru jólin vel með ykkur öll og allir hressir og kátir þrátt fyrir vesenisveður.
kærar kveðjur frá Akureyri

Olla

4.1.2011 kl. 14:33

Nýárskveðjur..

Svo segi ég nú líka bara gleðilegt nýtt ár og þökk fyrir það liðna ;)

Anna Júlía og fjölsk.

4.1.2011 kl. 14:32

Afmæliskveðjur

Kæru ættingjar
Við óskum öllum afmælisbörnum undanfarið og framundan í Janúar innilega til hamingju með dagana sína :).
Vonum að allir hafi það gott, Árni og Hulda enn og aftur til hamingju með Elínborgu Unu ;)

Kveðja frá Húsavík - Anna Júlía, Arnþór Haukur og Katrín Eva

Anna Júlía og fjölskylda

28.12.2010 kl. 22:26

Gleðileg Jól!

Sælir ættingjar
Við vonum að þið hafið átt gleðileg jól og óskum ykkur öllum farsældar á nýju ári.
Við fluttum í húsið okkar 21. desember og gengur bísna vel að koma okkur fyrir. Það gengur vel með prinsessuna sem hefur verið nefnd Elínborg Una, en hefur ekki verið skírð enn.
Kveðja

Hulda, Árni og Elínborg Una

24.12.2010 kl. 16:35

guð gefi ykkur öllum elsku frændfólk og vinir
gleði og frið á jólum og blessun á níju ári
Hátíðarkveðja úr Lerkilundi

Gunna

15.12.2010 kl. 8:17

Hjartanlega til hamingju með litlu prinsessuna og nýja húsið elsku Hulda mín og Árni og megi gæfan fylgja ykkur i þessu nýja hlutverki.
Bestu kveðjur
Ester

Ester

14.12.2010 kl. 19:12

Sælir ættingjar
Óska öllum afmælisbörnum síðustu vikna til hamingju.
Í gær bættist við nýr Stöfnungur en dóttir okkar Árna kom í heiminn kl 18.34 þann 13. desember, 15 merkur og 51 cm. Okkur finnst hún að sjálfsögðu alveg dásamleg og erum alsæl. Við mæðgur erum sprækar og ætlum að fara heim í kvöld.
Svo flytjum við á næstu dögum í húsið sem við keyptum fyrir rúmum mánuði síðan en það þurfti aðeins að lagfæra áður en hægt væri að flytja inn. Þannig að um jólin verðum við í nýja húsinu með nýfædda dóttur okkar og er ekki hægt að segja annað en að við séum að springa úr hamingju.
Knús

Hulda Jóns

23.11.2010 kl. 15:17

Takk fyrir góðar kveðjur

Öllum hér heilsast vel þó mikið sé að gera á köflum.
Nú er viðtalið sem RÚV tók við mig vegna framboðsins komið á netið.
Þeir sem það vilja geta nálgast það á slóðinni http://www.ruv.is/stjornlagathing/frambjodendur?nr=9409
Bestu kveðjur

Nína Björg

17.11.2010 kl. 19:47

Langar til að vekja athygli Stöfnunga á heimasíðu Nínu Bjargar
sem býður sig fram til setu á Stjórnlagaþingi og yrði hún verðugur fulltrúi þeirra
ninasaem.is
og svo bloggið hennar hér hægra megin

sæmundur

14.11.2010 kl. 10:24

innilega til hamingju með fallegt nafn á drengnum
Stórt faðmlag til ykkar allra Gunna móða

gunna

13.11.2010 kl. 17:15

Jæja þá er búið að skira drenginn hennar Nínu og Asgeirs
Honum var haldið undir skírn af ömmu sinni Ester og hlaut nafnið Tómas Karl
kveðjur

Sæmundur og Ester

12.11.2010 kl. 22:22

Hamingjuóskir

Hamingjuóskir til allra afmælisbarna, og auðvitað inniegar hamingjuóskir til Mikaels Róberts og fjölskyldu :)

Kveðja frá Húsavík
Anna Júlía, Arnþór og Katrín Eva

Anna Júlía og fjölsk.

8.11.2010 kl. 15:42

Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt elsku Mikael Róbert. Kær kveðja til fjölskyldunnar þinnar.
kveðja,
Kolbrún, Mark og Katrín Inga

Kolbrún

7.11.2010 kl. 13:39

Elsku fjölskylda,innilega til hamingju með fallegt nafn á fallegum dreng.Megi gæfan fylgja honum og ykkur öllum um ókomna tíð.
Bestu kveðjur
Ester og Sæmundur

Ester

6.11.2010 kl. 19:44

Heil og sæl öll sömul
Í dag fékk næst yngsti Stöfnungurinn
nafnið Mikael Róbert Gunnarsson
þetta var hinn ljúfasti dagur
Knús á ykkur öll Gunna og fjölsk

gunna

6.10.2010 kl. 9:48

Nýr Stöfnungur fæddur!!!!!!!!!

Heil og sæl öll saman,bara að monta mig aðeins og láta vita að það fæddist nýr Stöfnungur í morgun,Nína og Ásgeir eignuðust yndislegan dreng kl.6.30 í morgun.Hann var 17 merkur og 54 cm. og allt gekk eins og í sögu og móður og barni heilsast alveg glimrandi vel.
Knús á alla
Ester

Ester

25.9.2010 kl. 9:20

Skammast mín alveg ofan í hrúgu........

....hef ekki kvittað hérna síðan í sumar.
Vil byrja á því að óska afmælisbörnum undanfarinna vikna innilega til hamingju með dagana sína.
Annars er allt alveg ljómandi gott að frétta af mér og mínum,sumarið búið að vera alveg ótrúlega gott hérna sunnan heiða og maður hefur bara verið í sandölum og ermalausum meira og minna.Nú hins vegar er hann kominn í týpíska haustgírinn hérna,rigning og rok,svo að þetta er all eins og það á að vera.Skelltum okkur aðeins til Tenerife í eina 10 daga um daginn og það var aldeilis alveg frábært.Nú er bara verið að bíða eftir að næsti fjölskyldumeðlimur mæti á svæðið sem ætti að verða alveg næstu daga,áætlaður mætinga tími er 1.okt.
Jæja elskurnar,farið nú vel með ykkur og ég læt sko svo sannarlega ekki líða svona langt á milli kvittana framvegis.
Kveðjur og knús á ykkur öll
Ester

Ester

23.9.2010 kl. 15:19

Afmæliskveðja

Vildi bara óska öllum afmælisbörnum undanfarið innilega til hamingju með dagana sina :)

Kveðja frá Húsavík

Anna Júlía, Arnþór Haukur og Katrín Eva

Anna Júlía og fjölskylda.

16.9.2010 kl. 9:02

Til hamingju með afmælið mamma mín

Í dag á Ester Guðlaugsdóttir mamma mín afmæli.
Til hamingju með afmælið elsku mamma og amma.
Nína Björg og Íris Ósk
(bumbumann skilur ekki ennþá hugtakið afmæli en sendir bestu kveðjur engu að síður)

Nína Björg

15.9.2010 kl. 23:39

Hvað er að gerast margir búnir að eiga afmæli síðan ég átti afmæli bara svona til umhugsunar annars allt í góðu hér á bæ búin að berjast og saftast smávegis enda farið verulega að kólna en búið að vera alveg yndislegur sumarauki undanfarið kveðjur Sissa

Sissa

15.9.2010 kl. 22:28


Hvernig er það, er enginn að uppfæra afmælisdaga hér á síðunni?
Kv

Hulda Jóns

11.9.2010 kl. 14:55

Sælir ættingjar

Það væri nú skemmtilegt ef fleiri kvittuðu fyrir komu sína á síðunni okkar, svo hún verði nú meira lifandi.
Annars stækkar bumban, eins og eðlilegt er, er að verða komin 26 vikur. Enn eru rúmir 3 mánuðir eftir.
Búin að skila greinargerðinni eftir verknámið og byrjuð í skólanum aftur, þó ég sé nú ekki alveg komin af stað þar.
Annars langaði mig bara að kvitta og óska afmælisbörnum síðastliðinna daga og vikna til hamingju.
Verið nú duglegri að kvitta
kveðja

Hulda Jóns

19.8.2010 kl. 22:00

Halló Ættingjar

Nú er verknáminu mínu í Kiðagili í Bárðardal alveg að ljúka, var að hefja síðustu vaktatörnina mína og á þá eftir að klára ritgerð sem ég skila 6. september. Eftir þetta útskrifast ég með diploma í ferðamálafræði. En þar með er nú ekki skólagöngu minni lokið, áreiðanlega langt frá því, þar sem ég ætla að nema þjóðfræði í fjarnámi frá HÍ í vetur. Er farin að hallast að því að ég verði eilífðarstúdent.
Annars eru spennandi tímar í vændum hjá okkur hjónum, þar sem frumburðurinn er væntanlegur 20. desember. Er gengin 22 og hálfa viku og allt hefur gengið vel. Við gátum ekki stillt okkur um að kíkja aðeins í pakkann og að öllum líkindum mun það verða stúlkubarn sem lítur dagsins ljós í desember.
Á Kiðagili verða markaðsdagar um helgina, bæði laugardag og sunnudag. Samhliða því verður kaffihlaðborð, báða dagana, það verður vonandi nóg að gera, hvet alla sem eru í nágrenninu að kíkja við.
Hamingjuóskir til allra afmælisbarna síðastliðinna vikna (já og mánaða).
Knús

Hulda Jóns

24.7.2010 kl. 11:25

Sæl verið þið öll;)
Við erum búin að vera í sumarfríi í tvær vikur og varla verið heima hjá okkur þann tíma. Byrjuðum á að fara til Reykjavíkur í nokkra daga. Komum svo norður og skiptum í töskunum og brunuðum í orlofshús á Illugastöðum þar sem við dvöldum í viku í dásamlegu veðir;) Í dag er stefnan tekin á Mærudaga á Húsavík þar sem við ætlum að eyða deginum... engin gisting að heiman samt núna. Svo styttist bara í Fiskidaginn mikla, 10 ára afmæli í ár svo maður verður að taka þátt í því;) Hvet alla til að mæta.
Vona svo bara að allir hafi það gott, hvort sem þeir eru í fríi eða ekki;D
Kveðjur frá Dalvíkinni... Maja og fjölskylda
p.s. þakka fyrir afmæliskveðjurnar:)

Maja

18.7.2010 kl. 0:15

Sælir ættingjar
og takk fyrir síðast. Bara aðeins að kvitta fyrir mig, er að vinna í Kiðagili í Bárðardal, var að klára 14 tíma vakt í dag og reikna með öðru eins á morgun þar sem sunnudagar eru alltaf langir dagar hér. Verð svo í dágóðu fríi eftir þessa törn. ´
Vinnan hér er sem sagt verknám í ferðamálafræði sem ég er að klára í haust. Svo ætla ég að halda áfram í skóla, í þetta skiptið er það þjóðfræði, held að ég verði bara eilífðarstúdent ;o)
Lofa að vera duglegri að kvitta
Knús

Hulda Jóns

17.7.2010 kl. 18:47

Sæl verið þið öll :)

Já takk fyrir síðast enn og aftur. Eitthvað er nú lítið um skrif í gestabókinni svo ég ætla að leggja mitt af mörkum. Á Húsavík er margt framundan en Mærudagar eru á næsta leyti. Við Katrín Eva ásamt pabbanum búum í græna hverfinu og skreytum hjá okkur í grænum lit, voða gaman að taka þátt í litagleðinni, hér verður ýmislegt um að vera og hér má sjá dagskrá mærudaga fyrir þá sem hafa áhuga á því:

http://www.nordurthing.is/skrar/.jpg/auglysing2010.jpg


Væri auðvitað mjög gaman að sjá ykkur þar :). Mjög skemmtileg bæjarhátíð að mínu mati, og bannað að klikka á MÆRUNNI hehe ;).

Hafið það gott og endilega segjið okkur frá ykkar daglega amstri hér á síðunni :)

Kv.

Anna Júlía og Katrín Eva

1.7.2010 kl. 12:19

Heil og sæl öll! ;)

Við mæðgur þökkum kærlega fyrir okkur á ættarhittingnum, þetta var bara alveg frábært ;) mjög svo gaman :). Alltaf skemmtilegt að hitta gott fólk, Arnþór kemst ekki upp með að sleppa þriðja ættarhittingnum í röð svo hann kemur á næsta ári hehe ;). Alltaf nóg að gera hjá karlinum :). En allt gott hér, er verið að leggja lokahönd á nýju íbúðina okkar á Húsavík og flutningar í sjónmáli, munum þó eyða sumrinu í það í rólegu heitiunum að færa okkur úr sveitinni í bæinn, liggur ekkert á :). Hafið það öll sem best! :)

Kveðja Anna Júliá, Katrín Eva og Arnþór Haukur ættarhittingsskrópari ;)

Anna Júlía og Katrín Eva

24.6.2010 kl. 22:56

Hér er allt búið að vera á fullu í dag, þvottavélin gengið eins og enginn sé morgundagurinn og vindurinn þurrkað helling af þvotti svo þetta er allt í áttina... tékklistinn ekki alveg jafn klár og hjá Hafþóri en verður það pottþétt upp úr hádeginu á morgun hehehe;D
Hlakka til að sjá ykkur;D

Maja

24.6.2010 kl. 21:17

Tjekklistinn.
Fellihýsið tjekk.
Kolin tjekk.
Nesti tjekk.
allt klárt tjekk.
OG KRISTÍN Í BÍKIN'I eeeeee neeeeiii.TÉKKK.
Góðaskapið tékk.
Sólin tjekk.
sjáumst tjekk.

Hafþór

24.6.2010 kl. 19:51

Hvernig er það, þarf ekki að taka lagið? Er einhver með söngtexta með sér?
;o)
Kv

Hulda Jóns

24.6.2010 kl. 9:59

Sagði ég ekki!!!!!!!!!!!

Veðursældin mest fyrir norðan
Ef ferðamenn vilja vera þar sem veðrið er best þá ættu þeir að sækja Norðurland heim um helgina, samkvæmt veðurspá Veðurvaktarinnar fyrir helgina. Hins vegar verður veðrið alls staðar þokkalegt um helgina þannig að enginn staður sker sig úr hvað varðar veðrið næstu daga. Meira

Kveðja Ester

Ester

24.6.2010 kl. 7:50

Hittingur,grill og gleði!!!!!!!!!!!

Sæl og blessuð öll,
Rosalega er ég farin að hlakka til að sjá ykkur öll.
Það verður stórt grill á staðnun en við þurfum að koma með kol og ef við viljum gera holusteik þá skilst mér að við megum grafa okkur holur.Þá er það bara sólarvörnin og sundfötin og svo að sjálf sögðu okkar marg rómaða góða partískap.
Sjáumst !!!!!!!!!
Ester

Ester

23.6.2010 kl. 22:40

Sælt veri fólkið
Við mætum, allt hyskið að ég tel : Ég, minn og Manda, Anni panni, Hanna og Ása pjása. Hreiðrum um okkur í fellihýsi tengdaforeldranna og hlökkum til að hitta allt fólkið. Olla og Inga voru mættar áðan í Lerkilundinn svo þetta er allt að gerast. Best að fara að finna bikiníið og sólarvörnina ; )
Bestu kveðjur, Kristín og co

Kristín

23.6.2010 kl. 21:44

Halló Ættingjar
Við hjónin mætum og hlökkum til að hitta alla ;o)

Kveðja

Hulda Jóns

23.6.2010 kl. 19:32

Far norður

Elsku frændfólk! Er einhver sem verður á leiðinni norður snemma á laugardag? Það verður húllumhæ í vinnunni á föstudagskvöld og mig langar afskaplega mikið að vera með í því, en ég verð nú líka að láta sjá mig á ættarhittingi :o)

síminn er 8674212 ef einhver fréttir af fari...

Halla Jóns

23.6.2010 kl. 9:32

Hvernig er með grill og svona? Er grill á staðnum eða þurfum við að koma með okkar eigin grill? Og ef það er grill, þurfum við þá ekki að hafa með okkur kol á grillið? Smá vangaveltur hérna megin;)
Annars magnast spennan bara, hlakka til að sjá ykkur öll:)
Kv, Maja

Maja

22.6.2010 kl. 19:18

Dásamlegt Hafþór!! Ætla að vona að mýsnar hafi allavegana haft músdóm í sér að borga leigu fyrir allan veturinn... það er nú lágmark finnst mér þar sem það hefur án efa farið vel um þær þarna.
Svo er bara að halda áfram að vera bjartsýnn og leggjast á bæn til veðurguðanna og biðja um gott veður... annars er nú allt gott veður í góðum félagskap:D
Sjáumst hress... við mætum öll 4!

Maja

21.6.2010 kl. 10:10

Smá ábending til ykkar kæra frænfólk...farið inná þessa slóð og þar sjáið þið helgarspána...eins og staðan er í dag, allt vaðandi í sól og sælu.
Kveðja úr gula húsinu.

http://www.yr.no
Evrópa, Ísland, Akureyrarkaupstaður

Þórustaðahróin

20.6.2010 kl. 22:56

Halló allir

Ég og mín ætlum að mæta,en ekki hvað,reynum að taka góða skapið með okkur en maður veit aldrei.vorum að sækja fellihýsið yfirum en aðkoman var ekki góð,semsagt búið að vera í útleigu í allan vetur,heilu músa familíurnar búnar að láta fara vel um sig. En er búinn að henda út og er klár í hittingin.sjáumst hress og kát um helgina.

Kv Hafþór og Anna

Hafþór

20.6.2010 kl. 11:10

Hér magnast spennan fyrir hittinginn um næstu helgi... er þegar farin að hugsa og skrá niður það sem þarf að hafa með:) Ákváðum að leigja okkur fellihýsi til öryggis ef veðrið yrði ekki nógu gott... sem verður auðvitað ekki... miðað við veðrið síðustu daga allavegana;D Vonum bara að það haldi áfram á sömu nótum;D Við semsagt seldum fellihýsið okkar um daginn þar sem þessi æðislega kreppa kom á besta tíma til okkar... þegar ég var nýbyrjuð í fæðingarorlofi svo það fór allt niður á við... okkur sárvantaði því smá aur til að friða greiðsluþjónustuna hehehehe;D
Leggjumst nú öll á bæn og biðjum veðurguðina (og Ingó kannski bara líka) um dásemdarveður næstu helgi:D
Kveðja Maja

Maja

18.6.2010 kl. 8:55

Hittingur nálgast óðfluga !!!!!!

Halló öll saman,
Þá er bara 1 vika í hitting og nú er bara bullandi spenningur í gangi hér og tími til að fara að græja sig.
Annars allt gott að frétta,veðrið búið að vera svona þokkalegt og var bara alveg ljómandi gott í gær á þjóðhátíðardaginn sem er nú ekkert alltaf hérna sunnan heiða,yfirleitt rigning.
Jæja góðir hálsar ekki meira að sinni,hittumst hress og kát eftir viku,bless á meðan
Ester

Ester

13.6.2010 kl. 20:41

Jamm og já

Sælir kæru ættingjar, ég gleymi voðalega oft að kíkja hér inn en til hamingju öll afmælisbörn og takk fyrir kveðjuna til mín í apríl. Ég er flutt til Reykjavíkur (var í Kópavoginum) í Hlíðarnar, það er afskaplega huggulegt þar. Auður, Jófríður og mamma aðstoðuðu mig alveg helling við að flytja og er ég þeim afar þakklát. Sonurinn skiptir þá líklega um skóla í haust, en ég held áfram að kenna á leikskólanum Furugrund. Ég seldi bílinn minn í byrjun mars og fer því allt með strætó. Það gengur glymrandi og mikið afskaplega er það líka gott fyrir peningaveskið að þurfa ekki að kaupa bensín, láta smyrja bílinn og tryggja hann. Annars er bara allt við það sama hjá mér og Jónatan. Hlakka til að hitta alla í júní :o)

Kv. Halla

Halla Jóns

11.6.2010 kl. 12:39

Talið niður í hitting

Heil og sæl,nú er ég sko heldur betur farin að telja niður í hittinginn,bara tvær vikur þangað til og þá verður góða veðrið sko pottþétt komið norður,mikið djö.........skulum við hafa það skemmtilegt!!!!!!!
Kveðja Ester

Ester

9.6.2010 kl. 12:15

SIDUSKRIF

Hallo. Eitthvad er netid ad strida mer herna heima og kvedjur komast ymist inn eda ekki eda jafnvel vitlausar .. bidst velvirdingar a tvi og vona ad thad komist i lag sem fyrst. Kvedja Anna Julia

ANNA JULIA

4.6.2010 kl. 9:25

AFMÆLI

Var næstum búin að gleyma,litla ömmudúllan mín hún ÍRIS ÓSK átti fyrsta afmælið sitt á miðvikudaginn 2.júní.bara orðin árs gömul skvísan,svakalega líður tíminn.
Kveðja
Ester

Ester

4.6.2010 kl. 8:46

Hittingur nálgast!!!!!!!!!!

Heil og sæl ,nú er ég heldur betur búin að vera löt að kvitta hérna,kominn mánuður síðan síðast.Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum,var í Mývatnssveit aðeins að reyna að aðstoða um daginn,Hulda er á hækjum eftir aðgerðina og gerir ekki stórar rósir í húsverkum á meðan en það er allt á réttu róli svo að hún verður orðin spræk á hitting.Nú er maður aldeilis farinn að hlakka til og ég tala nú ekki um þar sem hann bróðir minn er með góða veðrið klárt og alveg örugglega góða skapið líka,mamma sagðist vera búin að panta gott veður líka svona ca 20°C og sól svo að þetta getur ekki klikkað.Svakalega skulum við hafa það skemmtilegt.Hlakka rosalega til.
Bestu kveðjur til ykkar allra og mætum alveg eldhress og kát í Freyvang.

Ester

Ester

4.6.2010 kl. 8:22

KVEÐJA::::::::::

Kveðja úr Gula húsinu

Stefán

3.6.2010 kl. 21:53

Jæja bara kominn júní og líður að síðustu helgi í júní grillið verður væntanlega klárt kaffið og góða veðrið,annars höfum við Freyvang en ekkert rafmagn út hægt að tjalda eða leggja húsbílum eða vögnum.nú góða skapið er klárt,annars er engin formleg dagskrá utan þess að við grillum og borðum saman á laugardagskvöldið hver kemur með mat að sinni lyst.
Keðja úr Gula húsinu.

Stefán

30.5.2010 kl. 23:23

Sælir ættingjar

Ég er ekki nógu dugleg að kveikja á tölvunni og fylgjast með en til hamingju með afmælin Tómas og Katrín. Allir sennilega búnir að ná sér niður eftir júóvisjón og kosningar sem ég fylgdist ekki svo svakalega vel með frekar en öðru. Við Amanda erum frekar rólegar hér heima við týpísk hússtörf en hún reynir þessa dagana að stýra því sem ég geri með því að segja: ef þú gerir þetta ekki þá breyti ég þér í vonda stjúpu eða ef þú kaupir þetta ekki þá verð ég að lemja þig þá sagði ég reyndar að hún yrði þá bara að lemja mig en þá kom hjá henni : nei ég get það ekki því það má ekki. Hún er með þetta alllt á hreinu. Annars bíðum við eftir að Alli komi heim í vikunni en við hjónin ætlum með áhöfninni til Húsavíkur um næstu helgi. Mamma situr uppi með Brjáluðu Bínu sem er ekkert svo svakalega brjáluð þegar öldruð móðir hennar er ekki nálægt. Við hlökkum til að hitta alla hina vitleysingana í Freyvangi eftir ekki svo langan tíma og svo er það stóra spurningin hvort það verði landsmót hrossamanna og kvenna en ég ætla að láta mig hafa það að mæta á svæðið ef af verður. Þetta er það sem er framundan en fátt annað verður gert í sumar nema dunda eitthvað á landareigninni við Bárugötu. Vonandi eru allir við góða heilsu( þýðir ekki að segja hestaheilsu því þeir erui allir kvefaðir)
Bestu kveðjur undan Böggvisstaðafjalli

kristín

18.5.2010 kl. 17:31

Sælir ættingjar - vil benda á nýjan tengil hér til hægri - það er síða Bjarka Stefáns Helgasonar, sonar Helga Más (Hafþórssonar) og Ingu Margrétar, lykilorðið er engill.

Anna Júlía

2.5.2010 kl. 19:57

Þrusu leiksíning

Sælir ættingjar,rétt að kvitta,og segja ykkur að eg sá Glerlaufin í gær þetta er ein sterkasta leiksíning sem ég hef séð lengi hún skilur líka svo mikið eftir.FRÁBÆRT. Gamlingarnir hér í Mávanesinu eru aðeins að hressast Jón af axlarbrotinu og eg af kvefinu,allt kemur þetta með hækkandi sól. Það fóru að leka tveir ofnar hjá okkur hér í húsinu og vinnan við það er rétt að byrja þetta tekur allt tíma það þarf að skipta um teppi og parget á tveimur herbergum. Þvolinmæði þrautir vinnur allar. BestuKveðjur og knús Ása

Ása

2.5.2010 kl. 10:59

Sæl og blessuð kæru ættingjar,bara rétt að kvitta hérna.Allt gott að frétta hér hjá mér,lífið gengur sinn vana gang hjá okkur,Íris hefur verið hjá mér undanfarna daga meðan Nína hefur verið að vinna og okkur langmæðgum kemur bara alveg ljómandi vel saman.Jóel hefur verið að sýna leikrit sem heitir Glerlaufin í nýju leikhúsi úti á Seltjarnarnesi og við fórum á frumsýningu á laugardaginn fyrir viku og þó ég segi sjálf frá þá var þetta alveg þrusu gott hjá þeim og þau fengu heldur ekki neina slor dóma í blöðunum sem er alveg frábært.Annars er nú bara lítið að gerast hjá manni,bara svona matur og kaffi og mánaðarmót eins og þar stendur,kominn Maí og styttist óðfluga í hittinginn okkar,mikið rosalega skulum við hafa gaman,ég er löngu búin að panta alveg rjóma blíðu þá helgi.
Jæja elskurnar,hafið það nú gott og farið vel með ykkur.
Kveðja
Ester

Ester

23.4.2010 kl. 10:03

Halló

Kæru ættingjar, takk fyrir afmæliskveðjuna - líka á Facebook:)

Ég er búin að hafa það rosalega gott og búin að fara í vínbúðina og allt hehe. Hafið það gott.

Inga Rún Jónsdóttir

23.4.2010 kl. 8:49

Sælir ættingjar og gleðilegt sumar
Sumarið byrjaði ekki vel hjá okkur Amöndu en það þurfti að fella hestinn okkar Amöndu hann Þyril en hann fékk hrossasótt og var felldur í gærkveldi.Sem betur fer er þetta ekki svo flókið fyrir frökenina því nú er Þyrill hjá afa og englunum hennar mömmu. Amanda ákvað að vera í fríi frá leikskólanum í dag og er að horfa á Lion King en síðan er stefna tekin á bústað með mömmu, Hafþóri og Önnu svo það má segja að sumarið fari batnandi. Vonandi hafa allir það gott,kveðja frá Dalvíkinni.

Kristín

22.4.2010 kl. 22:20

Gleðilegt sumar kæru ættingjar!
Knús

Hulda Jóns

22.4.2010 kl. 11:16

GLEÐILEGT SUMAR!!!!!!!!!!

Gleðilegt sumar kæru ættingjar og takk fyrir veturinn.
Það er allt ljómandi gott að frétta héðan,sólin skín á okkur hér í Reykjavíkinni á þessum fyrsta degi sumars og þá léttist nú aldeilis á manni brúnin.Stebbi bróðir og Anna og Jófríður eru búin að vera hér,gistu í tvær nætur og það er alltaf jafn gaman að fá góða gesti,ég tala nú ekki um þegar þeir gista.Þau fara svo norður seinnipartin.Ég er búin að koma mér upp þessu fína gestaherbergi svo að það er alltaf pláss í Vesturberginu ef ykkur vantar gistingu.Framkvæmdir á baðinu nánast búnar,bara eftir svona fínpússning setja svona puntuhluti og svoleiðis.Jæja elskurnar,ég vona að sumarið fari mjúkum höndum um ykkur öll og við sjáumst kát og hress á hittingnum í Freyvangi í sumar,það er ekki nema tveir mánuðir þangað til,....ussss hvað það verður gaman hjá okkur.
Bestu sumarkveðjur til ykkar allra
Ester

Ester

21.4.2010 kl. 0:42

Sælir ættingjar
Hér á Dalvíkinni draumabláu snjóar ótrúlega. Það er bara eins og það séu að koma jól en ekki sumar. En nú er nóg komið þetta er orðið ágætt. Annars allt í gotti hér. Hlakka til sumarsins og hittingsins í Freyvangi. Rúlla vonandi þangað með fyrstu mönnum. Tökum stefnu á bústað með Önnu, Hafþóri, úlfari og mömmu um næstu helgi. Ferðaspilarinn,litabækurnar og púslin tekin með. Það verður bara gaman. vonandi eru allir við góða heilsu og með gleði í hjarta.
Kær kveðja,Kristín og Amanda

Kristín

19.4.2010 kl. 18:09

Sælir kæru ættingjar.
Alltof langt síðan ég hef komið hér við og kvittað. Héðan er allt gott að frétta, ekkert öskufall á Dalvík sem er fínt, loksins er maður ánægður með helv... norðanáttina og kuldann hehehehe;) Hélt reyndar um daginn að vorið væri að koma en það er sennilega aðeins í það ennþá, snjórinn fer þó minnkandi sem er einnig fínt. Börnin vaxa og dafna vel verð ég að segja, Alexander byrjar í nýjum leikskóla eftir rúman mánuð, leikskóla fyrir börn á aldrinum 4-6 ára (tvö síðustu leikskólaárin semsagt) og verð ég að segja að mér finnst það fremur ótrúlegt þar sem það eru jú ekki svo mörg ár síðan hann fæddist. Rakel Bára fer á eldri deild í sumar sem mér finnst eiginlega enn skrítnara því hún er jú litla barnið mitt;) En svona gangur lífsins;) Við erum farin að hlakka mikið til sumarsins, hittingsins í lok júní, bíðum spennt eftir að hitta ykkur öll þá. Og svo mæta allir á Fiskidaginn mikla 6.-8. ágúst er það ekki?;)
Kveðjur frá Dalvík

Maja

12.4.2010 kl. 10:05

Bilun....

Sælir ættingjar, vil bara láta ykkur vita að af einhverju ástæðum kemst ég ekki inn til að blogga afmælisblogg á síðuna, en þann 10.apríl átti hann Gunnar Viðarsson afmæli og varð 21.árs gamall og í dag 12.apríl á Anna María Stefánsdóttir afmæli og er 5.ára gömul í dag. Við óskum þessum afmælisbörnum að sjálfsögðu til hamingju með daginn og þau fá vitanlega kveðju á blogginu þegar ég kemst þangað inn, veit ekki hvort þetta er netið hjá mér eða bilun á 123 síðunni.

Vildi bara að þið vissuð af þessu, allt er gott héðan úr Reykjahverfinu, Lóan mætt á svæðið og allir í góðum gír.
Hafið það sem allra best öll með tölu.

Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía vefstjóri í afleysingum :)

7.4.2010 kl. 12:57

Heil og sæl,
Vonandi hafið þið öll átt yndislega páskahelgi,allavega átti ég aldeilis yndislega og skemmtilega daga,var með allt mitt fólk hjá mér sem gerist nú ekki alltof oft.Mývetningarnir mínir komu á skírdag og voru alla páskana,fóru heim í gær.Svo var þessi líka dandala fína fermingarveisla á annan í páskum,Katrín Inga var að fermast,og þar var nú aldeilis eitthvað að borða,ég get lofað ykkur því að það fór enginn svangur þaðan.
Nú fer framkvæmdun alveg að ljúka á baðinu hjá mér,verður vonandi búið um helgina.Það átti reyndar að vera búið fyrir páska en náðist ekki alveg að klára og framkvæmdir lágu niðri yfir helgidagana en nú verður haldið áfram í þessari viku og tekur sennilega ekki nema svona tvo daga það sem eftir er.
Jæja elskurnar,knús á alla
Kveðja Ester

Ester

5.4.2010 kl. 7:34

"Nýir siðir koma með nýjum herrum"
Knús

Hulda Jóns

4.4.2010 kl. 21:09

"Engu spillir hægðin" þetta er minn málsháttur, knús... Fía

Fía

4.4.2010 kl. 15:56

Endilega fleiri málshætti kv.Sissa

sissa

4.4.2010 kl. 11:50

Halló allir og gleðilega páska, hér er bara hið fallegasta veður núna en þó nokkur snjór allt svona í svipuðum gír hér frekar fátt þessa páska ,Halla og Jónatan komu ekki norður nuna en aðrir svona á svæðinu ætla að fá þau hin öll í mat í kvöld svo það verður líflegt her á meðan bara gaman og svo kemur mamma líka í mat hún er svipuð fótafúin og svona .Við fórum til Dalvíkur á föstudaginn langa annars verið í rólegheitum. Málshátturinn sem ég fékk .Er svona.Sá árla rís verður margs vís.Jæja svo vona ég að allir séu hressir og það verður gaman hjá okkur í sumar .Knús til allra Sissa

sissa

2.4.2010 kl. 22:30

Sælir ættingjar
Vona að þið eigið góðar stundir yfir páskana, nýt þess sjálf að hafa eiginmanninn heima í nokkra daga, borða ýmis konar kræsingar og hitta skemmtilegt fólk.
Gleðilega Páska
Knús á ykkur

P.S. Mæli með að allir setji málsháttinn úr páskaegginu sínu á síðuna :o)

Hulda Jóns

22.3.2010 kl. 11:33

Sæl aftur ! Þakk viðbrögðin,þau voru frábær enda ekki kastað til þess höndunum bara X tvisvar,ekki veit eg hvernin eg gerði þetta kv.Ása

Ása

22.3.2010 kl. 10:04

Sælir ættingjar
Vil byrja á að segja að ég hlakka mikið til hittingsins í sumar! Hins vegar hef ég ekki verið dugleg að kvitta og ætla að bæta úr því hér.
Það hefur verið nóg að gera hjá mér í skólanum, búin að fara tvisvar í Hóla þessa önnina, sem er nú reyndar meiri skemmtun en lærdómur, seinni lotan var þó þéttsetin í náminu. Árni er að vinna við vatnsklæðningar í Héðinsfjarðargöngunum, hefur verið þar síðan í janúar og vinnur mikið, á að vera í fríi aðra hverja helgi en það hefur nú verið allur gangur á því. Þar sem þetta er nú ekki langt frá, þá skreppur hann nú stundum heim eftir vinnu.
Annars er allt gott að frétta, hafið það gott.
Kveðja


Hulda Jóns

21.3.2010 kl. 23:46

Heil og sæl öll,rétt hjá Ásu,ég er búin að vera allt of löt að kvitta hér undanfarið.Íris litla er búin að vera í pössun alla síðustu viku því Nína er að fara í próf og ekki mjög þægilegt að læra fyrir einhver lögfræði próf með henni,Írisi altso,hún er doldið hress orðin og þarf alveg manneskjuna með sér.Framkvæmdir hér ganga alveg glimrandi vel,klárast sennilega í þessari viku,búið að flísaleggja gólfið og innréttingarnar komnar upp og utanum klósettkassann.Nú er bara eftir að flísaleggja veggina og setja upp sturtuklefann.Þetta er alveg æði,algerleg nýtt baðherbergi.Ása mín þú kemur sko að skoða þegar þetta er búið.Jæja elskurnar,vona að allir hafi það gott og endilega dugleg að kvitta.
Knús á línuna
Ester

Ester

21.3.2010 kl. 21:58

Fokið í flest

Heil og sæl öll.Tími komin á mig að kvitta.Því mér þykir fokið í flest skjól þegar ekkert heyrist frá Ester,sem
hefur verið ólöt að færa okkur fréttir.Af okkur er er bara allt gott að frétta búin að skella okkur í garðinn aðeis að klippa í góðaveðrinu og hreynsa svolítið til,en það er eins og dropi í hafið það skortir svo starfsfólk á Búgarðinn,bara tvö gamalmenni en bísna hress. Ester mín hvað er að frétta af framkvæmdum maður er að verða doldið spentur. Eg á von á syninum að norðan hann ætlar að hjálpa mömmusinni að mála eldhúsið ,það er að verða komin til árasinna núverandi málning.Olla systir var hjá mér í 4 vikur Gunna kom og var í 10 daga,og Inga var líka oft hjá okkur .Þetta var rosalega skemtilegur tími. Sjáumst hress í sumar.Bless Bless Ása

Ása

21.3.2010 kl. 21:57

Fokið í flest

Heil og sæl öll.Tími komin á mig að kvitta.Því mér þykir fokið í flest skjól þegar ekkert heyrist frá Ester,sem
hefur verið ólöt að færa okkur fréttir.Af okkur er er bara allt gott að frétta búin að skella okkur í garðinn aðeis að klippa í góðaveðrinu og hreynsa svolítið til,en það er eins og dropi í hafið það skortir svo starfsfólk á Búgarðinn,bara tvö gamalmenni en bísna hress. Ester mín hvað er að frétta af framkvæmdum maður er að verða doldið spentur. Eg á von á syninum að norðan hann ætlar að hjálpa mömmusinni að mála eldhúsið ,það er að verða komin til árasinna núverandi málning.Olla systir var hjá mér í 4 vikur Gunna kom og var í 10 daga,og Inga var líka oft hjá okkur .Þetta var rosalega skemtilegur tími. Sjáumst hress í sumar.Bless Bless Ása

Ása

11.3.2010 kl. 9:44

Heil og sæl öll.Tími til kominn að kvitta hérna aðeins sýnist mér.Það er nú bara allt þetta fína að frétta héðan,verið aldeilis að rútta til á baðinu hjá okkur og taka það í gegn alveg frá A til Ö og skifta um allt,ný tæki og flísar á gólf og veggi og nýjar innréttingar svo það þurfti að brjóta og skrapa og pússa og flota og ég veit ekki hvað og hvað.Íbúðin alveg á kafi í steinriki og skít en það gerir nú ekki svo mikið til því þetta verður alveg dandala flott þegar það verður búið.Það verður farið að flísaleggja í dag eða á morgun og þá fer að koma svolítil mynd á þetta,Sæmundur er að gera þetta eins mikið sjálfur og hægt er og búinn að vera alveg hreint feikna duglegur.Annars gengur nú allt svona bara sinn vana gang hér hjá mér,ég passa Írisi þegar mamma hennar er í skólanum og okkur kemur alveg ljómandi vel saman,hún er orðin ansi spræk,skríður um allt og stendur upp alstaðar og vill nú helst bara fara að labba á stað,er nú ekki alveg tilbúin til þess en heldur það sjálf svo amma er nú doldið stressuð stundum.Jæja elskurnar,þá er nú bara að bíða eftir sumrinu og hittingnum og láta sig hlakka til þess.
Kossar og knús á ykkur öll og verið nú dugleg að kvitta hérna.
Ester

Ester

24.2.2010 kl. 9:29

Hlakka til.......

Sæl öll,aðeins að kvitta.Nú getur maður aldeilis farið að hlakka til hittingsins í sumar,komin dagsetning og staðsetning.Þetta verður ótrúlega skemmtilegt að vanda,Stöfnungar klikka nú ekki á því.
Annars allt það besta að frétta héðan frá okkur,núna er verið að rútta til á baðinu hjá mér svo það er svona doldill kamarfílingur í gangi þessa dagana en verður æði þegar það verður búið.
Jæja elskurnar,nú er bara að taka frá helgina 26.og 27.júní og byrja að telja niður.Kossar og knús á ykkur öll.
Ester

Ester

23.2.2010 kl. 13:06

Ingibjörg Helga með heitt á könnunni

Freyvangur Eyjafjarðarsveit síðasta helgin í júní nánar siðar.

Stefán

19.2.2010 kl. 7:39

hæ hæ

Sæl öll!

Tek undir hugmynd Fíu! ;) Held það sé góð hugmynd, ég ætlaði einmitt persónulega að vera búin að setja inn myndir frá mér og minni fjölskyldu en já (hóst) sem sagt ekki búin að því ennþá, en kannski ég drýfi mig bara í því ;). Held það væri sniðugt að allir gætu bara sjálfir sett inn fréttir, myndir og svoleiðis af sér og sínum inn á síðuna ;) - kannski yrði þetta virkara þannig.
Annars allt gott af litlu fjölskyldunni að frétta.

Kveðja
Anna Júlía, Arnþór Haukur og Katrín Eva.

Anna Júlía

18.2.2010 kl. 15:11

Sæl og blessuð öll !
skammarlega langt síðan ég hef kvittað, hér er allt við það sama, við erum búin að fara á þrjú þorrablót og eina árshátíð svo það hefur verið nóg að gera í skemmtanabransanum hjá okkur , og alltaf borðað yfir sig
eins og venjulega, nú er daginn farið að lengja og þá
byrtir eittkvað svo yfir manni , í dag er veðrið yndislegt
kyrrt og fallegt,
bestu kveðjur til ykkar allra,
J.H.

Jófríður Halls.

16.2.2010 kl. 14:34

Handavinnuhornið

Halló allir, ég er með tillögu: er ekki bara sniðugt að sem flestir í ættinni hafi aðgang að stjórnkerfinu og geti þá sett inn myndir og annað..? Hvað segið þið um það?

Hér koma upplýsingar varðandi handavinnuhornið. Þú ferð inn í stjórnkerfið (aðgang að því þarft þú að vera búin að fá hjá Þresti) velur vefsíður-,skoða vefsíður-, þá kemur upp "Handavinnuhornið",ýtir svo á hring eða kassa sem hakað er í, svo á fjall(setja inn mynd). Þú bætir svo bara þínum myndum við og merkir þér þær. kv Fía

Fía

15.2.2010 kl. 20:54

Tek undir með Kristínu, hvernig setur maður inn myndir í handavinnuhornið?:)

Maja

15.2.2010 kl. 20:52

Heil og sæl öll sömul.
Ég hef verið alltof löt að fara hér inn *skamm skamm*. En af okkur er bara bærilegt að frétta, snjórinn kom aftur í nótt með miklum látum og er að bráðna með álíka miklum látum núna... fyrst hann þurfti endilega að koma gat hann þá bara komið og verið almennilegur, ekki svona ógeðslegt slabb sem maður veður og verður rennandi blautur í! Annars skellti ég mér með börnin í afmælisveislur á Ak í gær, fyrst hjá Halli Hólm og Önnu Maríu Stefáns-og Sonjubörnum og svo hjá lítilli frænku hans Adda. Ég var ekki alveg nógu snögg að leggja af stað heim og lenti í ömurlegu veðri, var einn og hálfan klukkutíma frá Akureyri til Dalvíkur (er vanalega ca hálftíma) og var með hjartað í brók mestallan tímann því ég var jú með dýrustu gersemarnar mínar í bílnum með mér. En við komumst heim nánast áfallalaust, eitt gubbuslys hjá syninum sem sennilega hefur bara orðið bílveikur á þessu lulli greyið því hann var hinn hressasti í gærkvöldi:)
Nú hefur húsfrúin reyndar náð sér í eitthvað ógeð því ég er að drepast úr beinverkjum og kulda:( Vona nú samt að ég nái þessu fljótlega úr mér, nenni ekki að vera veik á öskudaginn. Er þessa dagana að myndast við að sauma búninga á börnin, ég veit, ótrúlega myndó;)
En nú þola puttarnir ekki lengri tíma undan sænginni, er með beinverki í nöglunum!!!
Bestu kveðjur frá Dalvík
Maja og fjölskylda

Maja

15.2.2010 kl. 10:41

Sæl og blessuð öll saman.Bara aðeins að kvitta fyrir mig.Það er bara allt gott að frétta af mér og mínum,þetta er nú sá timi þegar það er nú svo sem ekki mikið í gangi,maður er bara mest heima og hefur það náðugt,fórum reyndar í bollukaffi til Nínu í gær og saltkjöt og baunir hjá mömmu í gærkvöldi svo að það var nú kannski borðað aðeins of mikið þann daginn en þetta er nú bara einu sinni á ári svo að það skaðar nú varla,er svo skrambi gott allt saman.Annars erum við hjónakornin að fara að taka baðið í gegn,ekki veitir af,bóndinn aðeins byrjaður á því,svo að það verður sennilega heil mikið rútt hér á næstunni,stefnum að því að það verði allt klárt og orðið fint fyrir páska.Ég vona að allir hafi það alveg ljómandi fint elskurnar og farið nú vel með ykkur.Bestu kveðjur og knús
Ester

Ester

14.2.2010 kl. 21:13

HANDAVINNUHORNIÐ

Tek undir með Dalvískri húsfreyju varðandi handavinnuhornið!!!!!
Kveðjur úr gula húsinu...þar sem Mikki refur læðist um:)

Þórustaðanornin:)

12.2.2010 kl. 14:55

Hafðu ekki áhiggur Kristín eg held að Amanda þekki hestana
Snorri

11.2.2010 kl. 1:09

Sælir ættingjar

Ég var búin að skrifa helling en svo gerði ég einhvern fjandann og allt hvarf.Stytt útgáfa: Þarf að fá upplýsingar hvernig ég set inn myndir á handavinnuhornið. Ég er alltaf eitthvað að brasa og ég hef trú á að það séu fleiri. endilega deilið með mer hvernig á að gera þetta og ég set inn myndir og hvet aðra til þess sama. KOMA SVO
Allir nokkuð góðir hér, pólskur dagur og foreldrakaffi á leikskólanum á morgun, neyðist sennilega til að greiða mér, gri það nú ekki á hverjum degi. Annars gerist fátt hjá mér og Möndu mús það er þá ekki slæmt á meðan. Alli búinn að vera á sjó síðan um áramót þannig að það verður allt í lagi að fá hann heim eftir rúma viku. Hef trú á að þau feðgin fari á hestbak. Er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að endurnýja kynni mín við hrossin svo ég geti farið með Amöndu þegar Alli er á sjó. Þarf þá að teipa eða spreyja þa´hesta sem ég læt hana nota því þeir eru allir rauðir bara mismikið. Kannski verð ég hestakona þegar ég verð stór. Hver veit. Þannig að okkur þarf ekki að leiðast hér.
Bestu kveðjur

Kristín

25.1.2010 kl. 23:50

Sælir allir ættingjar og vinir langt síðan ég hef skrifað hér jólin liðin eins og venjulega með miklu áti og skemmtilegheitum með fjölskyldunni og ættingjum allt gott af okkur að frétta mamma gamla svona svipuð en er samt nýbúin að fá heyrnartæki svo hún er allt í einu farin að heyra mikið betur en er ennþá að venjast þessu Olla hjá henni núna .búið að vera mjög gott veður undanfarið snjórinn óðum að fara Við búin að fara suður í afmæli Jónatans eins og venjulega alltaf gaman .Mæja og fjölsk. voru líka fyrir sunnan um leið svo það var þétt setið í Daltúninu en þröngt mega sáttir Keyrðum svo norður í þessu sumarveðri alveg yndislegt.Fórum svo á þorrablót Bárðdælinga um síðustu helgi í ´þessu fína veðri sem tókst með ágætum eins og venjulega alltaf jafngaman þar á blóti. en annars hafið það gott og svo bíð ég spennt eftir sumrinu .knús til allra Sissa

sissa

19.1.2010 kl. 12:37

Halló allir,best að kvitta fyrir sig,fer hérna inn á hverjum degi en nenni svo ekki að kvitta,það er nú eiginlega hámark letinnar.Sé reyndar að ég hef skrifað hér síðast og það er samt orðin vika síðan.Við meigum nú alls ekki láta þetta sofna útaf hjá okkur,það er svo rosalega gaman að þessari síðu,ég er nú t.d.búin að sitja í morgun og skoða myndir úr öllum hittingunum okkar og hef alltaf jafn gaman af því og hlakka þvílíkt til næsta hittings.Sá hittingur stendur nú reyndar upp á mig og minn legg held ég svo að það er nú mál til komið að fara að ákveða litinn á markísunni.Svo væri nú gaman að fá fleyri myndir í Handavinnuhornið,það er svo mikið af handavinnusnillingum í ættinni.Jæja elskurnar,best að hætta þessu bulli í bili,knús og kossar á ykkur öll.
Ester

Ester

12.1.2010 kl. 17:21

Sæ verið þið kæru ættingjar.Nú er maður aldeilis með slenið og letivírusinn á háu stígi,hefur ekki einu sinni kvittað hérna síðan um áramót.Það er allt þetta fína að frétta af okkur,komun bara vel undan jólum og áramótum.Það var heljarinnar fjör hjá okkur um hátíðarnar,fullt af gestum og veislur margar og góðar.Hún Íris litla Ósk var skírð tók nú bara virkan þátt í því og fílaði þetta alveg í botn enda alveg upprennandi partýgella,finnst alveg rosalega gaman þegar er svona mikið fjör og mikið af fólki í kringum hana.Svo er maður nú bara búinn að vera í leti gírnum undan farið,ekki svo sem margt í gangi.Svo getur maður núna farið hlakka til hittingsins,þarf bara að fara að ákveða litinn á markísunni,blár eða grænn,ja,maður spyr sig.Jæja elskurnar,látum nú þetta nýja ár verða alveg frábært og líði ykkur sem allra best og verum ennþá duglegri að skrifa hérna,það er svo gaman að fá aðeins fréttir að ykkur og fylgjast aðeins með.Kossar og heilmikið knús á ykkur öll.
Ester

Ester

7.1.2010 kl. 17:16

PS.

Ég hef hellings trú á Önnu Júlíu í vefstjórann svo er hægt að leysa af eitthvað, ég er bara svo lítið tölvuvædd gæti alveg verið án tölvu og gemsa svona oftast.

Kristín

7.1.2010 kl. 17:09

Kæru ættingjar

Gleðilegt nýtt ár og til hamningju með jólin. Nú er hægt að spá í næsta verkefni sem eru páskar og svo HITTINGUR. Er búið að kaupa markísuna?? eða er enn verið að spá í litinn?? Maður verður að hafa í huga að tíminn líður hratt. Vonandi hafa allir það gott, vel étnir og svoleiðis. Til hamingju allir sem eitthvað hafa afrekað og þið hinir sem teljið ykkur ekkert afreka til hamingju með það. Munið að sönn hamingja er falin í því að gefa.
Kær kveðja, Böggvisstaðahyskið

Kristín

3.1.2010 kl. 23:48

Elsku litla Íris Ósk
innilega til hamingju með skírnardaginn
Mikið stórt knús til ykkar frá Gunnu löngu systur

Gunna

3.1.2010 kl. 23:44

Elsku litla Íris Ósk
innilega til hamingju með skírnardaginn
Mikið stórt knús til ykkar frá Gunnu löngu systur

Gunna

2.1.2010 kl. 13:00

Elsku ættingjar
Mínar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir það liðna!
Vona að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar og borðað vel eins og sönnum stöfnungum sæmir! Það hef ég allavega gert! Hlakka svo til að fylgjast með ykkur á komandi ári, svo ekki sé minnst á að hitta ykkur í sumar, nú getur maður farið að telja niður í það!
kv. Olla

Olla

2.1.2010 kl. 12:19

Kæru ættingjar og vinir
Sendi ykkur öllum mínar allra bestu nýjársóskir vona svo að nýja árið verði okkur öllum bjart og gleðirikt
Þakka ykkur ynnilega fyrir alla ykkar elsku við mig á liðnu ári
Bestu kveðjur frá Gunnu móðu

Gunna

1.1.2010 kl. 15:05

Áramótakveðja

Kæru ættingjar nær og fjær.
Okkur skötujúunum í Keilusíðunni á Akureyri langar að senda öllum Stafns ættleggnum okkar bestu óskir um Gleðilegt Nýtt Ár og þökkum öll gömlu góðu liðnu árin.
Kær kveðja,
Þröstur og Svala.

p.s. Þar sem undirritaður hefur meira og minna séð um þessa síðu frá upphafi, reyndar með hjálp frá Önnu Júlíu, Kristínu Gunnars, Fíu og einhverjum fleiri, langar mig að auglýsa eftir einhverjum, einum eða fleiri, til að taka við sprotanum um stund t.d. 1 ár eða svo. Þar sem ég finn fyrir svona smá þreytu fyrir verkrfninu væri gott að skipta út þó ekki væri nema tímabundið.
Með bestu kveðju,
Þröstur

Þröstur Kolbeins

1.1.2010 kl. 11:07

Áramótakveðja

Kæru ættingjar
Óska ykkur öllum gleði og gæfu á nýju ári,megi það veita ökkur öllum farsæld og frið.Þakka allar skemmtilegar samverustundir á liðnum árum.
Við hér áttum alveg sérdeilis skemmtileg áramót í hópi stórfjölskyldunnar,við vorum held ég 15.Það var mikið borðað,mikið hlegið að áramótaskaupinu og horft á aðra skjóta upp flugeldum enda við hér í lúxus stúkusæti með útsýni yfir nánast allt höfuðborgar svæðið og nærsveitir.
Hafið það sem allra,allra best á nýja árinu elskurnar.Margir kossar og heilmikið knús á ykkur öll.
Bestu nýjárs kveðjur
Ester og Sæmundur

Ester

28.12.2009 kl. 14:45

Við...Þórustaðahróin og krakkinn í gula húsinu sendum heitar óskir um gleði og frið á komandi ári:)
Hér var sneisafullt hús um jólin..mikið borðað, spilað, mokað, og meira borðað og meira mokað en umfram allt gleðilegt:)
knús á alla,
Þórustaðahróin og krakkinn:)

Þórustaðahróin

28.12.2009 kl. 13:00

Sæl og blessuð elskurnar,bara aðeins að kvitta.Við erum búin að hafa það alveg glimrandi gott og skemmtilegt þessa jóladaga.Þröstur og Svala voru hjá okkur á aðfangadagskvöld og Nína og Ásgeir og lítla ljósið hún Íris Ósk líka svo að það var alveg yndislegt hjá okkur.Svo var farið í hangikjöt í Ljósalandið á jóladag,það var í boði mömmu,þetta er orðið svo margt og stórt fólk að gamla þarf bara að leigja sér hús úti í bæ fyrir boðið.Svo var aldeilis fínn hittingur í Arnarnesi á annan og þar mættu enn fleiri ættingjar svo að þið sjáið að það er búið að vera aldeilis fjör hér hjá okkur.Vonandi hafið þið öll átt yndislega jólahátið elskurnar og við hér sendum ykkur öllum bestu jólakveðjur.
Kossar og knús á alla

Ester

Ester

27.12.2009 kl. 19:20

Gleðileg jól allir saman

Gleðileg jól til ykkar allra héðan úr Vindakórnum. Ég vil jafnframt óska öllum afmælisbörnum til hamingju með afmælið en ég hef nú ekki verið mjög dugleg á netinu hvorki hér né annarsstaðar frá því Íris mætti gallvösk.
Við hvörum nú bara haft það virkilega notalegt þrátt fyrir snjóleysi hér á bæ.

Nína og kó

Nína Björg

25.12.2009 kl. 13:25

Gleðileg Jól

Kæru ættingjar
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hafið það ávallt sem allra best. Þökkum liðnar stundir og hlökkum til næsta ættarhittings :o)
Jólakveðja
Hulda Jóns og Árni Hólm (Já og Pjakkur biður örugglega að heilsa)
P.S. Verð vonandi duglegri við að skrifa á nýja árinu ;0)

Hulda Jóns

24.12.2009 kl. 16:28

Hátíðarkveðja

Við litla fjölskyldan á Reykjarhóli sendum ykkur öllum okkar bestu jóla og nýársóskir! ;). Hafið það öll sem allra allra best nú og ætíð. Af okkur er allt gott að frétta.

Kv. Reykjarhólsfjölskyldan, Anna Júlía, Arnþór Haukur og Katrín Eva

Jófríðar & Aðalsteinsdóttir

24.12.2009 kl. 13:47

Gleðileg jól öll og takk fyrir árið sem er að líða, vona að þið hafið það sem allra best, af mér og mínum er allt gott að frétta,
Jólakveðja
fjölskyldan Kvíslarhóli.

Jófríður Halls.

24.12.2009 kl. 8:27

JÓLAKVEÐJA

Kæru ættingjar.

Guð gefi ykkur gleðileg jól og farsæld og frið á nýju ári.Þökkum allar góðu og skemmtilegu samverustundirnar á liðnum árum.Vona að þið eigið öll ljúf og yndisleg jól elskurnar.
Bestu jólakveðjur til ykkar allra.

Ester og Sæmundur

Ester

23.12.2009 kl. 12:45

Jólakveðja

Sendi ykkur öllum hugheilar jóla og nýárskveðjur og takk fyrir að halda úti svona skemmtilegri síður sem við hin getum fylgst með.
Jólakveðja
Guðrún Sigurgerisdóttir

Guðrún Sigurgeirsdóttir

123.is/lundarbrekka

18.12.2009 kl. 11:00

Kæru ættingjar

Þá er það jólaundirbúningurinn.....gengur hægt hér á bæ en jólin koma samt. Gunnar og Ása eru mætt á svæðið sem er bara frábært og nú er bara að finna leið til að láta þau vinna verkin, kominn tími á það. Annars er skrítið að það sé enginn snjór, allt svo dimmt þrátt fyrir mikið af jólaljósum. Við mæðgur fórum snemma í morgun í svínasprautu og hún Amanda mín breytti ekki svip enda hörkustelpa. Vonandi hefur þetta engin eftirköst. Alli kemur vonandi heim í nótt, það er hvort eð er ekkert fiskerí. Ég fékk góðar kveðjur á afmælinu mínu á þessari síðu og einnig vel á fimmtatuginn skrifuðu á vegginn minn á Face-book. Bara fyndið en samt pínu gaman. Þetta árið yngdist ég um eitt á því ég hélt að ég yrði 44 en varð svo bara 43 þannig að ég er mjög sátt. Annars ekkert að frétta nema bara fínt, jáááá já. Þannig er nú það.
Bestu kveðjur til ykkar í jólastressinu, Böggvisstaðahyskið.
PS.
(ég gleymdi stressinu þetta árið, kortin eru ekki farin, ekki búið að skrifa þau, ekki búin að baka o.s.fr.en þetta kemur)

Kristín

15.12.2009 kl. 19:24

Vildum bara benda ykkur á heimasíðuna hans Arons Emils ef þið viljið fylgjast með honum og skoða myndir :)

Pabbi (Þröstur) gæti kannski líka sett inn tengil hér til hliðar en slóðin er annars www.nino.is/kolbeins . Lykilorðið er: safír. Mamman er dugleg að setja inn myndir og svoleiðis þannig að endilega bara kíkja á síðuna.

Pétur Ingi, Eydís og Aron Emil

www.nino.is/kolbeins

13.12.2009 kl. 22:13

Halló
Það kom Bjarki Stefán Helgason í gær Kveðja Gunna

Gunna

13.12.2009 kl. 9:11

Sæl og blessuðöll saman,aðeins að kvitta hérna.Það er nú ósköp lítið að frétta hérna,bara svona týpiskt jólastúss í gangi,búin að baka fjórar smákökusortir og er að hugsa um að baka kannski fjórar í viðbót,bara komin í gamla gírinn sú gamla þegar hún hefur nógan tíma og vinnan ekki alltaf að slíta í sundur fyrir manni daginn.Svo gerðum við laufabrauð í gær svo þið sjáið að þetta er allt að verða komið bara.Við vorum með heljarinnar jólahlaðborð hérna heima fyrir vinnuna hans Sæmundar um síðustu helgi og það tókst bara alveg ljómandi vel.Svo er nú bara dúllað sér við að tína upp jólaskraut og svona,ég sem sagt komin í alveg bullandi jólagír.Jæja elskurnar,farið nú vel með ykkur og njótið aðventunnar,hún er svo yndislegur tími.Kossar og knús á alla.

kveðja Ester

Ester

8.12.2009 kl. 10:34

Sælir ættingjar
Púff, verð ofsaleg ánægð þegar þessi vika verður búin, eitt próf á morgun og það síðasta á föstudaginn. Búið að vera alveg nóg að gera í skólanum og ég er sko ekki sérfræðingur í tímastjórnun. Meðfram próflestri og verkefnavinnu hef ég verið að undirbúa jólin, væri nefnilega gott að vera búin með flest um helgina, þar sem ég verð að vinna frá 12. des fram að jólum. Á síðasta ári endaði allt í tómu stressi og ætla ég að gera mitt besta til að það verði ekki svo þetta árið. Það er allavega búið að taka jólaþrif nr 1 ;o) og búin að gera pínu jólalegt. En best að fara að koma sér að verki, allt of mikið efni fyrir alltof stutt próf á morgun.

Knús
Hulda Jóns

Hulda Jóns

7.12.2009 kl. 18:41

Kæri jóli!

Jæja best að drattast til að skrifa eitthvað hér...ekki það að Facebook sé að tefja mig...hef hálfpartin orðið fyrir aðkasti fyrir að vera ekki á henni. Jæja nóg um það-þá er það laufabrauðið okkar árlega sem fór fram 5. des. með svipuðpum hætti og síðast nema að við (gömlu sem eru nú orðin ein í kotinu fyrir utan ellismellina sem búa hér í húsinu líka)fórum fram í Glaumbæ á föstudagskvöldinu og þjófstörtuðum þar, og þar var boðið upp á léttar veitingar. Jæja laugardagsmorgun og alvaran tekur við allir mæta fram í Stafn og það er skorið og steikt á fullu, síðan er haldið heim með fullan bíl af allskyns góssi en engar hænur núna(bara ein brjáluð kerling en við losuðum okkur við hana út í dal) æi...datt aðeins í ruglgírinn. Þetta var semsagt um síðustu helgi en um helgina þar áður skruppum við til Reykjavíkur... ja bara svona til að sjá syni okkar höfum ekki séð þá síðan í ágúst það var nú bara ljúft. Já og laugardaginn 21. nov. fórum við með mömmu að sjá jólasveinana í Dimmuborgum það var nú bara reglulega gaman og eitthvað svo jólalegt. Segjum þetta gott.
Bestu kveðjur til ykkar frá okkur hér á Húsavík

Fía

7.12.2009 kl. 12:21

Sælir ættingjar

Eitthvað er orðið fátæklegt um skrif á síðunni. Ætli sé um að kenna andlitsbókinni? Endilega sendið frá ykkur fréttir það er svo gaman að fylgjast með þó það gerist mis mikið hjá okkur. Ég bý áfram í dal dauðans og og hér héfur allt veriðað lifna við. Mikið af jólaljósum og fíneríi. Síðasta helgi var mjög óvenjuleg en ég var á markaði í Bergi á laugardaginn (að reyna)að selja sitt lítið af fíneríi sem ég hef verið að gera. Það var bara gaman og bónus að selja eitthvað smotterí Um kvöldið smellti ég mér í fimmtugsafmæli hjá vinkonu. is og var þar svaka stuð hjá 25 útvöldum konum. Dagskráin tæmdist ekki fyrr en kl. 02 og var þá komið mjög langt fram yfir minn háttatíma svo ég hélt heim en hinar voru víst að til 1/2 sex. Orkan hlýtur að koma um og eftir fimmtugt. Á sunnudeginum buðu börnin mín mér á tónleika Frostrósanna og tók ég með mér fyrrverandi tengdamóðir mína. Svakalega gaman að hlusta á fallegan söng og fannst mér Hera bera af. Annars fór ég um daginn á aðra tónleika sem mér fannst ekki síðri en það var karlakór Dalvíkur og Matti Matt sem sungu Bítlana fyrir hlé og Queen eftir hlé. Hreint alveg ótrúlega magnaðir tónleikar. Svo þarf ég varla að taka fram að mamma passaði Amöndu á meðan ég var á flandri, ég fékk líka að sofa frameftir, bara dekur. Núna er ég að reyna að koma mér í jólastuð og reyna að klára að setja upp seríur sem mér finnst afspyrnu leiðinlegt en ljósin eru svo falleg svo ég verð. Ég verð aftur á markaði í Bergi laugardaginn 12. des. en það má segja að þetta sé liður í því að fara út á meðal fólks. Ég get lofað ykkur því að helgarnar hjá mér eru að öllu jöfnu ekki svona. En ég er glöð að hafa farið þetta allt. jæja fólk : koma svo!!!
Þá eru það seríurnar...................
Bestu kveðjur, Kristín

Kristín

29.11.2009 kl. 10:26

Heil og sæl elskurnar.
Þá er nú aldeilis orðið jólalegt hér í henni Reykjavík,snjór yfir öllu og jólaljósin spretta upp um allan bæ.Annars skruppum við hjónakornin til Berlínar á mánudaginn og vorum í fjóra daga,komum heim á föstudagskvöldið og það var alveg yndislegt,allt orðið svo rosalega jólalegt þar,jólamarkaðir á öðru hverju horni með allskyns jóladóti og jólagúmmulaði svo ekki sé nú talað um rjúkandi heitt jólaglöggið þeirra sem er algert sælgæti.Þetta var alveg snilldarinnar góð ferð,við bara slöppuðum af og rölltum um í þessari fínu jóla stemmingu og borðuð góðan mat sem er ekki mjög erfitt því allur matur sem ég hef fengið í Berlín er mjög góður hvort sem það eru bara pylsur úr pylsuvagni eða stórsteik á veitingahúsi.En nú er ekki til setunnar boðið bara að drýfa sig í jólaundirbúning enda komst maður aldeilis í jólagírinn þarna hjá þýskaranum.Annars er allt þetta fína að frétta af mínu fólki,þær mæðgur Nína og Íris eru í orlofsferð á norðurlandinu,eru búnar að vera í Mývatnssveit í nokkra daga hjá Huldu og ætla að stoppa aðeins á Akureyri,koma held ég heim á miðvikudag og þá verður nú ömmu orðið aldeilis mál að sjá dúlluna sína.Jóel og vinur hans er á fullu með lítið jólaleikrit sem þeir bjuggu til og fara með í leikskóla og það hefur gengið bara alveg ljómandi,þeir voru á Akureyri og Húsavík núna í síðustu viku og fengu alveg glimrandi viðtökur skilst mér.Jæja kæru ættingjar,njótið nú aðventunnar elskurnar það er svo yndislegur tími og bestu kveðjur og knús til ykkar allra.
Ester

Ester

27.11.2009 kl. 3:42

Afmælisbörn!

Langar að óska afmælisbörnum undanfarið til hamingju :)

Kveðja frá Reykjarhólsfjölskyldunni.

Anna Júlía

14.11.2009 kl. 20:36

Kæru ættingjar

Mikið hefur gerst á stuttum tíma og einhvern veginn hefur ekki verið nægur tími til að sinna öllu því sem maður vildi. Fyrst vil ég þakka öllum okkar yndislegu ættingjum sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát pabba. Mikið sem það gladdi aum hjörtu að hitta ykkur svona mörg við útför hans. Þið eruð alveg ótrúleg, takk kærlega.
Annað er að undanfarið hafa merkir fjölskyldumeðlimir átt afmæli og eru sérstakar kveðjur frá Amöndu til Jóns Hannessonar en hann gaf henni smartís fyrir ári síðan og það gleymist ekki. Einnig er sérstök kveðja til Sæmundar frá henni en þegar hún sá myndina af honum sagði hún að "þetta væði Þæmundur en hann væði aðtaf að geða sona (og llék eins og hún væri að rífa opna skyrtuna sína) og eð þvo alveg beð. Hann eð baða ðuddlaðuð (hennar orð). En öll hin afmælisbörnin fá líka bestu kveðjur frá okkur hér á hjara veraldar.

Kristín

11.11.2009 kl. 11:13

Sælir ættingjar! :)

Héðan úr Reykjahverfinu er allt glimmrandi gott að frétta. Allir sælir, glaðir og hamingjusamir. Prinsessan á heimilinu stækkar vel og dafnar og ætlar að sverja sig í ættina (engin písl) og hún er bara ánægð með lífið og brosir allan daginn nánast. Ég er náttúrulega bara í orlofi sem er alveg hreint dásamlegt en klára það um áramótin og ætla bara að lifa á loftinu þar til næsta haust og halda þá áfram í skólanum! :). Sem sagt allt ljómandi hér og vona að allt sé gott hjá ykkur líka :).

Kveðja
Reykjarhólsmæðgurnar

Anna Júlía

9.11.2009 kl. 10:03

Heil og sæl elskurnar.
Orðið ansi langt síðan maður hefur kvittað hérna og ég alveg dauð skammast mín fyrir það.Annars er bara allt ljómandi gott að frétta af mér og mínum,engin stórtíðindi allt gengur sinn vana gang.Íris í pössun tvo daga í viku meðan mamma hennar er í skólanum,en því fer nú að ljúka í bili,önnin að verða búin,tíminn alveg æðir áfram.Maður þarf bara fljótlega að fara að huga að jólastússi.Mívó famelían var í heimsókn um helgina svo að ég fékk að hafa allan hópinn minn saman kominn og við gerðum okkur aldeilis glaðan dag,var með alla í mat á laugardagskvöldið og skemmtum okkur konunglega eins og okkur er lagið.
Hafið það nú gott og knús á ykkur öll.
kveðja Ester

Ester

6.11.2009 kl. 14:05

Halló segi eins og Jófríður alltaf viss stemming á laufabrauðsdaginn annars er ég að skreppa í orlof í Kópavog til Höllu og Lindu en þær búa báðar þar eins og erannars allt gott er ekkert farin að gera hreint en það tekur ekki langan tíma og svo sleppir maður því bara ef maður nennir því ekki tek bara vel til og að sjálfsögðu baka alltaf eitthvað .Annars er tíminn svo fljótur að líða að það verða örugglega komin jól áður en maður veit af allt gott af mínu fólki knús til ykkar allra .bestu kveðjur Sissa

Sissa

6.11.2009 kl. 8:22

Sælir kæru ættingar!
Datt í hug að pára hér smá þar sem það hefur verið mjög rólegt hér, annars er lítið að frétta hjá mér allir frískir og lífið gengur sinn vanagang, nú stittist í jólin og ég byrjuð að grípa í að þrífa svolítið, og svo er stemt á laufabrauðið 21 nóv og verður það örugglega skemmtilegt að vanda.
Kveðja.

Jófríður Halls.

21.10.2009 kl. 19:13

:)

Elsku Gunna, til hamingju með langömmutitilinn!

Kveðja
Anna Júlía og fjölskylda.

Anna Júlía

20.10.2009 kl. 18:48

Við viljum óska nýjustu langömmunni í fjölskyldunni til hamingju með þennan flotta titil... ber hann með sóma og prýði eins og við var að búast... en ekki hvað;) Elsku Gunna, til hamingju.
Maja og fjölskylda á Dalvík

Maja

18.10.2009 kl. 12:12

Elsku Gunna móða okkar...hamingjuóskir með nýja titilinn.
Kveðja úr gula húsinu;)

Þórustaðahróin

16.10.2009 kl. 23:28

Heil og sæl elskurnar mínar. Nú er gamla orðin langamma klukkan 22,19 í kvöld kom lítill drengur í heiminn móður og barni heilsast vel og pabbinn að springa úr stolti.
Kveðja til ykkar allra Langamma.

Gunna

12.10.2009 kl. 11:51

Sælir ættingjar

Sælir ættingjar, það er orðið allt of langt síðan ég skrifaði á síðuna og vil ég óska öllum afmælisbörnum síðastliðinna vikna til hamingju.
Ég ákvað að skella mér aftur í skóla og er nú nemi í ferðamálafræði í Háskólanum á Hólum. Námið tek ég í fjarnmámi en er búin að fara einu sinni á Hóla í lotu og fer aftur í nóvember. Þetta er mjög skemmtilegt og áhugavert nám og nóg að gera. Ég er nú þegar búin með eitt fag, lokaprófið var í síðustu viku, sem ég stóðst að sjálfsögðu með prýði, enda af góðum ættum ;o)
Ég hætti að vinna hjá úrsmiðnum í byrjun ágúst, samdráttur þar eins og á fleiri stöðum, en hef aðeins verið að vinna við verkefnið Þingeyskt og þjóðlegt, sem ég nefndi hér áður á síðunni. Annars er ég bara heima að læra, sinna hundinum og húsverkum. Árni fór í smá úthald, í Mosfellsbæ, hann fór á síðastliðinn þriðjudag og var reiknað með 10 dögum. Ég fæ hann allavega heim í lok vikunnar en óvíst hvort verkið verði alveg búið, eða hann þurfi að fara aftur eftir helgina.
Kveðjur

Hulda Jóns

7.10.2009 kl. 20:43

tengill.

Tengillinn á siðu Katrínar Evu hér til hliðar er kominn í lag ;)

AJ

6.10.2009 kl. 12:47

hæ hæ.

Sælir ættingjar góðir.
Af okkur er allt gott að frétta, verð að viðurkenna að ég sakna skrifa hér í gestabókinni, einhvernvegin pínu persónulegra en fésið, allavega svolítið skemmtilegra.
Eins og þið vitið fæddist dóttir okkar 24.ágúst og fékk nafnið sitt og var skírð þann 26.september. Katrín Eva er bara sátt með lífið og dugleg að stækka, hún er vísu alltaf með aðeins í maganum á kvöldin í smá tíma en það er ekkert voðalegt. Hún sefur flest allar nætur og alla daga. Er svona aðeins byrjuð að vaka núna fyrst. Hún fór í 6.vikna skoðun í gær og er orðin 5460 gr og 57 cm en hún fæddist 4240 gr og léttist undir 4000 gr vegna gulunnar og var 54 cm við fæðingu. Svo lillan er bara dugleg sko :O).
Já já, hef lítið annað að segja, nú snýst lífið bara um Katrínu Evu, og ég verð að segj að fyrst núna er lífið að hefjast! :) (eða svona hér um bil). Maðurinn er útivinnandi eftir að hafa verið mánuði í fæðingarorlofi og við Katrín erum heima og förum í mömmumorgna 1-2 í viku og erum reyndar lika dugleg að flakka og fara í heimsóknir :).
Við óskum afmælisbörnum undanfarið innilega til hamingju og auðvitað nýskírðum og svoleiðis...bara allt saman :).
Hafið það öll gott og verið dugleg að skrifa hversdags og spari fréttir hér inn :) Mér finnst rosa gaman að lesa hérna :) og fyrir þá sem vilja skoða síðun hennar Katrínar hér til hliðar er það guðvelkomið. Lykilorðið er stjörnumerkið hennar með litlum stöfum :).

Anna Júlía og Katrín Eva.

4.10.2009 kl. 9:45

Sammála

Heil og sæl öll,alveg er ég hjartanlega sammála þeim móðursystrum mínum,miklu skemtilegri samskipti hér á síðunni okkar og ég alveg dauðskammast mín fyrir hvað það er langt síðan ég hef kvittað hérna því ég kíki hér inn á hverjum degi nánast.Það er nú svo sem ekkert mikið að frétta hér hjá mér nema allt gott.Íris litla Ósk vex og dafnar aldeilis ljómandi vel og er hjá mér þrjá daga í viku meðan Nína er í skólanum og það gengur alveg ljómandi vel,hún er alltaf svo glöð og góð hjá ömmu sinni og það er allt ljómandi gott að frétta af þeirri litlu fjölskyldu.Líka allt gott að frétta af Mývetningunum mínum og Jóel svona mestan part fluttur út frá okkur,það er ljómandi hugguleg stúlka sem heillar talsvert mikið meira en gamla settið og það er bara hið besta mál.Við gömlu bara dólum svona í rólegheitum,höfum nú ekki staðið í neinum stórræðum og það er nú líka bara notalegt.Við fórum nú reyndar austur á Selfoss í skírnarveislu um síðustu helgi og það var virkilega gaman,þar var boðið uppá íslenska kjötsúpu sem afi skírnardrengsins eldaði og ég get sagt ykkur það að hann Þröstur klikkaði ekki þar frekar en annarsstaðar,súpan var alveg snilld.Jæja gullin mín,farið nú vel með ykkur og verum nú duglegri að kvitta hérna.
Bestu kveðjur til ykkar allra,
Ester

Ester

3.10.2009 kl. 22:32

Halló elskurnar
Alveg er eg sammála systur minni
eg sakna þess að sjá ekki myndir þótt eg liti á fésið
þá finst mér síðan okkar skemmtilegri
Sá litla stubbinn sem fær nafn um mæstu helgi
í dag hann er flottur
Vona að allir hafi það gott
Knús frá mér Gunna

Gunna

3.10.2009 kl. 21:43

Allt á Fésið

Kæru ættingar,nú erum við heillum horfin allt komið á Fésið.Eg verð að segja það að eg sakna þess mikið. Mér finnst síðan okkar miklu skemtilegri samskiptamáti fyrir okkur ættingana. Af okkur er bara nokkuð gott að frétta við gömlu skörin skrööltum þetta nokkuð óstudd þrátt fyrir " Hrun".Búið að vera brakandi blíða í dag og nokkuð góð spá framundan.Bíðum spent eftir næstu skírn Kær kveðja til ykkar allra úr Mávanesinu

Ása

7.9.2009 kl. 22:44

Halló allir.
Vil byrja á að óska öllum nýju meðlimum ættarinnar til hamingju með að vera fædd inn í þessa frábæru ætt og bjóða þau velkomin í heiminn:D
Héðan er allt gott að frétta, lítið farið í berjamó samt. Ég skellti mér með börnin og mömmu á Árrétt á sunnudagsmorguninn sem var mjög gaman... Alexander var galvaskur og fór ofaní til kindanna en Rakel Bára sat uppá girðingunni og jarmaði með kindunum:D
Nú eru allir byrjaðir í sinni vinnu á ný, við Alexander byrjuðum 10. ágúst, þreytt eftir Fiskidagshelgina miklu en feðginin fengu að vera aðeins lengur heima. Rakel Bára byrjaði svo í aðlögun í leikskólanum á 1 árs afmælisdaginn sinn og Addi fór að vinna viku seinna. Leikskólavistin hjá dömunni gengur vel, á svolítið erfitt með að kveðja mömmu sína á morgnana og ef hún hittir mig úti en er annars glöð og sæl, fær fullt af hrósum frá kennurunum um hvað hún er róleg og góð stelpa, dundar sér mikið og er sjálfri sér svo nóg.
Læt þetta duga í bili.
Kv. frá Dalvík, Maja

Maja

www.alexanderm.barnaland.is; www.rakelbara.barnaland.is

6.9.2009 kl. 10:41

Heil og sæl öll saman.Það er orðið ansi langt síðan ég hef kvittað hérna og er nú frekar rólegt hér sýnist mér,allir líklega uppteknir ýmist í berjamó eða að fagna nýjum meðlimum í ættinni.Það er nú ekki búin að vera nein smá gróska í þeim málum og heldur betur glæsileg eintök Stöfnunga sem bæst hafa í hópinn,innilega til hamingju með það öll.Hjá mér er annars bara allt þetta fína að frétta,allir hressir og bara kátir.Mývetningarnir mínir stússa bara í göngum og alskyns svoleiðis haustverkum og eru nú aldeilis hress með það held ég.Nína er byrjuð í skólanum,fór á Bifröst í lögfræði og Ásgeir byrjaður í HR í tölvunarfræði svo að ég er að passa Írisi Ósk litlu 2-3 daga í viku og það er nú ekki leiðinlegt,hún er alveg eins og ljós þessi litli engill.Jóel leikur svo og leikur svo að það er enginn að láta sér leiðast hér í kringum mig,nóg að gera hjá fólkinu.Annars er nú allt bara í rólegheitum hjá okkur gömlu,ekki nein stórtíðindi.Jæja elskurnar,reynum nú að vera dugleg að kvitta hérna það er svo gaman að fylgjast með fólkinu sínu og fá svona smá fréttir.Hafið það nú sem allra best og knús á ykkur öll, kveðja Ester

Ester

28.8.2009 kl. 7:07

:)

Kæru ættingjar.

Ég sé að þið hafið fengið fréttir af prinsessunni okkar :). Hún er í alla staði dásamleg - þökkum kærlega góðar kveðjur :).

Kv.
Anna Júlía og Arnþór.

Anna Júlía og Arnþór Haukur

28.8.2009 kl. 7:07

:)

Kæru ættingjar.

Ég sé að þið hafið fengið fréttir af prinsessunni okkar :). Hún er í alla staði dásamleg - þökkum kærlega góðar kveðjur :).

Kv.
Anna Júlía og Arnþór.

Anna Júlía og Arnþór Haukur

27.8.2009 kl. 16:41

Hæ allir allt í góðu hér á bæ ,en hann Benni litli hennar Beggu á afmæli í dag til hamingju með daginn Benni kveðjur frá okkur hérna í Melasíðunni Sissa og Jón

Sissa

24.8.2009 kl. 19:40

Elsku Anna Júlia og Arnþór
Okkar innilegustu hamingjuóskir með dótturina
Bestu kveðjur
Ása og Gunna löngusystur

gunna

24.8.2009 kl. 17:20

Smá fréttir hjá mér , lítil stúlka fædd hjá
Önnu Júlíu og Arnþóri, fæddist klukkan 13:05 í dag
hún er 54 cm, og 4240 gr.
kv.Jófríður.

Jófríður Halls.

23.8.2009 kl. 22:16

Elsku Kolbrún
Innilega til hamingju með fertugs afmælið
það getur ekki verið þú ert nýfædd
Hafðu það ætíð sem best ljúfan
kær kveðja til þín og þinna
Gunna móða og Gunni

gunna

23.8.2009 kl. 20:57

Halló halló síðuhöfundar en á ekki hún Kolla 40 ára afmæli í dag bara smá ábending bestu kveðjur sissa

Sissa

6.8.2009 kl. 13:50

Spánarfarar komnir heim

Heil og sæl öll,........þá er þetta góða frí nú liðið og við komin heil og heldur betur sólbökuð heim eftir alveg yndislega og ljúfa Spánardvöl.Þetta var þvílíka afslappelsið og gamanið,lágum bara og flatmöguðum á daginn,skruppum kannski aðeins í nokkur ,,moll"svona rétt til að kæla okkur niður og borðuðum svo góðan mat á kvöldin, úti að sjálfsögðu í svona kannski 28°¨hita,ekki amalegt það.Það var svo sem annsi vel volgt á okkur þessar 2 vikur,hitinn fór alldrei undir svona 34-5¨°C og svo alveg upp í 40+ en þá komu ,,mollin" sterk inn svo það var nú í góðu lagi.Það er sem sagt allt í sóma og ljóma hjá okkur og stífar herðar og stirð bök öll að línast upp.
Farið nú vel með ykkur og bestu kveðjur til ykkar allra.

Ester,Sæmundur Þröstur og Svala

Ester

3.8.2009 kl. 21:21

Kveðja frá Islandi

Kæru Spánarfarar. Á Íslandi er spánar veður,sól og logn upp á hvern dag svo við erum líka að verða eins og svertingar,engir kakkalakkar.Kveðja úr Mávanesinu

Ása

1.8.2009 kl. 17:08

Kvedjur frá Spáni

Allt gott ad frétta hédan frá Spáni. Saemi keppist vid ad verda eins og svertingi og lyggur og lyggur í sólinni. Allir vid hestaheilsu og bara kátir thrátt fyrir kakkalakka heimsókn í gaerkvoldi. Bestu kvedjur til ykkar allra.

Throstur, Svala, Ester og Saemi.

Throstur Kolbeins

17.7.2009 kl. 9:46

Halló gott fólk,bara að kvitta aðeins.Allt gott að frétta hér.Veðrið búið að vera alveg hreint yndislegt,sól og blíða dag eftir dag,svona eiga sumur að vera.Jóel og co.frumsýndu á miðvikudaginn og við gömlu drifum okkur auðvita á sýninguna og þetta var alveg hreint brilljant hjá þeim,mjög skemmtilegt og verulega fyndið,enda einn af ,,Ljótu hálvitunum" sem samdi verkið.Þetta er að vísu á ensku þar sem því er ætlað að höfða meira kannski til túrista,þetta er nefnilega saga Reykjavíkur í ansi léttum dúr,en við skildum allt svo að þetta er mjög gaman fyrir Íslendinga líka.Stórleikarinn minn fór auðvita á kostum eins og hanns var von og vísa (ég er ekkert hlutdræg sjáið þið),en svona grín laust þá mæli ég eindregið með þessari sýningu ef fólk skilur aðeins í ensku.Svo er nú heldur betur farið að styttast í Spánarferðina okkar og Þrastar og Svölu,bara 5 dagar,förum á miðvikudaginn næsta og það verður nú ekki leiðinlegt get ég sagt ykkur.Jæja elskurnar,farið nú vel með ykkur og njótið sumarsins.
kveðjur og knús á alla
Ester

Ester

8.7.2009 kl. 22:45

Fæddur lítill " Prins "

Eg var að koma frá því að skoða prinsinn,og.Hann er 4235 gr og 53,5 cm mjög flottur því miður get eg ekki sent ykkur mynd,afi sér um það kveðja Ása amma

Ása

8.7.2009 kl. 10:26

Sæl verið þið öll saman,aðeins að kvitta hérna.Bara allt ljómandi gott að frétta hér hjá mér,allir hressir og kátir bara.Litla Íris Ósk dafnar vel og er orðin aldeilis spræk og spert og auðvita bara fallegri og fallegri eins og lög gera ráð fyrir þar sem hún er af þessu frábæra kyni.Jóel er að æfa leikrit sem á að frumsýna á fimmtudaginn í næstu viku svo að það er bara æft frá morgni til kvölds alla daga svo að hann sést nú ekki mikið heima þessa dagana.Allt gott að frétta af mínu fólki í Mývatnssveit,þar fæddist folald um helgina svo að þið sjáið að það er bara allskonar gróska í kringum mig.Mamma er enn í Stafni hjá Ollu og þær eru nú alveg örugglega búnar að hafa það heldur betur fínt,en þær fara nú held ég til Akureyrar í dag og þá fer hú líklega að síga svona fljótlega heim á leið.Kolla,Mark og Katrín eru enn í Ameríkunni en ég held að þau séu væntanleg heim núna um helgina.Svo styttist bara í fríið okkar á Spáni og það verður nú ekki leiðinlegt,við ætlum nú aldeilis að flatmaga þar og slappa ærlega af.Jæja farið nú vel með ykkur elskurnar og knús og kossar á alla og auðvita innilega takk fyrir síðast,maður er strax farinn að hlakka til næsta hittings þetta var svo gaman.

kveðja Ester

Ester

3.7.2009 kl. 22:49

Takk fyrir síðast!
Er strax farin að hlakka til næsta hittings, þetta var mjög gaman!
Kveðja

Hulda Jóns

3.7.2009 kl. 9:50

Myndir! :)

Hæ kæru ættingjar.

Vildi bara benda ykkur á að Þröstur er búinn að setja inn myndir frá ættarhittingnum á Kvíslarhóli hér inn á síðuna. Það eru tvö albúm, annað með myndum sem Þröstur sjálfur tók og hitt sem Jón tók. Mjög gaman að skoða myndirnar og langaði að benda ykkur á þetta. Ég nefnilega gleymdi nú alveg að nota myndavélina þarna um helgina en það kemur ekki að sök þegar nóg er af ljósmyndurum í fjölskyldunni :).

Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía

1.7.2009 kl. 21:12

Kæru ættingar

Takk fyrir Síðast.Þetta var frábært. Sérstaklega viljum við þakka "Hittingshöldurum" fyrir indislega aðstöðu. Jófríður og Alli,Anna Júlía og allir hinir Takk Takk. Það verðu erfitt að toppa þennan hitting,og þann næsta ef fótboltavöllurin verður fyrir valinu.Þá verðu bara Tólistahúsið eftir fyrir mig ,Það vill svo vel til að það verður tekið í notkun 2011 .Kveðja og Þakklæti ti allra Ása og Jón

Ása

29.6.2009 kl. 19:22

Kæru ættingjar :)

Bestu þakkir fyrir komuna og frábæra samveru um helgina. Við létum nú veðrið ekkert spilla fyrir okkur enda erum við með sól í hjarta ekki satt ;).
Ekki tel ég að ég hafi lagt af um helgina... enn södd :).
Mikið var gaman að hitta ykkur öll og eiga góðar stundir. Hvar sem við verðum næst og hvernig sem veðrið verður þá verður gaman næst líka að sjálfsögðu :).

Þúsund þakkir fyrir allt saman öll með tölu og megi árlegur Stafnshittingur lengi lifa :)

Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía og Arnþór

29.6.2009 kl. 12:31

Elskulegu ættingjar,hjartans þakkir fyrir samveruna um helgina,þetta var alveg hreint indislegt.Ég er algerlega sammála Kristínu að það skiptir engu þó að maður sé ekki allur brunninn og flagnaður því veðrið var samt bara algert æði og félagsskapurinn ennþá betri,svo maður tali nú ekki um allan matið og bakkelsið.Ekki það að ég hefði nú búist við því að Stöfnungar sætu endilega mjög svangir og nestislausir heila helgi,hefðum alveg getað verið minnsta kosti viku í viðbót þess vegna.Svo er bara að finna út hvað við gerum í hitting næsta sumar því ekki má hann farast fyrir,þetta er svo rosalega gaman,kannski skelli ég bara markísunni yfir þyrlupallinn á fótboltavellinum á Þórustöðum og málið er dautt.Elskulegu Kvíslarhólshjón og afkomendur þeirra,hjartans þakkir fyrir alveg hreint frábæra aðstöðu og umgjörð um alveg indislega samverustund og þið öll kæru ættingjar og þeirra fylgifiskar sömuleiðis hjartans þakkir fyrir samveruna,þetta var alveg ,,geðveigt "gaman.STRAX FARIN AÐ HLAKKA TIL NÆSTA SUMARHITTINGS.
Bestu kveðjur til ykkar allra.

Ester og co.

Ester

29.6.2009 kl. 11:57

Kæru ættingjar

Bestu þakkir fyrir frábæra helgi. Og hún var það þrátt fyrir að ég sé ekki tönuð í drasl og nánast alveg raddlaus, en þar má kenna um söngolíuleysi. Nú er bara að bíða þar til næsta sumar en þá ætlar Ester að vera búin að kaupa markísu yfir svalirnar hjá sér því til stendur að hún bjóði heim ;o) LOL
En hvort sem við förum á svalirnar hjá Ester og Sæmundi, í bústaðinn hennar Kollu (í USA) eða á fótboltavöllinn með þyrlupallinum á Þórustöðum eða bara á týpískt íslenskt tjaldstæði þá hlakka ég bara heilmikið til.
Bestu þakkir til húsbænda og þeirra barna á Kvíslarhóli sem lögðu greinilega ómælda vinnu í undirbúninginn sem verður ekki svo auðvelt að toppa. Núna liggur fyrir að æfa sig í söng svo ég hafi ástæðu til að vera raddlaus eftir næsta hitting.
Bestu kveðjur til allra Stöfnunga og áhangaenda, Kristín og co.

Kristín

26.6.2009 kl. 15:18

Vil óska öllum afmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn... sjáumst:D

Maja

26.6.2009 kl. 10:49

Til hamingju með daginn þið öll sem eigið afmæli í dag og svo hittumst við .kveðja Sissa og Jón

Sissa

25.6.2009 kl. 12:48

Hlakka til að sjá ykkur um helgina ;o)

Hulda Jóns

24.6.2009 kl. 5:56

MBL heldur að draga úr veðurspánni

Leit á veðurspána á MBL þegar ég vaknaði og sé að þeir eru aðeins að draga úr spánni frá í gær.... Ekkert hefur samt dregið úr góða skapinu og spenningnum fyrir hittingnum.

Þröstur Kolbeins

24.6.2009 kl. 0:15

Já það er rétt. Hef nú sjálfsagt komið þessu að í einhverjum af pistlunum mínum en við ætlum semsagt að koma öll:D

Maja

23.6.2009 kl. 20:39

Jæj þá er nú kominn tími til að tilkynna þárttöku sína á hittinginn, ég mæti að sjálfsögðu ásamt spúsu minni úlfar kemur líka, en það er óvíst með hina drengina kemur allt í ljós, annars er allt gott að frétta af okkur,hittumst kát á Tjörnesiu um helgina.

Kv Hafþór og Anna

Hafþór

21.6.2009 kl. 21:00

Vorum að koma heim úr fyrstu útilegu sumarsins sem byrjaði ekkert alltof vel, það var ískaldur norðanvindur í Vaglaskóginum þegar við komum þangað og ekkert alltof góð veðurspá fyrir morgundaginn. Létum okkur þó hafa það þar sem við vorum í fellihýsi og gátum hitað það vel upp. Þegar fór að líða á kvöldið fengum við þær hræðilegu fréttir að elsti bróðir Adda hefði farið útaf veginum á mótorhjólinu sínu milli Dalvíkur og Akureyrar, á leið á Bíladagana, og það allt lið hefði verið ræst út, hann væri semsagt á leið með sjúkrabíl til Ak. Þetta setti óneytanlega skugga á kvöldið og datt niður mórallinn um stund í hópnum (vorum þarna með 5 öðrum fjölskyldum, þ.á.m yngsta bróður Adda) Næstu mínútur voru lengi að líða, meðan við vissum ekkert. Loksins fengum við fréttir frá FSA um að þetta hefði verið betra en talið var í fyrstu, "allt liðið" hefði verið afturkallað en hann væri með bakmeiðsli og verið væri að rannsaka hann. Hann mátti svo fara heim um kvöldið, með brákuð og brotin rifbein en nokkuð góður að öðru leyti. Okkur var því mjög létt og gátum haldið áfram að reyna að njóta útilegunnar:) Fyrstu nóttina var svo næturfrost, 2-3 stiga frost og því miður var svo mikið álag á rafmagninu að það sló út um miðja nótt hjá okkur svo við vorum við það að frjósa... börnin sváfu reyndar vel og var ekki kalt, sem var fyrir mestu, en við fullorðna fólkið héldum að þetta yrði okkar síðasta. Ein fjölskyldan gafst upp eftir nóttina og fór heim en við ákváðum að bíða aðeins og sjá til. Það rættist heldur betur úr veðrinu ... og helginni... sól og hiti á laugardaginn svo við náðum okkur öll í fallegan rauðan lit í andlitin og nóttin var æðisleg. Erum því bara þreytt í dag eftir helgi sem byrjaði ekkert alltof vel en endaði æðislega. Mikil tilhlökkun komin fyrir næstu helgi.
Sólarkveðjur frá Dalvík... Maja og fjölskylda

Maja sólbrennda:)

19.6.2009 kl. 8:58

Kæru ættingjar endilega skoða upplýsingar um ættarhittinginn og senda önnu Júlíu nýtt í niðjatalið það sem hefur breist síðan síðasta ættarmót var á Reykhólum og svona til gamans taka þátt í skoðanakönnunni hér til hliðar á síðunni .Annars allt gott vonast til að gamla konan leggi í að fara Kvíslarhól og að sjálfsögðu biðjum við um gott veður annars verður þetta bara gaman og ég hlakka til að hitta ykkur .knús Sissa

sissa

16.6.2009 kl. 14:26

Bara að kvitta smá, láta vita af okkur hérna á Dalvíkinni:D Allt við það sama bara, dóttirin tekur daglega framförum, er nú farin að skríða að nafninu til, reyndar svona sitjandi skrið, en kemst nokkuð langt á því samt. Hún er líka farin að toga sig upp, stendur reyndar ekki upp en krípur á hnjánum:D Annars er hún bara ósköp róleg prinsessa og ekkert að drífa sig að hlutunum... og mamman nýtur þess í botn að eiga svona yndislega dúllu:D Sonrunn er alltaf sami grallaraspóinn, er nú búinn að eignast tvíhjól með hjálpardekkjum og hjólar í hringi á pallinum okkar, næsta skref er svo að fara með hann á bílaplanið eða planið fyrir neðan raðhúsið og leyfa honum að spreyta sig þar... þetta er það síðasta sem hann gerir áður en hann fer að sofa og fyrsta sem hann biður um þegar hann vaknar:D Maðurinn er líka voða duglegur í sinni vinnu hehehehe... verður maður ekki að hrósa honum líka;) Hann sér um að skaffa pening í búið... ekki miklir peningar sem hafast frá fæðingarorlofssjóði ef maður eignast börn svona ört og vill taka sér lengra fæðingarorlof en 6 mánuði svo það er eins gott að hann fær sæmileg laun:D En senn líður að fæðingarorlofi hjá honum og svo sumarfríi í framhaldi af því... fáum því alveg 1 og hálfan mánuð saman í fríi í sumar.
Annars er ég bara farin að hlakka mikið til að hitta ykkur á Kvíslarhóli eftir tæpar 2 vikur:D
Kveðjur frá Dalvík:D

Maja

15.6.2009 kl. 13:03

Senn líður að....

...hittingi!!! VEI :).
Það verður sko aldeilis gaman :)
Þar sem gott fólk kemur til að hafa gaman saman getur ekki annað verið en það verði súper skemmtilegt.

Sjáumst
Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía

13.6.2009 kl. 10:18

Heil og sæl öll saman,aðeins að kvitta fyrir mig.Það er nú bara allt gott að frétta hér hjá mér,litla Íris Ósk dafnar alveg ljómandi vel og verður bara yndislegri með hverjum deginum og svo er Jóel búinn með skólann svo nú er hann orðinn leikari,tíminn líður alveg ótrúlega hratt,bara alltí einu liðin þessi 3 ár sem hann var í London.Hann er kominn heim svo það er nú allt komið í gamla gírinn hér hjá mér svona í bili,aldrei að vita hvað hann verður lengi heima í þetta sinnið.Við skelltum okkur í Þjóðleikhúsið í gærkvöldi að sjá Stebba bróðir og félaga í Freyvangsleikhúsinu fara á kostum í Vínlandinu,þau stóðu sig alveg glimrandi vel og fengu alveg fanta góðar viðtökur.Ég var búin að sjá þau í Freyvangi og fannst mjög gaman en þetta var eiginlega enn meira gaman,naut sín ennþá betur á þessu stóra sviði,bæði leikur og tónlist.Jæja elskurnar,nú er maður bara farinn að bíða eftir að fara norður á hittinginn okkar,bara 2 vikur í hann,farið nú vel með ykkur elskurnar og hittumst hress og kát þá.

kveðja
Ester

Ester

8.6.2009 kl. 20:42

Og allt gengur vel

Við mæðgur erum komnar heim og allt gengur vel. Eins og komið hefur fram ákváðum við nafnið Íris Ósk á littluna. Hún var útskrifuð í dag og er nokkurnvegin búin að ná aftur fæðingarþyngd.
Ég vil þakka öllum fyrir kveðjurnar.

Nína Björg

7.6.2009 kl. 21:16

Elsku Íris Ósk
til hamingju með nafnið þitt
ég er ánægð með það kveðja til þín ma og pa
frá okkur í Lerkilundi

Gunna

7.6.2009 kl. 13:18

Íris Ósk

Þá er búið að nefna dúlluna hennar Nínu og Ásgeirs. Hún hlaut nafnið Íris Ósk, einkar þjált og fallegt nafn. Dagsetning á skírn hefur ekki verið ákveðin. Innilega til hamingu með nafnið Nína og Ásgeir.

Þröstur Kolbeins

3.6.2009 kl. 12:23

Já Ester þú mátt aldeilis vera monntin af dúllunni þinni hún er æðisleg með þetta flotta svarta hár aftur til hamingju en hafið það sem allra best .Knús Sissa

Sissa

3.6.2009 kl. 11:27

Sæl elskurnar,nú er ég aldeilis í sjöunda himni,litla ömmudúllan mætt á svæðið og hreint út sagt yndisleg,enda varla von á öðru,komin af þessari líka snilldar ætt.Ég segi bara eins og maðurinn sagði um árið,,það er ekki svo auðvelt að klúðra þessu".Mæðgurnar fara að öllum líkindum heim í dag og þá getur maður nú farið að hanga þar og knúsa og kreista,(þau verða nú líklega fljót að fá nóg af mér).enda er hún með aldeilis flottar klípu kinnar snúllan.Jæja elskurnar,varð bara að monnta mig aðeins hérna,farið nú vel með ykku og knús og kossar á alla.

kveðja Ester

Ester

1.6.2009 kl. 20:47

Afmæliskveðjur

Kærar þakkir fyrir kveðjur á afmælisdaginn minn. Mér finnst ég nú ansi grettinn á þessari mynd en kannski er ég bara alltaf svona.
Kveðja Marsý

Marsibil P. Benjamínsdóttir

31.5.2009 kl. 16:20

Sælir kæru ættingjar.
Bara að kvitta smá, er ekkert alltof dugleg við það. Sama sagan og vanalega, gott veður og svona. Við mæðginin erum bara 3 í kotinu í dag, Addi fór að steggja bróður sinn kl. 1 í dag... ýmislegt sniðugt sem hann er látinn gera strákurinn, m.a. syngja lag inn á disk hehe:D Veit ekki hvort þeir ætla að láta spila þetta í brúðkaupinu eða hvað;) Fórum í fermingu á Ak í gær og svo er brúðkaup næstu helgi svo það er eitthvað um að vera alltaf.
Ætluðum að skella okkur í sveitina í dag með mömmu og co en stóri strumpurinn minn fór að kvarta undan verkjum í maganum í hádeginu og sagðist ekki þurfa að gubba (sem þýðir oftast hið gagnstæða) svo ég þorði ekki að fara. Hann var þó orðinn hressari um klukkutíma seinna en þá nennti ég ekki að fara að græja okkur af stað, enda mamma sennilega farin. Við fengum okkur því bara göngutúr með vinkonu minni og dætrum hennar sem var ósköp yndislegt í þessu veðri;)

Maja

28.5.2009 kl. 9:47

Sæl og blessuð elskurnar,aðeins að kvitta bara.Það er allt gott að frétta hér,ekkert svo sem sérstakt gengur allt sinn vana gang.Veðrið er búið að vera alveg hreint yndislegt í marga daga og það lyftir nú aldeilis geðinu,maður lifnar allur við,reyndar rigning þessa stundina en það er nú bara gott fyrir gróðurinn.Það styttist heldur betur í að nýja barnabarnið komi í heiminn,það er held ég ekki nema 6 dagar í settan dag svo að það getur nú bara komið eiginlega hvern daginn sem er úr þessu og ég held að Nína sé búin að gera allt klárt fyrir komu prinsessunnar og bíði bara í startholunum.Svo er útskriftarpartý í Ljósalandinu á laugardaginn og þá hittir maður nú fullt af skemmtilegu fólki.Jæja elskurnar farið nú vel með ykkur og verum endilega dugleg að kvitta hérna,það má ekki láta þessa fínu og skemmtilegu síðu lognast útaf,ég kíki hér inn að minnsta kosti 2-3svar á dag og mér sýnist að það séu fleiri sem gera það.

Knús og kossar á alla

Ester

Ester

21.5.2009 kl. 14:22

Gaman að sjá þessi myndbönd ég man samt vel eftir að hafa séð afa í sjónvarpinu ,en engu að síður gaman að hafa þetta hér á síðunni okkar takk Fía .En annars gengur lífið sinn vanagang hér hjá mér og mínum maður er alltaf eitthvað að brasast vantar aldrei verkefni ef maður nennir einhverju annars hafið það gott elskurnar bíð spennt eftir hittingnum okkar eins og fleiri Knús Sissa

sissa

21.5.2009 kl. 10:46

Frábært að sjá þetta Fía mín,takk fyrir að setja þetta hér inn.Ég man reyndar vel eftir þessu,man að það var æði að sjá afa sinn í sjónvarpinu.

kveðja Ester

Ester

20.5.2009 kl. 18:12

Takk fyrir Fía að lofa okkur að sjá þetta,
mig mynnir reyndar að ég hafi kanski séð þetta,
en er samt ekki viss,gaman að þessu takk,takk..
kv.Jófríður.

Jófríður Halls.

20.5.2009 kl. 7:29

Takk fyrir skemmtilegt myndband Fríður Helga :) Mjög gaman af þessu, sérstaklega þar sem ég man mjög lítið sem ekkert eftir langafa, þá var gaman að sjá þetta.

Kveðja
AJA

Anna Júlía

19.5.2009 kl. 23:06

Takk fyrir þetta Fía mín
Gaman að sjá þetta ég man eftir þessu
kveðja frá okkur í Lerkilundi

Gunna

19.5.2009 kl. 14:27

Mér áskotnaðist skemmtilegt myndbrot á dögunum, varð að deila því með ykkur. kv. Fía

Myndband

18.5.2009 kl. 8:42

Halló,halló öll elskurnar,bara að kvitta fyrir mig,allt það besta að frétta hér,veðrið alveg búið að vera yndislegt undanfarna daga og er enn.Nú er bara beðið eftir að litli bumbubúinn hennar Nínu mæti á svæðið,það styttist í það,bara svona 2 vikur í það og Jóel kemur heim 8.júní þá er hann búinn með skólann,þetta er alveg ótrúlega fljót að líða þessi 3 ár,mér finnst hann hafa farið bara í fyrra.Og svo styttist aldeilis í sumarhittinginn,ég er farin að hlakka svo til hans,það verður bara fjör og gaman.
Farið nú vel með ykkur elskurnar,knús og bestu kveðjur

Ester

Ester

16.5.2009 kl. 17:00

Hér á Dalvíkinni er búið að vera dásemdarveður alla vikuna, byrjaði á sunnudaginn og hefur verið síðan, fór i 19 gráður í forsælu á þriðjudaginn og er búið að vera svipað, kannski aðeins kaldara, síðan þá. Ég ákvað að nota veðrið í að vera dugleg í útiverkunum. Mamma kom til mín á fimmtudaginn og gerðum við góða "rassíu" í garðinum, stungum upp öll blómin sem voru í beði þar og munu nokkur þeirra fá að prýða Grundina á Arndísarstöðum í sumar... ef vel tekst;) Smá var skilið eftir og er komið í fallegan blómabala á pallinum mínum. Svo kom garðyrkjustjórinn hér í bæ til mín og klippti runnana svo það þurfti að hreinsa til eftir hann, sem við gerðum, lóðin rökuð og borið á, vökvað og "sjænað";) Í gær skelltum við mamma okkur í sauðburð í Kálfborgará og tókum börnin mín með. Alexander var eins og hann hefði aldrei gert annað en að búa í sveit, greinileg bændagen þarna á ferðinni... fannst nú lítið mál að vera þarna og fannst lang skemmtilegast að vera ofaní hjá kindunum. Hann fékk svo að sjá lamb fæðast og þótti heldur betur merkilegt, sérstaklega þegar móðir þess tók að sleikja lambið;) Kýrnar voru einnig áhugaverðar fannst honum. Í dag ákvað ég svo að drífa í að bera á skjólveggina á pallinum okkar, er búin með að innanverðu en tók mér smá pásu og fór út að labba með börnin. Nú sefur heimasætan úti og feðgar fóru út að hjóla svo ég ákvað að setja lappirnar upp í loft um stund;)
Semsagt allt gott að frétta héðan bara, erum bara að njóta veðurblíðunnar á meðan hún er hjá okkur;D
Kveðja Maja

Já ... lognmolla;)

15.5.2009 kl. 14:15

Lognmolla?

Þó svo að ekki hafi verið mikil lognmolla í veðrinu undanfarið (þó það sé nú gott í dag) þá hefur nú verið einhver slík í gestabókinni undanfarið... eru ekki allir þokkalega hressir og svona? :) Ekkert að frétta af þeim sem ekki hafa kvittað nýverið :).
Í hverfinu er svaklega gott veður, sól, blíða, smá gola, hiti... mmm :) Ekki slæmt!. Ég kláraði síðasta prófið mitt í vikunni og er því bara að vinna sem er fínt ;). Svo sem ekkert sérstakt að frétta ... en verið nú dugleg að kvitta og segja okkur eitthvað skemmtilegt :)

Kveðja
Anna Júlía

AJA

11.5.2009 kl. 20:11

..nú er farið að örla á þroska;)

...elskulegu tengdaættingjar..þá er nú búið að heimsækja bakgarðinn hennar Margrétar danadrottningar og við hróin komin heim...takk fyrir ljúfar kveðjur;)
knús ú sveitinni;)

Þórustaðafrúin:)

10.5.2009 kl. 9:00

Sæl og blessuð elsku ættingar,
Það er allt gott að frétta af okkur. Ég loksins kláraði námið mitt um síðustu helgi og er þá búin að ljúka MBA gráðu. Mikill léttir að vera búin en nú þarf ég reyndar að finna mér eitthvað að gera til að fylla upp í allar þessar frístundir sem losnuðu. Ég sá að ég gat ekki verið eftirbátur annarra myndarkvenna í fjölskyldunni og byrjaði á lopavesti í gær. Mikið ósköp er amma Jófríður örugglega ánægð með þennan myndarlega hannyrðahóp sinn. Ég man nú eftir ófáum stundunum sem maður sat í herberginu inn af elhúsininu í Stafni með annað hvort útsaumsstykki eða með prjóna.

Kær kveðja



Kolbrún

9.5.2009 kl. 12:31

Sælir ættingjar
Mér finnst nú alltaf lítið í fréttum hjá mér, en þó er alltaf eitthvað um að vera. Ég er verkefnisstjóri í spennandi verkefni sem nefnist "Þingeyskt og þjóðlegt" og er þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Verkefnið snýst um að viðhalda þjóðlegum menningararfi í handverki, með áherslu á Þingeyjarsýslur. Við vorum með málþing um daginn og svo er nóg að gera við að koma þessu af stað. Svo verð ég svo skapandi þegar ég er í svona skapandi vinnu :o)
Árni fékk sér mótorhjól sem hann er alsæll með og vill nú að frúin taki mótorhjólaprófið líka. Veit ekki alveg hvort það sé sniðug hugmynd, er svolítið mikill klaufi og væri vís með að slasa sig á svona farartæki.
Hundurinn er alveg ótrúlega latur og á þessari stundu liggur hann í sólbaði á stofugólfinu, þar sem sólin nær að skína inn um gluggann. Hann fékk nú samt félagsskap um síðustu helgi, Linda systir og Árni eiga hundinn Bellu og komu með hana í heimsókn. Það var sko stuð á hundunum, hélt að þau myndu andast á föstudagskvöldinu, því þau voru greinilega orðin mjög þreytt en vildu samt ekki hætta að leika.
Árni er svo búinn að vera með leiðindaflensu alla vikuna en ég er stálhress.

Bestu kveðjur

Hulda Jóns

8.5.2009 kl. 8:49

Heil og sæl elskurnar,aðeins að kvitta fyrir mig,...við mættum reyndar ver aðeins duglegri við það,...Það er nú bara allt þetta fína að frétta hjá mér,eldhúsið búið og tókst svona líka glimrandi vel,alveg ótrúleg breyting og ég er alveg alsæl með það.Það styttist í að nýasti afkomandinn komi í heiminn,ekki nema svona 3 vikur eftir hjá Nínu minni.Annars gengur nú lífið sinn vana gang hér,sem betur fer auðvita,lítið sem ber til tíðinda,veðrið mætti nú vera betra,ringdi meira og minna allan apríl en verið svo sem þurt og bjart það sem af er maí en frekar kalt,vonum nú samt að þetta standi allt til bóta.Farið nú vel með ykkur elskurnar, ...kveðja Ester

Ester

5.5.2009 kl. 20:07

Sælir kæru ættingjar.
Alltof langt síðan ég hef skrifað í gestabókina, ástæðan kannski að mér finnst ekkert merkilegt vera að gerast hjá okkur. Börnin vaxa og dafna, litla daman reyndar ekki alveg jafn vel og við vildum því hún þurfti endilega að næla sér í ælupest og niðurgang um páskana og var mjög lengi að ná sér upp úr því. Hafði ekki þyngst nema um 60 gr. á 2 mánuðum sem er alltof lítið (til viðmiðunar þá er æskilegt að þau þyngist um ca 300 g. á mán.) Þar áður hafði hún bara þyngst um 260 g á einum mánuði svo hún má greinilega aðeins fara að gefa í hvað þyngdina varðar. En hún er öll að koma til og farin að borða eins og Stöfnungum sæmir;)
Alexander hefur þroskast mikið á því að verða 2 og hálfs árs og er oftar en ekki duglegur að leika við systur sína og hafa ofan af fyrir henni. Húsmóðirin situr og prjónar á daginn, á milli þess sem hún setur í þvottavélar og þurrkara, og reynir að halda húsinu í þokkalegu ástandi. Svo er að sjálfsögðu reynt að labba aðeins líka með vagninn, hef lítið farið út núna því RB hefur verið með svo háan hita á nóttunni að ég hef ekki viljað láta hana vera mikið úti á daginn.
Það er kominn nettur vorfílingur í okkur hérna, þó það líti reyndar út fyrir að það sé einhver kuldakafli á næstu dögum, en síðustu dagar hafa verið mjög góðir.
Biðjum svo bara að heilsa ykkur,
kveðjur frá Dalvíkinni

Maja

28.4.2009 kl. 9:00

Sæl og blessuð elskurnar,bara aðeins að kvitta fyrir mig,allt gott að frétta hér.Það svoleiðis ríkur áfram með eldhúsið,smiðurinn nánast búinn og málararnir byrjuðu í gær og síðan kemur rafvirkinn og tengir nýju tækin í dag og þá verður þetta orðið bara algert æði,alger bylting.Svo var ég norður í Skagafirði um helgina með gömlum Laugaskólafélögum og það var alveg yndislegt,alltaf jafn ótrúlega gaman að hitta þau,það var nú aðeins spjallað svo ekki sé meira sagt og teknar nokkrar hláturrokurnar get ég sagt ykkur.Farið nú vel með ykkur elskurnar,..kveðja Ester

Ester

24.4.2009 kl. 11:26

Sól og sumarylur!

Gleðilegt sumar gott fólk, og takk fyrir veturinn :).
Ekki er nú leiðinlegt að hlusta allan daginn á fagran fuglasöng fyrir utan gluggann, Lóa, Hrossagaukur.... :) Alltaf gaman þegar fuglarnir eru að byrja að koma til landsins! :).
Ég er farin að hlakka stórkostlega til hittingsins í Júní, það verður klárlega mega gaman þar sem gott fólk kemur saman til þess eins að hafa GAMAN :) ... og jú borða á sig gat líka og svona :). Nú fer skólanum senn að ljúka að sumarvinnan tekur við, gaman af því :)

Hafið það sem allra best!

Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía

23.4.2009 kl. 10:24

GLEÐILEGT SUMAR

Góðan daginn og gleðilegt sumar kæru ættingjar og takk fyrir veturinn,!!!!!!!!
Það er allt það besta að frétta héðan,það er heldur betur verið að rútta til eldhúsinu mínu og breita þar og bæta.Erum að setja ný tæki og þá þurfti að taka burt skápa og útbúa nýa skápa svo að þegar upp verður staðið þá verður það orðið eins og nýtt eldhús og þetta svoleiðis skotgengur enda af sem áður var að það þurfti að bíða og bíða eftir iðnaðarmönnum,nú bara koma þeir alveg um leið og vinna hjá manni þangað til þeir eru búnir,ekkert að skreppa neitt.Það var byrjað á þessu á mánudaginn og það sennilega klárast á morgun,hefði líklega klárast í dag ef ekki væri frídagur,og þá á bara eftir að mála.Ég er orðin rosa spent að sjá hvernig þetta kemur út,sýnist á öllu að þetta verði algert æði.Þetta er nú það helsta sem er að gerast hjá mér þessa dagana og er nú bara all nokkuð.Allt gott að frétta af mínu fólki í Mývatnssveit og London og Kópavogi (Nína og Ásgeir eru flutt í Kópavog)og ég bíð bara spennt eftir nýja barnabarninu það styttist í það svo ég sit bara eins og prinsessa inni í stofu og prjóna ungbarnaföt á meðan smiðir og rafvirkjar búa til handa mér nýtt eldhús,aldeilis ekki amalegt það.
Hafið þið það nú sem allra best elskurnar á komandi sumri og það styttist í hittinginn okkar eg er farin að hlakka mikið til.

Bestu sumarkveðjur

Ester

Ester

19.4.2009 kl. 16:16

Nýjar myndir á blogginu hans Þrastar

Sæl öll sömull .
Má til með að nefna nýjar myndir á blogginu hjá Þresti sem hann tók í 50 afmæli í gær. Hann bregst ekki frekar enn fyrri daginn. Sumar myndir stórkostlegar
Góða skemmtunn
Sæmundur (hennar Esterar

Sæmundur

17.4.2009 kl. 9:39

Sælir ættingjar
Við hjónin áttum góða páska, nóg af boðum eins og venjulega. Fór í tvöfalda afmælisveislu á föstudaginn langa. Maja systir og fjölskylda voru í bústað á Illugastöðum og dreif öll fjölskyldan sig þangað um kvöldið og átti góðar stundir. Grillað naut og með því og svo potturinn á eftir.
Á laugardeginum var svo hið árlega páskaboð stórfjölskyldunnar frá Arndísarstöðum, sem Raggi og Þurí héldu að þessu sinni. Þar var góð mæting og mikið etið, ótrúlegt hvað þessi fjölskylda stækkar hratt :o)
Á laugardagskvöldinu var svo matarboð hjá vinafólki fram á rauða nótt. Vinafólk okkar sem býr í Danmörku var hér um páskana ásamt dönskum vinum sínum.
Eftir tveggja daga prógram áttum við rólegan páskadag sem endaði reyndar í matarboði hjá bróður Árna og fjölskyldu.
Svo tók hversdagsleikinn við aftur á þriðjudeginum og nú er enn og aftur að koma helgi.
Knús til ykkar

Hulda Jóns

15.4.2009 kl. 10:34

Sæl og blessuð öll saman,þá eru nú liðnir páskarnir og allt komið í hversdags skorður aftur.Ég komin úr minni ljúfu páskaferð í norðurland.Búið að ferma ömmudrenginn og tókst bara alveg glimrandi vel.Hulda klikkaði heldur ekki á veislunni,þar var aðeins hægt að fá sér í svanginn,(hefði sennilega verið hægt að halda aðra veislu með afgöngunum) og fullt af skemmtilegu fólki sem maður sér alltof sjaldan.Það var líka fjölmennt í Freyvangsleikhúsið á laugardagskvöldið að sjá Vínland og þar skemmtu sér allir alveg konunglega og Stefán fór auðvita á kostum eins og hans var von og vísa.Svo höfðum við það bara náðugt og héldum áfram að borða góðan mat.Fórum svo heim á annan í páskum og beint í mat til Nínu og Ásgeirs svo að þið sjáið að ég hef ekki þurft að stússa neitt í eldamensku þessa páskana,fæ sjálfsagt fráhvarfseinkenni.Ég vona að þið hafið öll haft það alveg ljómandi gott um páskana elskurnar og verið nú dugleg að kvitta hérna.

bestu kveðjur og knús til ykkar allra....Ester

Ester

13.4.2009 kl. 23:24

Halló nú er doði í fólkinu eru allir á fésinu
hér voru góðir páskar ég í fríi og fékk afar góða gesti
Ingu Kolbrúnu Mark og Katrínu Fórum í flotta fermingarveislu til Karls Óskars í Mývó og svo fórum við held ég 20 saman í Freyvang að sjá Vínland þar var mikið fjör og
mikið gaman nú er ég orðin ein karlinn farinn líka hann fór
til Florída í golf Góða nótt öllsömul Gunna

Gunna

13.4.2009 kl. 22:44

Halló nú er doði í fólkinu eru allir á fésinu
hér voru góðir páskar ég í fríi og fékk afar góða gesti
Ingu Kolbrúnu Mark og Katrínu Fórum í flotta fermingarveislu til Karls Óskars í Mývó og svo fórum við held ég 20 saman í Freyvang að sjá Vínland þar var mikið fjör og
mikið gaman nú er ég orðin ein karlinn farinn líka hann fór
til Florída í golf Góða nótt öllsömul Gunna

Gunna

9.4.2009 kl. 15:58

Gleðilega páska

Ákvað að kvitta fyrir innlitið í þetta skipti, maður er alltof lélegur við það! Af mér er allt gott að frétta en segi eins og Anna Júlía, er eiginlega farin að bíða eftir sumrinu! Ég nota páskafríið í að vinna í aukavinnuna en kíkji nú vonandi í Reykjadalinn góða líka! Vona að þið hafið það sem allra best kæru ættingjar og njótið hátíðisdagana í botn!
páskakveðjur frá Akureyri

Olla

3.4.2009 kl. 20:39

Kvitt :)

Jæja ætli það sé ekki óhætt að skilja eftir sig smá spor á uppáhaldssíðunni! :)
Það er kominn apríl og ég er sko fairn að sjá sól og sumaryl í hyllingum... eins gott að vorið og sumarið láti sjá sig fljótlega he he því maður var sko kominn í svo ægilegan vorfíling þarna um daginn þegar veðrið var gott í nokkra daga. En svona er að búa á Íslandi, allra veðra er von, alltaf!.
Gott er að frétta af okkur í Reykjahverfinu, stefnt er á páskahitting á Arndísarstöðum að sjálfsögðu, alltaf gaman á slíkum viðburði :).
Og já til þeirra afmælisbarna undanfarið sem ég hef ekki kvittað hjá: TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ GOTT FÓLK :):).
Hafið það nú gott um páskana gott fólk, súkkulaði og kósýheit er málið :)

Bestu kveðjur
Anna Júlía

Anna Júlía

2.4.2009 kl. 13:32

Jæja þá er best að ég kvitti líka,hér er allt svipað bara orðin leið á óstillinguni í veðrinu undanfarið,hér var allt ófært á mánudag og brjálað veður svo Alli skutlaði mér í vinnu á dráttarvélinni það gekk bara vel,við stefnum á
að fara í leikhus Ak.á laugardaginn,ég er vissum að gaman væri að fara líka í Freyvangsleikhúsið.Páskahittingurinn
er á Arn.þetta árið og verður hann 11 apríl,bið svo að heilsa öllum og vona að þið hafið það gott kv.Jófríður.

Jófríður Halls.

2.4.2009 kl. 11:37

Jæja, best að kvitta fyrir sig. Maja systir og Ester eru hafa án efa verið duglegastar með fréttirnar hér á síðunni undanfarið, spurning um að fara að bæta úr því ;o)
Er nú farin að hlakka til hittingsins í sumar, "Vel er mætt" er æft reglulega svo ég geti nú örugglega haldið ættingjunum vakandi eitthvað fram eftir, hehe
Lítið í fréttum á mínu heimili, þó að sé alltaf eitthvað um að vera. Borðstofuborðið er undirlagt lista- og hönnunarstarfssemi húsmóðurinnar, lærði nokkur einföld útsaumsspor um síðustu helgi og er að dunda í ýmsu, stundum aðeins of miklu ;o) Alveg hreint ótrúlegt að "óreiðan" sé enn ekki búin að ganga fram af eiginmanninum.
Hef hugsað mér að eiga góða helgi og vona ég að þið eigið það líka
Kveðja

Hulda Jóns

1.4.2009 kl. 12:23

Eru bara allir hættir að kvitta hérna hvernig er það?Við meigum nú ekki alveg gleyma síðunni okka þó allir séu að verða komnir á ,,fésið".Það er allt ljómandi gott að frétta af mér og mínum,Jóel kominn heim og fer aftur út á þriðjudaginn,fær ekki að vera heim um páskana anginn.Nína og Ásgeir eru alveg flutt og búin að skila hinni íbúðinni og bara mjög ánægð með sig í Kópavoginum.Fermingarundirbúningur kominn á fullt í Mívó og ég fer norður í fyrramálið og reyni að hjálpa eitthvað til.Svo ætlum við að skella okkur í Freyvangsleikhúsið á laugardaginn fyrir páska ,heljarinnar hópferð og það verður örugglega alveg frábært.Jæja elskurnar,hafið það nú gott og farið vel með ykkur og njótið nú páskanna.

kær veðja og knús til ykkar allra,..Ester

Ester

23.3.2009 kl. 11:26

Sæl og blessuð elskurnar,aðeins að kvitta,........allt gott að frétta hér,veðrið svona frekar risjótt en svo sem allt í lagi.Mitt fólk bara hresst,Nína og Ásgeir voru að fá aðra íbúð,mjög fína og eru byrjuð að flytja,Jóel að koma heim í smá frí á næsta sunnudag,stoppar reyndar bara í viku en það verður nú samt mjög gott að fá aðeins að sjá hann.Svo er freming í Mívó á skírdag og ég er að hugsa um að fara norður nokkrum dögum fyrr ef ske kynni að ég gæti kannski eitthvað hjálpað til,í öllu falli reyni ég að þvælast ekki mjög mikið fyrir.Svo er maður bara farinn að hlakka til hittingsins í sumar,tíminn líður svo hratt að það styttist óðfluga í hann og ósköp verður nú gott að fá vor og sumar.Jæja elskurnar,þið sjáið að það er nú bara allt í góðum gír hér hjá mér og minum,vona að það sé það líka hjá ykkur,.........bestu kveðjur og knús til ykkar allra.

Ester

Ester

23.3.2009 kl. 11:22

Sælir ættingjar. Við mæðginin, þ.e.a.s ég og börnin mín, eyddum helginni á Hótel Mömmu í Melasíðunni. Unnustinn þurfti að vera DJ á Bárubúð, sem er bar hér á Dalvík, og það var diskó þema svo hann þurfti að undirbúa sig vel, við flúðum því bara að heiman á föstudaginn og komum heim í gær. Yndislegt að eyða helgunum hjá foreldrunum. Börnin vaxa og dafna, sonurinn að verða 2 og hálfs og dóttirin nýorðin 7 mánaða... og alltaf nóg að gera. Unnustinn ætlar svo að skella sér í 2 vikna fæðingarorlof á miðvikudaginn, fram að páskum, eyðum svo páskahelginni (mið-þri) í orlofshúsi á Illugastöðum. Það verður örugglega alveg yndislegt. Aðeins hefur komið til tals að skella sér suður um helgina en ekki enn ákveðið hvað verður. Erum að fara að venja RB á sitt herbergi í vikunni svo það er kannski ekki sniðugt að rífa það upp í miðju kafi. Vonumst svo til þess að AM vilji fylgja í kjölfarið, en hann hefur sofið upp í hjá foreldrum sínum síðan systir hans var 3 vikna gömul... og ekki komið neitt annað til greina hjá honum blessuðum hehehe:D Við hjónaleysin erum hins vegar alveg farin að þrá að eignast rúmið okkar ein aftur og því er þetta næsta skref hjá okkur:D Af þessari ástæðu hefur RB því aldrei fengið að sofa upp í hjá okkur nema rétt fyrstu vikurnar hehehehe:D
Annars er bara búið að vera yndislegt veður hér síðustu daga, sólin skín og snjórinn hefur bráðnað mikið svo það er að verða göngufært um bæinn. Best að fá sér góðan göngutúr á eftir, förum í foreldraviðtal í leikskólanum kl. 1 svo það er fínt að drífa sig í göngu eftir það:D
Hafið það annars gott bara.
Sólarkveðjur frá Dalvík

Maja

18.3.2009 kl. 21:24

Afmæliskveðja!

Óska afmælisbörnum undanfarið til hamingju :).

Vonandi hafið þið það öll gott.

Kveðja,
Anna Júlía & Arnþór.

Anna Júlía

17.3.2009 kl. 14:37

Nei,nei,..........eru bara allir hættir að kíkja hingað eða hvað?.... Sæl og blessuð annars elskurnar,það er nú ekki mikið að frétta hér hjá mér og sennilega er það líka svo hjá ykkur hinum,,engar fréttir eru góðar fréttir".Lífið gengur sinn vana gang þrátt fyrir allt krepputal,ég sé nú ekki neinn rosa mun þannig,nema auðvita ég mæti ekki í vinnu á hverjum morgni....er að vísu ennþá svolítið með þá tilfinningu að ég sé í fríi en hún er nú alltaf að minnka og ég að átta mig á því að þetta frí er komið til að vera og það er bara fint.Svo fer að styttast í vorið og sumarið og það verður bara fínt að vera laus og liðugur alla daga þá,það er orðið annsi langt síðan ég hef upplifað það.
Jæja elskurnar,ég vona að þið séuð öll hress og kát og hafið það bara fint.....farið vel með ykkur og knús og bestu kveðjur frá mér.

kv. Ester

Ester

14.3.2009 kl. 0:09

Sælir ættingjar, við systur sitjum hér í rólegheitum hjá Höllu, Auður Halls var líka á svæðinu. Halla eldaði þessa dýrindis máltíð og einnig hefur verið dreypt á mjeði. Hulda er í smá stelpuferð í borginni. Afmæliskveðjur til allra afmælisbarna síðustu vikna
Kveðja frá tveimur Sandvíkursystrum

Hulda og Halla Jons

10.3.2009 kl. 19:44

Eg er sammála Ester
Þetta var yndislegur staður og ylur góður
stórt knús til allra Gunna

Gunna

10.3.2009 kl. 13:26

Bara svo því sé haldið til haga þá langar mig alveg gríðarlega í sólina á Spáni þegar ég sé myndina af Mark sem er með afmæliskveðjunni,..........bara svona að deila því aðeins með ykkur.

kv. Ester

Ester

9.3.2009 kl. 10:32

Sæl og blessuð öll saman,aðeins að kvitta hérna. Allt gott að frétta hjá ökkur.Vorum í þessu fína afmælis kaffi hjá Mark á laugardaginn,maður fór ekki svangur þaðan get ég látið ykkur vita.Fórum að sjá Snnleikann með Pétri Jóhanni í Borgarleikhúsunu á laugardaginn fyrir viku og það var mjög gaman að því,gott að taka eina kvöldstund og hlæja doldinn slurk.Annars bara allt við það sama svo sem,allir frískir og kátir bara,rjóma veður dag eftir dag hér í Reykjavík en mér skilst að það sé nú eitthvað annað fyrir norðan og austan,að minnsta kosti var það í gær.Jæja elskurna farið nú vel með ykkur og helja knús til ykkar.

kveðja Ester

Ester

5.3.2009 kl. 17:45

...-,,,----,,------ Smá moss

....----..-..---.....----......--..-..----...Smá grín... eru þið búinn að athuga með íbúðina hjá félagi verslunar og skrifstofufólks á Akureyri þau eiga íbúð köben,

Hafþór

3.3.2009 kl. 12:42

Við hróin erum að leita að íbúð í Köben...dagana 5-10 maí..er engin útrásarvíkingur í ættinni;););) ef þið vitið um eitthvað...sendið þá moss í Þórustaði;)
Njótið dagsins.

Þórustaðahróin

27.2.2009 kl. 9:33

Segðu Maja,algerlega bráðnauðsinlegt að hafa stóran og stæðilegan burðarmann............Sæl og blessuð annars öll saman,bara að kvitta hérna aðeins.Ég er nú búin að vera mest í letikasti síðan við komum heim og nánast ekki gert neitt,annars bara allt gott héðan,allt orðið hvítt aftur hérna en svo sem ekki mikill snjór.Ég sá í gær að það eru komnar myndir úr leikritinu hans Jóels inn á Facebook síðunni hans svo að þau ykkar sem eruð þar getið kíkt á þær.Farið nú vel með ykkur og hafið það gott um helgina......knús til allra, Ester

Ester

24.2.2009 kl. 21:50

Heppnar voruð þið Ester að hafa svona góðan burðarmann... þetta er nefnilega það leiðinlegasta við búðarápið, allir pokarnir sem þarf að burðast með. Það er sko auðvelt að ganga fæturna af sér þarna í London... mér hefur amk gengið það ágætlega:D Nóg er að skoða, það er nokkuð víst.

Maja

24.2.2009 kl. 11:00

Jæja gott fólk,þá erum við mæðgur komnar heim úr orlofsferðinni okka og ég get sagt ykkur að við skemmtum okkur alveg hreint konunglega,búnar að hlægja svo mikið að maður er með strengi í maganum(sem er nottlega mjög gott fyrir magavöðvana,bara svo því sé haldið til haga)......Þetta var alveg ótrúlega skemmtileg ferð í alla staði,Jóel svoleiðis stjanaði við okkur þegar hann karl greyið hafði lausa stund sem var nú ekki fyrr en á sunnudag og svo í gær áður en við fórum heim.Leiksýningin var hreint út sagt alveg FRÁBÆR,þessir krakkar eru alveg ótrúlega góð,þetta gaf engu atvinnuleikhúsi sem ég hef séð neitt eftir og á köflum með því besta sem ég hef séð og þó ég segi sjálf frá þá var minn maður alveg hreint brilljant og við mæðgur alveg óskaplega stoltar af prinsinum.Við tókum svo doldið búðalabb og smá sætsíing á London og erum gengnar alveg upp að hnjám en við þurftum ekki að bera neina poka því prinsinn kom með okkur í allt búðarápið og rogaðist með alla poana alltaf fyrir okkur.Svo að sjálf sögðu borðuðum við góðan mat og létum fara vel um okkur.Það var ekkert svo mjög kalt nema heima hjá Jóel,þar fannst okkur kallt,en það er nú vegna þess að þarna tíðkast ekki að það sé kyndt alveg í botni,kyndingin er rafmagns og það kosta heldur betur dýrt svo fátækir námsmenn eru ekki að splæsa í það þegar þú getur bara sofið í peysu og ullarsokkum.Sem sagt þetta var alveg frábær ferð og við mæðgur eigum örugglega eftir að fara fleiri svona orlofsferðir saman..........Ég vona elskurna að þið hafið líka átt góða helgi og svo óska ég afmælisbörnum undanfarinna daga innilega til hamingju og að sjálfsögðu öllum konum til hamingju með konudaginn á sunnudaginn var.Farið vel með ykkur,...kveðja Ester

Ester

21.2.2009 kl. 11:53

Ég vil óska afmælisbörnum síðustu daga til hamingju með afmælin... hef ekki alveg verið að standa mig í innlitinu hingað á síðuna.
Ekkert nýtt að frétta héðan svosem.. nema að tíminn er á hraðferð held ég, Rakel Bára er 6 mánaða í dag og finnst mér hún vera nýfædd!! Tæplega hálft ár þangað til ég fer að vinna. Skemmtilegir dagar framundan, bolluátið árlega, saltkjöt og baunir og svo auðvitað öskudagurinn. Ég ætla að reyna að dressa mig upp í eitthvert "átfitt" og mæta á öskudagsskemmtun í leikskólanum hjá Alexander, foreldrum er semsagt velkomið að mæta og vera með. Þau fara ekkert út í bæ hér heldur halda bara sína hátíð heima, slá "köttinn" úr tunnunni og fá hollustu nammi. Svo er sungið og eitthvað fleira skemmtilegt.
Veikindi hafa aðeins litið við á heimilinu, aðallega hjá þeim feðgum samt, einhver ógleði og magapest sem þeir fengu.
Væri sko alveg til í að vera í London núna, höfum farið 2 síðustu ár í mars en það verður ekkert þetta árið, því miður. Veit að þær skemmta sér án efa konunglega þarna, og ekki er verra að fara í leikhús og sjá Jóel spreyta sig:) Við sáum Queen-showið síðast og það var æðislegt, mæli með því.
Kveðjur að sinni frá Dalvíkinni

Maja

19.2.2009 kl. 10:15

Hæ.

Óskum afmælisbörnum síðustu daga til hamingju.

Kveðja
Anna Júlía & Arnþór

Anna Júlía

18.2.2009 kl. 21:52

Góða ferð!

Góða ferð elsku mæðgur, Það verður ekkert smá skemmtilegt hjá ykkur! Ég hlakka til að heyra ferðasöguna þegar þið komið heim. Gefið Jóel stórt knús frá okkur. Kveðja
Kolbrún

Kolbrún

18.2.2009 kl. 11:14

Orlofsferð!!!!!

Þá er komið að því,....við mæðgur að skella okkur í húsmæðraorlof til London og ég get lofað ykkur því að við ætlum að skemmta okkur vel.Við gistum hjá Jóel og förum svo á leiksýningu hjá honum á laugardagskvöldið,verður gaman að sjá hvernig hann stendur sig karlinn.Ég hef vonandi alveg dúndur ferðasögu að segja ykkur eftir helgina.Svo er frumsýning líka hjá Freyvangsleikhúsinu á föstudaginn og þar fer auðvita Stefán bróðir minn á kostum ef ég þekki hann rétt svo að þið sjáið að leiklistin er hreinlega í genunum á þessari familíu.Farið vel með ykkur elskurnar.

kveðja Ester

Ester

11.2.2009 kl. 14:53

Heil og sæl öll,.....aðeins að kvitta hér.Innilega til hamingju með littlu prinsessuna Rósa og Jonni og Jósep minn til hamingju með afastelpuna.
Það er allt gott að frétta af okkur,styttist í innrás okkar mæðgna á erfðaprinsinn,ætlum aldeilis að hafa gaman í þeirri ferð.Verst hvað gengið stendur illa svo að maður fer kannski minna í búðir,verður nú samt aðeins að kíkja.Hafið það svo sem allra best elskurnar og knús til ykkar allra.
Ester

Ester

11.2.2009 kl. 14:29

Í gær 10 febrúar fæddist lítil stúlka 7,5 mörk foreldrar eru Rósa og Jonni.og heilsast þeim mæðgum bara nokkuð vel

Jósep

8.2.2009 kl. 20:54

Sælir ættingjar
Líst vel á ættarhittinginn í sumar, búin að taka helgina frá! Annars lítið í fréttum á þessu heimili, við hjónin erum ekki alveg jafn virk í þorrablótunum og Anna Júlía og Arnþór, en náðum samt tveimur góðum sveitablótum sömu helgina. Svo var haldið þorrablót í vinnunni hans Árna, en þar var ekki dansað, aðallega etið og drukkið. Þannig að búin að fá minn skerf af þorramat þetta árið. Ég kann ágætlega við frostið, finnst það hæfa þessum árstíma, yndislegt að fara í gönguferðir með hundinn í svona veðri.
Hafið það gott
Knús

Hulda Jóns

7.2.2009 kl. 2:58

Já maður er alltof óduglegur að kvitta. Við mæðgur sitjum 2 frammi, önnur vælandi og hin pirruð (yfir því að fá ekki að sofa í friði) en sleppir vælinu. Veit ekki hvað er að angra litlu músina mína, er búin að vera kvefuð í rúmar 2 vikur en er nú loksins að byrja að lagast af því finnst mér en þetta er eitthvað nýtt hjá henni. Var orðin dugleg að sofna um 10 og sofa til amk 3, fá sér smá sopa og sofa svo til morguns en síðustu nótt vakti hún og vældi frá 3-6 og vaknaði svo vælandi núna rétt fyrir 2, þrátt fyrir að hafa sofnað óvenju sein í kvöld, eða um hálf 12.
Alexander náði sér í nokkrar gráður um síðustu helgi en er orðinn hinn sprækasti aftur, ekki mikill tími til að vera veikur þegar maður er 2 ára orkubolti. Ég var hálf slöpp í gærdag en náði nú að hrista það af mér strax. Annars bara gott að frétta héðan. Mikið frost búið að vera á Dalvík síðustu daga en afskaplega fallegt vetrarveður. Yndislegt að sólin sé farin að sýna sig í smá stund aftur, það einhvernveginn lifnar yfir manni við það:)
Halla, Jónatan, Linda Björg og Árni kærastinn hennar komu norður um helgina svo við ætlum að eyða hluta helgarinnar á Akureyri, höfum ekki séð þau síðan um áramót.
Kveð ykkur að sinni, kveðjur úr "Vökuslóð" 2c á Dalvík

Maja

5.2.2009 kl. 9:58

Sæl verið þið.

Kannski kominn tími á að reyna að skrifa í blessaða gestabókina enda ég tíður gestur á þessari síðu :).
Það er allt gott að frétta hjá okkur, vinna & skóli, í augnablikinu kyngir snjónum niður hér í Reykjahverfinu og allt er alhvítt. Tíminn er aldeilis fljótur að líða eins og Sissa segir og það er bara kominn febrúar. Það verður komið að ættarhittingi áður en við vitum af, það verður ægilega gaman vænti ég og bara vonandi að sem allra flestir sjái sér fært að mæta, því fleiri því betra :). Það er nóg að gera í Þorrablótsbransanum hjá okkur Arnþóri í ár en við förum á 5. sveitablót í ár. Það er einmitt blót hjá okkur í Reykjahverfinu um miðjan febrúar. Alltaf gaman á þorrablótum finnst okkur :).
Ég vona bara að allir hafi það gott.

Kær kveðja frá Reykjarhólssettinu! ;O)

Anna Júlía Aðalsteinsdóttir & hennar karl.

4.2.2009 kl. 10:10

Halló heil og sæl öll ,loks kem ég mér í að skrifa hér ,annars fylgist ég vel með síðunni lít reglulega inn .jól gg áramót liðin og kominn febrúar þetta líður svo ótrúlega hratt að það verður komið að ættarhittingi áður en við vitum af.svo endilega skráið ykkur á síðuna þau sem eru ekki búin að því þegar og takið helgina frá .en það er síðasta helgin í júní á Kvíslarhóli Annars allt í mestu rólegheitum reyndar skruppum við hjónin suður um miðjan janúar og stoppuðum nokkra daga hjá Höllu og jónatan í Kópavoginum en drengurinn varð 6 ára þann 17.jan og farið í tilefni að því .Búin að fara í Bárðardalinn að blóta þorra ,mamma fór ekki í þetta skipti frekar léleg núna Olla er hjá henni núna svo það er bara fjör hjá þeim .frekar kalt þessa dagana en annars fallegt veður .Annars allt gott af mínu fólki það ég veit .kveðjur til ykkar allra .Sissa

sissa

3.2.2009 kl. 17:50

nei,nei!!!!!!!!..........

...einhver annar en ég búinn að skrifa hér inn............Ég hlustaði á viðtalið við Þórustaðaheimasætuna á sunnudaginn og hún stóð sig með stakri prýði,enda komin af ótrúlega miklu skýrleiksfólki í báðar ættir.Allt gott annars héðan að frétta.

Bestu kveðjur , Ester

Ester

3.2.2009 kl. 11:34

Viðtal við heimasætuna

Sælt veri fólkið...vildi bara deila þessu útvarpsviðtali með ykkur:)
Kveðja úr fjöllunum,
Anna R

http://dagskra.ruv.is/ras2/2009/02/01/

Þórustaðahróin

30.1.2009 kl. 10:34

Er ritstífla í gangi eða..............

Nú er ég búin að slá metið,á orðið hverja færslu hér.Annars er ég nú bara að kvitta,ekkert svo sem merkilegt í gangi hjá mér,bara svona þetta venjulega,við hjónakornin aðeins að rútta til hér hjá okkur,erum að klára í sjónvarpsholinu og svo á að vinda sér í eldhúsið og flikka aðeins upp á það.Ég er strax farin að hlakka til hittingsins í sumar,það verður nottlega bara gaman.Hafið það svo sem allra,allra best elskurnar.

Knús úr Vesturberginu

Ester

Ester

23.1.2009 kl. 15:42

Til hamingju með bóndadaginn......

elsku karlarnir,ungir og aðeins minna ungir eða þannig.Ég efast ekki um að þið hafið allir sem einn hlaupið í kringum húsin ykkar í annari brókarskálminni.
Ósköp erum við nú búin að vera andlaus eitthvað undanfarið,bara enginn að tjá sig hér langa lengi,ég er að verða eins og Kristín forðum daga,á hér aðra hvora færslu þó að það sé með tíu daga millibili,vona nú samt að allir séu hressir og sprækir og þetta sé bara típiskt skammdegisslen sem er að hrjá okkur,ég er sumsé ekki búin að vera hótinu betri.Það er allt prýðilegt að frétta héðan,allt mannheilt og óbrjálað(..meira en hægt er að segja af stjórnarheimilinu...),erum aðeins að ditta að hér hjá okkur,smá málning og svona,annars bara mest að dóla mér.Náði reyndar í útsölumiða hjá Iceland Express um daginn svo að við mæðgur allar ætlum að skella okkur til London um miðjan febrúar og sjá einkasoninn og erfðaprinsinn leika,við þurfum að sjálfsögðu að taka út hvað hann hefur nú lært í útlandinu og sjá hvort honum hefur ekki farið fram,enda ekki seinna vænna,hann klárar í vor.Það verður ekki leiðinlegt fyrir hann að fá okkur allar þrjár eða þannig,við ætlum neblega að gista hjá honum líka.
Hafið þið það svo sem allra best elskurnar og stærðar knús frá mér.

kveðja Ester

Ester

13.1.2009 kl. 20:24

Sælt veri fólkið
Ætlaði nú bara að kvitta fyrir mig, kíki reglulega á síðuna en kvitta ekki alltaf. Við kláruðum að taka Jólin niður um helgina, ég leyfði mér nú samt að skilja eftir eina seríu og nokkra kertastjaka. Annars allt gott að frétta. Vona að allir hafi það sem best.
Kveðja

Hulda Jóns

12.1.2009 kl. 12:15

Heil og sæl öll saman,aðeins bara að kvitta hér.Það er bara allt það besta að frétta héðan,svolítið kalt en það er nú líka janúar svo það er nú bara eðlilegt.Við hjónakornin og Nína og Ásgeir fórum í sumarbústað upp í Munaðarnes um helgina með mágkonu minni og hennar fólki og það var hreint alveg frábært,höfðum það alveg ótrúlega gott og notalegt og fórum svo á laugardagskvöldið í Borgarnes og sáum sýninguna Brák sem er í Sögusetrinu og hún er algerlega frábær,alveg snilld og það skemmtu sér allir alveg konunglega.Ég mæli alveg eindregið með þessari sýningu.Annars gengur nú lífið sinn vana gang hér eins og trúlega víðast hvar,jóladótið að tínast niður í geimslu og hversgagsleikinn tekinn við,en það er líka bara ágætt.Ég vona að þið hafið komið þokkalega sperrt undan jólum og áramótum,það er allavega raunin á þessum bæ.Hafið það svo sem allra,allra best elskurnar og risa knús til ykkar allra.

Kveðja Ester

Ester

7.1.2009 kl. 13:38

Mig langar að senda afmælisbörnum síðustu daga kærar afmæliskveðjur... hef verið heldur ódugleg að kommenta undanfarið.
Árið leggst bara vel í mig... allt að verða eins og það var fyrir jólafrí, gengur að vísu enn soltið erfiðlega að vekja soninn í leikskólann en þetta var nú bara dagur 2 eftir áramótin svo það er alveg fyrirgefanlegt. Skelltum okkur á 13.brennu á Rimum í gær og var það mjög fínt, nema Alexander fannst brennan full heit fyrir hans smekk, vildi ekki vera mjög nálægt. Rakel Bára var hin sælasta. Flugeldarnir voru hins vegar að gera sig hjá Alexander, fannst þeir flottir.
Bestu kveðjur, Maja

Maja

7.1.2009 kl. 0:48

Gleði, gleði

Já, frekar seint í rassinn gripið, en engu að síður vil ég óska ykkur gleðilegra jóla og gleðilegs árs!! Ég útbjó smá jólakveðju á stafrænu formi. Hér er slóðin:
http://www.youtube.com/watch?v=1DexseAX8x0

Halla Jónsdóttir

http://flowerfromvenus.blogcentral.is

7.1.2009 kl. 0:24

Kæru ættingjar

Gleðilegt nýtt ár og til haminju með jólin. Afmæliskveðjur til þeirra sem átt hafa afmæli síðustu vikurnar og bestu þakkir fyrir góðar kveðjur á mínum afmælisdegi um miðjan des en síðan þá hef ég verið á stærðfræðinámskeiði því allt í einu komst ég ekki inn á síðuna til að þakka fyrir. Ég hugsaði sem svo að ekki fengju allir að vera með en......ég plataði ykkur, ég lærði bara að leggja saman.Losnið ekki svo auðveldlega við mig.
Bestu kveðjur og nýársknús, Kristín og Amanda mús

Kristín

4.1.2009 kl. 16:07

Gleilegt nýtt ár!

Mig langar að senda ykkur kærir ættingjar mínir hér á Stafnssíðunni óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir liðið. Ég kíki nokkuð regluleg hér inn á síðuna þó ég hafi ekki kvittað oft. Ég hef mjög gama að þessum síðum.
Guðrún Sigurgeirsdóttir

Guðrún Sigurgeirsdóttir

123.is/lundarbrekka/

4.1.2009 kl. 14:56

Góðan daginn og Gleðilegt ár smá vísukorn eftir Unni Sólrúnu

Ég óska ykkur gleði og gæfuríkra spora,

að greiðfær verði leiðin, aftur muni vora,

aftur komi vermandi sumarið með sól,

síðan fallegt haustið og veturinn með jól.

En tilefnið að ég skrifa hér inn er að benda á rosalega fallegar myndir sem að okkar frábæri ritstjóri er búin að setja inn á heimasíðu sína hérna í tenglum hægra megin
Klikkið bara á Þröst og þar inn á myndasíðuna . Myndirnar sem hann tók á gamlaárskvöld eru snilld

Sæmundur

2.1.2009 kl. 11:35

Gleðilegt ár kæru ættingjar, vonandi komist þið vel undan árinu 2009, sem mér skilst að verði kreppuárið mikla... en við látum það ekki bíta á okkur... verum bara bjartsýn og látum þetta sem minnst áhrif á okkur hafa.
Við eyddum áramótunum á Dalvík með tengdaforeldrum mínum og 2 bræðrum Adda. Fínasti kjúlli í matinn með tilheyrandi góðgæti með. Skutum svo upp flugeldunum og horfðum að sprengjur hinna Dalvíkinganna... ekkert til sparað í þeim efnum þetta árið, enda gott málefni sem við styðjum... við viljum jú láta bjarga okkur ef við lendum í hremmingum;) Alexander fékk að gista hjá ömmu sinni og afa, við Rakel Bára fórum heim að sofa um 2 leytið en Addi skundaði í partý til vinar síns og kom ekki heim fyrr en undir morgun... enda þurfti hann að djamma fyrir okkur bæði í þetta sinn;)
Bestu kveðjur frá Dalvík, Maja og fylgifiskar

Maja

2.1.2009 kl. 10:32

Glænýtt ár.!!!!!!!!!!!!

Kæru ættingjar,óska ykkur geðilegs árs og þakka innilega fyrir allt á því sem liðið er.Svona frá mínum bæjardyrum séð var það nú annars bara alveg ljómandi gott nema kannski svona rétt aðeins smá pirringur eugnablik yfir að missa vinnuna.Við áttum nú aldeilis yndislega helgi með ykkur í Stafni í sumar,fórum í alveg hreint frábæra ferð til Spánar,eignuðumst annan tengdason og eigum von á nýju barnabarni,Jóel gengur alveg glimrandi vel í skólanum úti í London og klára í sumar svo að þið sjáið að þetta var bara eiginlega mjög gott á fyrir okkur.Áramótin vor yndisleg hjá okkur,við vorum 10,mamma,Kolla,Mark og Katrín,Guðlaug hans Stebba bróður hennar maður Vigfús og svo dúllan þeirra hann Stefán Björn(hann er nottlega bara algert krútt sá ungi maður,enda ekki við öðru að búast)og svo auðvita við gömlu og Jóel.Nína og Ásgeir voru heima hjá sér með boð svo að þau komu ekki fyrr en í gærkvöldi og við tókum þá bara annan í Gamlák á það,smelltum bara í hamborgarhrygg og höfðum það næs.Nú er svo bara inní nýja árið stútfullur af bjartsýni og jákvæðni,þetta verður örugglega alveg glimrandi gott ár,allavega alveg pottþétt að við verðum öll að hittast í sumar og það verður nú ekki leiðinlegt.Farið þið nú vel með ykkur elskurnar á nýju ári og megi farsæld og gæfa fylgja ykkur.

Stórt knús og kærar kveðjur til ykkar allra

Ester

Ester

1.1.2009 kl. 22:43

Gleðilegt Árið kæru ættingjar!!
Uppgötvaði rétt í þessu að ég ætlaði nú víst að setja hér inn jólakveðju, aðeins fyrr, en betra er seint en aldrei. Gleðileg jól og gott nýtt ár!!
Áramótapartýið var hjá okkur Árna, þeas. fyrir Sissu og fjölskyldu, allir nema Maja og fjölskylda voru á Dalvík, já og Jónatan hennar Höllu var hjá pabba sínum. Vorum 9 saman, ein vinkona Ingu og Lindu fékk að fylgja með og svo kærasti Lindu. Heppnaðist í alla staði mjög vel og nýju ári var fagnað með bros á vör.
Megi nýja árið veita ykkur gæfu og gleði.
Knús
Hulda og Árni

Hulda Jóns

1.1.2009 kl. 7:34

Kæru ættingjar og fylgifiskar gleðilegt nýtt ár við skulum vona að nýja árið verði öllum farsælt kveðja úr Holtateignum

31.12.2008 kl. 15:06

Áramótin!!!! einusinni einusinni enn :):):)

Jæja kæra frændfólk þá er komið að því að maður þarf að fara að skipta um ártal í kollinum á sér einu sinni enn, rétt nýbúið, annars er þetta hefðbundið hjá manni, búinn að missasig í flugeldakaupum eins og venjulega, því það kemur alltaf upp lítill krakki í manni um áramótin því maður er jú flugelda óður, (það verður víst ekki sægt mann af björgunarköllunum nema sína nótu). En hérna verður eldaður Kalkúnn(hæna á sterum), svona tilraun hefur ekki verið áður, þetta verður að vísu aðeins öðruvísi því að kærasta mágs míns er að vinna til 9 í kvöld er að bjarga mannslífum eins og hún orðaði það vinnur á FSA, svo það verður byrjað á því að fara á árlegu flugeldasýninguna og svo verður etið og drukkið, svo þegar nálgast miðnættið þá örkum við til vina okkar og skjótum upp árinu.Jæja verð að hætta þessu Anna er að missa sig í salatinu verð að fara og fela waldorfinn svo eitthvað verði eftir. Þannig að vonandi hafið þið það gott um áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr. Það gerum við allavega, GLEÐILEGT ÁR öllsömul

Hafþór og Anna

Hafþór

31.12.2008 kl. 15:03

Kæru ættingjar og vinir
Bestu óskir um gleðilegt nýtt ár
takk kærlega fyrir gömlu árin
Verið góð hvort við annað
Hlýjar kveðjur og stórt knús úr Lerkilundi

Gunna

31.12.2008 kl. 15:01

Kæru ættingjar og vinir
Bestu óskir um gleðilegt nýtt ár
takk kærlega fyrir gömlu árin
Verið góð hvort við annað
Hlýjar kveðjur og stórt knús úr Lerkilundi

Gunna

31.12.2008 kl. 1:01

Hehe... Maja, ég sá þetta alveg, fannst bara eins og þið hefðuð verið trúlofuð lengi.... veit ekki afhverju en TIL HAMINGJU MEÐ TRÚLOFUNINA :).

Annars óska ég ykkur kæru ættingjar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir allt það liðna :)
Sjáumst sem oftast á nýja árinu.

Kveðja, Anna Júlía & Arnþór

AJA

30.12.2008 kl. 10:50

Elsku Maja og Addi,innilega til hamingju með trúlofunina og megi gæfan fylgja ykkur.Annars er allt það besta að frétta af okkur hér.Við vorum í Mývatnssveitinni um jólin og höfðum það alveg frábærlega gott,borðum á okkur gat og lágum í leti.Þar hafði ég alla mína afkomendur og þeirra fylgifiska nema einn,Ingibjörg hennar Huldu var í Reykjavík hjá kærastanum.Við fórum svo aftur heim á laugardaginn og svo er bara áramóta partýið okkar,bið borðum alltaf saman á gamláskvöld liðið sem er hér fyrir sunnan,verðum hjá mér og borðum heljarinnar kalkún og annað gúmmulaði,horfum á Áramótaskaupið og svo alla flugeldana og það er nú aldeilis sjón að sjá héðan af svölunum,sennilega eitthvert besta útsýnið í bænum svo að við erum í stúkusæti.Hafið þið það svo gott um áramótin elskurnar og megi gleði og gæfa fylgja ykkur inn í nýja árið.

Með bestu nýárskveðjum til ykkar allra

Ester

Ester

29.12.2008 kl. 20:42

Til hamingju.......

Halló,Maja og Addi til hamingju ósköp hlít ég að sjá orðið illa tók ekki eftir þessu á annan,
en enn og aftur til hamingju
kv.Jófríður.

Jófríður Halls.

29.12.2008 kl. 18:59

Jóla- og áramótakveðja

Kæru ættingjar.
Við viljum óska ykkur gleðilegrar jólarestar og farsældar á komandi ári. Vonandi hafið þið öll átt yndislegar stundir með ykkar nánustu, það höfum við gert og ætlum að halda því áfram fram í nýja árið.
Við gerðum okkur lítið fyrir á aðfangadagsmorgun og settum upp gullhringa á baugfingur, ákváðum þetta fyrir nokkru síðan og fannst aðfangadagur fínasti dagur til trúlofunar... höfum nefnilega lifað í algerri synd þangað til núna;)
Kveðjur frá Dalvíkinni... Maja, Addi, Alexander Már og Rakel Bára

Maja

25.12.2008 kl. 13:01

Kæru ættingjar bestu óskir um gleði og frið á jólum ,kveðja Olla ,Snorri og Marsy.

Snorri

25.12.2008 kl. 10:44

Kæru ættingar,við senðum ykkur bestu jóla og nýársóskir með ósk um farsæld á nýju ári.
Jólakveðjur
fjölskyldan Kvíslarhóli.

Jófríður Hall.

24.12.2008 kl. 16:40

Elsku ættingjar og vinir, við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Vonandi sjáum við sem flest ykkar á nýju ári. Kær jólakveðja Inga, Kolbrún, Mark og Katrín Inga

Gleðileg jól!

24.12.2008 kl. 14:30

Jólin,,,,,,,Jólin,,,,,,,,,,,

Kæra frændfólk vinir og vandamenn, hugheilar jólakveðjur færum við ykkur öllum á þessari jólahátíð (munns og maga),hafið það nú sem flottast og farið nú vel með ykkur elskurnar.
Kærar Jólakveðjur. Hafþór Anna og co

Hafþór

24.12.2008 kl. 12:21

Jóla,Jóla,,,,,,,,,

Kæru ættingjar,megi Guð gefa ykkur gleðileg jól og færa ykkur farsæld á nýju ári.Njótið þess að borða og eiga ljúfar stundir saman,það ætlum við að gera hér í Mývatnssveitinni.

Hjartans þakkir fyrir allar ljúfu stundirnar á árinu sem er að líða.

Jóla kveðjur

Ester og allir hennar fylgifiskar

Ester

24.12.2008 kl. 12:12

VERIÐ GÓÐ VIÐ HVORT ANNAÐ

Kæru ættingjar og vinir, við krakkalausu Þórustaðahróin sendum ykkur ljúfar jólakveðjur héðan úr fjöllunum.
Njótið jólanna og farið með friði inn í komandi ár.
Takk takk fyrir liðna tíma.
Anna og Stebbi

Þórustaðahróin

18.12.2008 kl. 4:36

myndir

vil bara minna á nýjar myndir hjá mér á 123.is/joridur90
hjá mer er allt gott að frétta og stittist í að ég komi heim! kem heim eftir 24 daga!! hlakka til að koma heim og sjá alla
knús og kossar frá chile ;*

jófríður stefánsdóttir

17.12.2008 kl. 15:43

Smá viðbót

Glæsilegar laufabrauðskökur hjá Stafnsfjölskyldunni... og VÁÁÁ... hvað Dedda er lík Ollu... hef aldrei spáð í þetta áður hehe:)

Maja

17.12.2008 kl. 15:38

Jófríður mín... það hefði nú verið gaman að sjá framan í ykkur þegar þið komið til Dalvíkur... en því miður verðum við sennilega allan daginn á Akureyri. En endilega lítið við ef þið eigið ferð hér um aftur;D
Frétti hjá mömmu að hittingurinn hjá Ester hefði verið æðislegur... frábær matur eins og við var að búast og yndislegt kvöld í alla staði. Hefði verið gaman að vera með ykkur þarna en það verður bara að bíða betri tíma:D
Jólatréð komið á sinn stað með tilheyrandi ljósum og skrauti... við Alexander sáum um að koma því upp og skreyta það... hann tók sko fullan þátt í þessu og hafði heldur betur gaman af... enda sést hvaða hluta af trénu hann skreytti... nokkrar greinarnar eru sko með 3-5 kúlum á... og ég ætla sko að láta það vera þannig... svo æðislegt að sjá tréð eftir þessi börn:D
Annars er þetta allt að verða komið bara... örfáar gjafir eftir í kaupum og á eftir að senda jólakortin... löngu búin að skrifa þau en það er bara alltof erfitt að fara á pósthúsið... er örugglega nærri 10 mínútur að labba þetta hehehe;:D
Góðar stundir og njótið hátíðanna ef ég skrifa ekkert meira hér inn fyrir jólin... gleðileg jól allir saman.
Maja og fjölskylda á Dalvík

Maja

16.12.2008 kl. 9:08

Hó hó.

Heil og sæl öll.
Héðan er allt gott að frétta allt að verða til fyrir jólin hjá mér,en gaman hefði að vera með ykkur í hittingnum hjá Ester,en ég læt mér bara nægja að skreppa til Akureyrar,stefni svo á Dalvík á laugardaginn ,annars var ég að velta því fyrir mér hvernig það væri með hænuna hennar Fíu ekki væri nú amarlegt ef hún verpti gulleggjum eins og í ævintýrinu.
Hafið það svo gott kveðjur til ykkar allra
Jófríður.

Jófríður Halls.

15.12.2008 kl. 11:23

Heil og sæl elskurnar.

Allt mjög gott að frétta héðan.Hér var þessi líka frábæri ,,hittingur" á laugardaginn,ég held að það hafi verið í allt einir 25 manns og var alveg ótrúlega skemmtilegt að hitta allt þetta fólk,auðvita mikið skrafað og hlegið og auðvita borðað eins og okkur Stöfnungum er einum lagið.Mikið þakka ég öllum fyrir komuna og skemmtunina.Það var tekið fullt af myndum og ég er alveg viss um að Þröstur setur eitthvað af þeim hér inn á síðuna von bráðar.Gaman að fá að sjá laufabrauðsgerðina í Stafni Fía mín og mér finnst líka alveg frábær hugmynd að taka bara upp hænur í stað krónu.Annars er bara allt gott að frétta af okkur,lífið gengur sinn vana gang og jólastussið tosast áfram og eins og Anna Júlía segir þá koma jólin hvort sem sortirnar eru tvær eða tíu.
Hafið það svo sem allra best elskurnar og heilmikið aðventuknús til ykkar allra.

kveðja Ester

Ester

15.12.2008 kl. 10:41

Sælir ættingjar góðir.

Ég mun vera sprelllifandi, alveg hreina satt!. Þó svo ég hafi ekki verið mjög dugleg að kíkja eða skrifa á síðuna undanfarið sökum anna. Ég er að klára önnina núna í H.Í en búin með námið mitt í Stuðningsfulltrúanum í F.S.H.. Nú getur maður kannski farið að huga að einhverjum jólaundirbúningi af viti, sem er bara gaman & spennandi. Maður hálf hrekkur í kút þegar maður áttar sig á því hvaða dagur er ... aðeins 9. dagar til jóla :). En það er allt í lagi, jólin koma alveg sama hvort til eru tíu sortir eða bara engin he,he. Það er annars bara fínt að frétta af okkur hjónaleysunum í Reykjahverfinu að venju :).
Hafið það gott öll með tölu (og smellu..hehe nei nei).

Anna Júlía & Arnþór

Anna Júlía litla :)

14.12.2008 kl. 20:56

evrur eða hænur?

Já lifandi hænur eða reyndar hani og hæna...reykdælir ákváðu að henda krónunni og taka upp hænur, töldu það góðan kost. En málið er að ég tók að mér að kaupa laufabrauðið og borgaði það með VÍSA ...ég er pínu farin að kvíða skuldadögum er ekki viss um að VÍSA sé hrifið af hænum!!!! Nei , nei bara grín!....en haninn og hænan voru og eru lifandi.

Fía jólapúki

14.12.2008 kl. 17:12

Lagfæring.

Ég varð fyrir truflun í miðjum skriftum áðan svo nafnið datt út.
Bæti hér með úr því.

Hjördís Kristjánsdóttir.

14.12.2008 kl. 17:06

Jólakveðja.

Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.
Þökkum skemmtilegar lesningar á Stafnsíðu á árinu .
Ég hefi ekki verið alltof dugleg að kvitta þótt nokkuð oft hafi ég litið hér inn.En ég get ekki orða bundist yfir svo myndrænni og skemmtilegri lýsingu Fíu í fáum orðum á laufabrauðsdegi í Stafni, lýsingu sem toppar 19 myndir teknar á myndavél og ágætar. En- 400 laufabrauðskökur steiktar og skornar, farið í skóg og tekið jólatré, pakkað í bílinn auk þess sem áður er nefnt, hangikjöti, flatbrauði- --og 2 hænum. Voru þær lifandi eða dauðar? Ég segi bara eins og börnin. Vá..... Finn lyktina af steikingunni , greninu,
heyri skvaldur og hlátra fólksins. Fullkomið jólakort.
Við Geiri sendum ykkur öllum jólakveðjur og þakklæti fyrir allt það liðna.

Heil og sæl öll

14.12.2008 kl. 11:23

Laufabrauð í Stafni

Komið þið sæl öll, í gær 13. des. var laufabrauðsgerð í Stafni af því tilefni set ég inn nokkrar myndir. Eftir myndunum að dæma þá mætti halda að ekkert hafi verið gert nema borðað.en það er ekki rétt því það voru skornar og steiktar 400 kökur. Svo fóru Jón og Óttar út í skóg og sóttu jólatré.þannig að þegar við fórum heim þá var ekkert kreppulegt útlit á okkur, því " í farteskinu" var jólatré, hangikjöt, flatbrauð, laufabrauð og tvær hænur. Bestu kveðjur frá okkur hér á Húsavík

Fía

11.12.2008 kl. 15:31

Oooo... nú langar mig með:) En við ætlum nú að eyða helginni á Akureyri og hér á Dallas. Jólasveinarnir (þeir sem verða komnir til byggða) mæta á svalirnar á Húsasmiðjunni og Kaupfélaginu hér á sunnudaginn og það er víst stemmning, höfum einu sinni farið áður. Í kvöld ætla ég að reyna að plata einhverjar vinkonur með mér á kósý kvöld og kertakvöld í nokkrum verslunum hérna frá 20-22... ef engin nennir með mér fer ég bara ein;) Búin að skrifa öll jólakortin, búin að pakka inn slatta af gjöfum, baka smá (sem reyndar er nú borðað jafnóðum af húsfreyjunni sjálfri... ekki sniðugt að vera heima í fæðingarorlofi hvað það varðar rétt fyrir jólin). Búin að skreyta að mestu, ekki miklar skreytingar hjá okkur, eigum bara eftir að setja upp jólatréð og skreyta það, ætli það verði ekki gert um helgina og þá er allt tilbúið. Við höfum ákveðið að eyða aðfangadagskvöldi í Melasíðunni hjá mömmu og pabba, ekki verið þar síðan við Addi fórum að vera saman svo það er spennandi að vera þar aftur núna. Vorum einmitt hjá foreldrum hans fyrstu jólin hans Alexanders. Líka ágætt að þurfa ekki að standa sjálf yfir öllum pottunum, þó ég reikni að sjálfsögðu með að ég aðstoði móður mína við eldamennskuna... en líka gott að geta gefið dótturinni að drekka rétt fyrir matinn svo hún verði kannski til friðs meðan við borðum;)
Haldiði að sonur minn sé ekki byrjaður að raka sig... 2 ára gamall!!! Kom að honum inn á baði í gær með rakvél þar sem hann hafði gert tilraun til að raka "yfirvaraskeggið" af sér... tókst að skera sig smá... sem betur fer ekki mikið en ég fékk nett sjokk að sjá þetta. Gat að sjálfsögðu ekki reiðst honum þar sem ég skildi sjálf rakvélina eftir þar sem hann gat náð henni. Talaði bara við hann og sagði honum að hann mætti ekki gera þetta aftur, og gekk frá rakvélinni á sinn stað!! Vonandi verður þetta gróið fyrir jólin, sýndist þetta líta bara vel út í morgun.
Ótrúlegt hvað mér tekst alltaf að skrifa langt þegar ég ætla rétt að skrifa nokkrar línur.. best að hætta... Kveðjur frá Dalvík

Maja

10.12.2008 kl. 22:55

Mér sýnist nú bara stefna í ættarmót í borg óttans um helgina, hehe. Góða ferð allir!
Annars ætla ég bara að halda mig á Akureyrinni, vinna og jólastússast eitthvað.
Kveðja

Hulda Jóns

10.12.2008 kl. 18:15

Halló allir erum á leiðinni í borg óttans

Erum að skreppa í kreppusitty að eyða tímanum fyrir jólin, verðum í sambandi!!! vonandi kv haffi

Hafþór

10.12.2008 kl. 9:45

Ferðalangar,...

Það væri nú alger snilld ef við gætum nú bara hittst öll hjá mér á föstudag eða laugardag og gert okkur glaðan dag.Verum endilega í sambandi.

Ester

Ester

9.12.2008 kl. 23:01

Er á leið í borg óttans á morgun, miðvikudag....

Sissa, ég og Svala erum að leggja í hann til Reykjavíkur upp úr hádeginu á morgun, miðvikudag og aftur heim á sunnudag. Verum í sambandi.
899-5016

Þröstur og Svala

Þröstur Kolbeins

9.12.2008 kl. 22:38

Ester mín ég reyni hvað ég get fæ kanske Auði í lið með mér .Kem núna á fimmtudag ef af verður og stoppa framm á sunnudag.kveðja Sissa

sissa

9.12.2008 kl. 2:08

Jæja...

...þá er ég búin að kveikna á jólatrénu.

Nína Björg

8.12.2008 kl. 11:37

Sissa

Sissa mín,ef þú kemur suður þá lætur þú nú verða af því að kíkja í heimsókn,ekki spurning.Getum nú aldeilis gert eitthvað skemmtilegt úr því.
kveðja Ester

Ester

7.12.2008 kl. 22:20

Jólaandinn já ,var einmitt að koma af aðventukvöldi í Glerárkirkju það var að venju ósköp notarleg stund.Við hjónin fórum á jólahlaðborð í Sveinbjarnargerði um síðustu helgi vinnan hans Jóns.þar voru miklar og góðar kræsingar .segi eins og mæja hefði getað hugsað mér að borða þar aftur næsta morgun.Annars fórum við til Dalvíkur á föstudaginn að passa barnabörnin ,meðan hjúin fóru á jólahlaðborðið.við gistum þar ,því á laugardaginn var danshópurinn okkar Vefarinn ða sýna þjóðdansa og aðra dansa með jólalögum,bæði á Dalbæ á Dalvík og á Hornbrekku á Ólafsfirði ,sem eru elliheimilin þar.tókst að venju vel.eigum eftir að sýna á Hlíð sem er elliheimilið hér í bæ og svo á Glerártorgi 20.des.Ég er búin að skreyta smá og baka slatta og búin með smá þrif ,búin að skrifa jólakortin og pakka smávegis inn.Fer að klára þetta og taka það svo rólega ,jafnvel að kíkja suður á Höllu og Jónatan ,annars koma þau til okkar um jolin,segi gott að sinni hafið það gott elskurnar og verið góð hvert við annað og hugið að jólaandanum hann er svo mikilvægur.kveðjur til ykkar .Sissa

sissa

7.12.2008 kl. 13:13

Sælir ættingjar
Verð að viðurkenna að ég hef ekki verið dugleg að kvitta fyrir mig en fer samt reglulega á síðuna. Væri gaman að heyra frá fleirum.
Hjá okkur er allt við það sama, ég er nú ekki komin langt í jólaundirbúning, tók nú samt fram jólakertastjakana í vikunni en ætla svo helst að fá eiginmanninn til að skella seríum í glugga. Við erum nú ekkert rosaleg í skreytingunum. Annars fer að verða meira að gera hjá mér, þar sem ég vinn nú í verslun, þannig að ég stefni að því að reyna að koma sem flestu í verk í þessari viku. En ef ég þekki mig rétt, á ég eftir að vera á síðustu stundu með eitthvað eins og venjulega. Maður má nú ekki breyta of mikið út af venjunni :o)
Annars fórum við hjónin á jólahlaðborð með vinnunni hans á föstudagskvöldið, fórum á Friðrik V og rákumst einmitt á Ollu frænku. Alltaf gaman að rekast á ættingjana.
Hafið það gott
Knús
Hulda Jóns

Hulda Jóns

7.12.2008 kl. 10:39

Mikið er ég sammála Jófríði frænku minni með aðventutónleika... það einhvernveginn kemur yfir mann einhver sérstakur jólaandi við að fara á svona tónleika. Hef reyndar ekki farið í nokkur ár en hef einmitt hugsað mér að fara núna, held það sé í kvöld hér á Dalvík. Við fjölskyldan kíktum smástund á Kertakvöld í blómabúðinni hér á Dalvík í vikunni og það var mjög notalegt, langar að fara aftur í þessari viku. Við hjúin skelltum okkur svo á Jólahlaðborð með vinnufélögum Adda á föstudagskvöldið og ég get bara sagt það að ég hef aldrei farið á hlaðborð þar sem ég hef smakkað á öllum forréttunum, fundist þeir góðir, farið aftur og fengið mér af öllum réttunum aftur. Þetta var bara það besta sem ég hef smakkað lengi... og mig langði í þetta þegar ég vaknaði í gærmorgun og langar enn:)
Erum búin að þrífa aðeins og skreyta en ætlum að klára þetta í næstu viku og um helgina. Ég var svo sniðug að ég ákvað að halda mömmuhóp á þriðjudaginn eftir rúma viku og gerði ég það eiginlega bara til þess að ég myndi drífa mig að klára það sem klára þarf, þrífa og laga til... fínt að hafa svona pressu á sér;) Þannig vinn ég mjög vel. En nú er best að fara að koma sér í einhverjar spjarir og skella sér í höfuðstað okkar Norðlendinga í verslunarferð... reyna að kaupa það sem eftir er af jólagjöfunum.
Hafið það gott... Maja og allt hennar lið á Dalvík

Maja

7.12.2008 kl. 9:50

Jólaandinn

Heil og sæl elskurnar,ansi rólegt hér á síðunni þessa dagana,allir sjálfsagt komnir á kaf í jólastúss.Af okkur hér er allt bara ljómandi gott að frétta,við hjónakornin vorum með jólahlaðborð fyrir fólkið í vinnunni hjá Sæmundi í gær og það tókst bara alveg ljómandi vel held ég,allir ánægðir og enginn orðið veikur eftir því sem ég best veit.Svo er maður bara svona að jólastússast aðeins,setja upp seríur og annað jóladót eins og gengur,búin að kaupa megnið af jólagjöfum og svona,...er reyndar ekki farin að gera laufabrauð,það verður sennilega gert um næstu helgi.Svo er maður bara kominn í bullandi jólaskap og ég vona að þið séuð það líka.Verið þið svo áfram hress og kát elskurnar og látum jólaandann ráða ríkjum

kveðja Ester

Ester

6.12.2008 kl. 13:30

Aðventan

Sæl öll langt síðan ég hef kvittað,en áhveð að gera það núna þar sem mikil róleguheit eru hér í gestabókinni.
Hér er verið að undirbúa jólin eins og annarsstaðar búin að þrífa eins og ég ætla,svo þá er bara að skella sér í smá bakstur milli þess sem farið er í vinnu.
'I hvöld ætlum við hjónin að fara á jóahlaðborð og leiksýninguna Upprisu holdsins sem er eftir Hörð Ben.á Hömrum,á morgun ætla ég svo að fara á aðventutónleika Kirkjukórs Húsavíkur sem ég sleppi helst ekki af því þá kemst ég í jólaskap,ég sendi ykkur öllum bestu kveðjur og vona að þið hafið það gott ,kveðjur frá okkur á Kvíslarhóli.

Jófríður Halls.

1.12.2008 kl. 10:01

Sæl öll.

Afmælisbörn undanfarið, TIL HAMINGJU :D ;).
Hafið það öll sem best.

Kveðja, Anna Júlía & Arnþór.

AJA

30.11.2008 kl. 19:28

Aðventan

Gleðilega aðventu allir nær og fjær... nú finnst mér óneitanlega vera farið að styttast í jólin... fyrsti í aðventu í dag. Hafið það gott í desember og munum eftir náungakærleiknum... höfum jólanandann í hjartanu og missum okkur ekki í jólainnkaupunum, hvorki í mat, gjöfum eða jólaskrauti... jólin koma:D

Maja

22.11.2008 kl. 14:19

Alltaf svo gaman að lesa hvað fólk er að gera og hvað er að frétta. Við mæðgur, ég, Rakel Bára og mamma, skelltum okkur í borgarferð á sunnudaginn síðasta og komum heim á fimmtudaginn. Vorum í góðu yfirlæti hjá Höllu systur og Jónatan, voða notalegt. Fórum svo þennan venjulega norðlendingarúnt, Smáralind, Kringlan og Ikea, ásamt nokkrum öðrum stöðum. Rakel Bára var mjög góð á leiðinni suður og norður, þurftum ekki að stoppa nema einu sinni á norðurleiðinni til að gefa henni að drekka í Staðarskála og fengum okkur að borða líka. Síðan bara svaf hún það sem eftir var ferðalagsins þangað til við komum til Akureyrar. Algjör ferðaengill semsagt.
Annars bara gott að frétta héðan. Ekki byrjuð að skreyta en það verður örugglega byrjað á næstu dögum eitthvað. Jólahlaðborð með vinnustað Adda 5. des, litlu jól í minni vinnu 18. des og í saumaklúbbnum mínum 19. svo þetta verður bara gaman. Ætla svo að reyna að komast í myndatöku með börnin til hennar Önnu Júlíu í næstu viku og reyna að fara að klára sem mest af jólagjöfunum... þá get ég bara slakað á það sem eftir er:D
Kveðjur frá Dalvík

Maja

21.11.2008 kl. 12:42

Sæl og blessuð elskurnar,maður er alveg liðónýtur við að kvitta hér þessa dagana,einhver doði í gangi sýnist mér.Það er nú svo sem ekki mikið að frétta héðan,liðið mitt úr Mívó var hér um hegina síðustu og það var alveg ljómandi gaman hjá okkur,var smá afmælisboð í leiðinni því Hulda átti afmæli á laugardaginn,(langt síðan ég hef verið með barnaafmæli).....Nína og Geiri eru í Róm að hafa það huggulegt,ekki amalegt það á þessum síðustu og verstu.........svo kemur Jóel heim í jólafrí á mánudaginn svo það er nú bara ýmislegt í gangi hjá mér og mínum.Svo er ég nú bara aðeins farin að huga að jólastússi og svona,nefnilega aðeins að byrja að átta mig á að ég hef nógan tíma til að dúlla mér í því þegar vinnan er ekki alltaf að slíta sundur fyrir manni daginn.Annars gengur nú lífið svo sem mest bara sinn vana gang hér hjá okkur gömluskörunum þrátt fyrir allt krepputal,sé ekki svo mikinn mun á daglegum venjum,nema auðvita að ég þarf ekki að mæta í vinnu á morgnanna en maður bara finnur sér eitthvað til að dunda við það verður ekkert mál.Ég vona að þið séuð öll bara hress og kát og séuð farin að hlakka til jólanna,ég veit að það er ég farin að gera,hef alltaf verið mikið jólabarn og hlakkað mikið til þeirra.Verið nú dugleg að skrifa hérna inn,það er svo gaman að fylgjast með ykkur elskurnar.........og svo bara stórt knús til ykkar allra.

kveðja Ester

Ester

17.11.2008 kl. 19:56

Sælir ættingjar
Óska afmælisbörnum mánaðarins til hamingju!!
Við vorum í laufabrauðsgerð á laugardaginn á Kálfborgará. Þar hittust Maja og börn hennar Helgi, Sissa og Jófríður ásamt fjölskyldum. Held að hafi verið skornar 500 kökur. Mikil gleði eins og venjulega.
Við eiginmaðurinn fórum svo um kvöldið að fagna 65 ára afmæli tengdaföðurins, fengum léttan kvöldverð og skelltum okkur svo á tónleika með 200þús naglbítum og lúðrasveit verkalýðsins. Svo partý fram eftir nóttu.
Nóg að gera hjá okkur þessa helgi.
Kveðja

Hulda Jóns

16.11.2008 kl. 14:16

Bráðum koma blessuð jólin...

Já þau koma sko bráðum eeeen fyrst þá ætla ég til útlanda. Ég og kallinn erum að fara til Ítalíu á þriðjudaginn. Náðum svo assgoti góðum díl, fengum þetta þegar evran var 120 ;) Þetta átti reyndar að vera verslunarferð en ég held hún verði nú barasta skoðunarferð.
Áður en ég fer er ég samt að hugsa um að setja upp svo sem eins og eina jólaseríu í gluggann, ekki veitir af í þessu árferði að lýsa upp götur Íslands.
Hafið það sem allra best á meðan.

Nína (og Geiri)

11.11.2008 kl. 20:54

Sælir ættingjar
Ég er með ritstíflu þannig að þið fáið bara bros!!
:o)
;o)

Kveðja

Hulda Jóns

10.11.2008 kl. 18:30

Kreppuvísa

Fékk þessa vísu senda frá félaga mínum. Fyrst Sæmundur er farinn að senda inn vísur þá er þessi alveg byrtingar hæf. Langaði að deila henni með ykkur.

Þótt veraldargengið sé valt
og úti andskoti kalt
Með góðri kellingu
í réttri stellingu
bjargast yfirleitt allt.

Kv Haffi


Hafþór

9.11.2008 kl. 14:46

Þakkir

Falleg orð sem einhver okkur gefur

eins og ljós sem myrkrið blítt umvefur,

í gullfallegar línur þau ég legg,

þau lífsins eru dýrmætustu egg.

Hafið þökk fyrir góðar kveðjur

e.s ljóðið er eftir Unni Sólrúnu

Sæmundur

8.11.2008 kl. 0:34

Datt í hug að setja þessar ljóðlínur hér inn úr ljóði eftur stúlku sem heitir Unnur Sólrún Mér finnst þær við hæfi nú

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur,
faðma þennan morgun og allar hans rætur,
hita mér gott kaffi, af kærleik þess ég nýt.
Kexið smyr með osti, í blöðin svo ég lít.

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest:
Þetta er góður dagur, hafðu það sem best.
Ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni.
Faðmlag þér ég sendi, og kveð þig nú að sinni.

sæmundur

7.11.2008 kl. 12:44

Heil og sæl elskurnar,bara að kvitta aðeins og láta vita að við erum á lífi og við hesta heilsu.Var að koma norðan úr landi í gær,var þar í eina viku,fór í Mívó og lét stjana við mig þar í nokkra daga og svo inná Akureyri og var þar í 3 daga í góðu yfirlæti hjá Þresti og Svölu og hitti bara fullt af ættingjum.Þetta gat ég gert af því að ég er ekki í vinnu núna svo að þið sjáið að það eru allskonar skemmtilegir kostir í þeirri stöðu,svona minnsta kosti meðan maður fær launin sín í uppsagnarfrestinum.Annars er bara allt ljómandi gott að frétta héðan og bara hin mestu gleðitíðindi af mínu fólki eins og þið hafið séð í fréttapistlinum hennar Nínu minnar svo við kvörtum sko alls ekki neitt.Nú fer maður bara að huga svoldið að jólstússi og nýtur þess að hafa nógan tíma til að dúlla sér í því,það er nú að verða ansi langt síðan maður gat það.Svo er bara knús til ykkar allra og verum svo bara hress og kát elskurnar,.....kveðja Ester

Ester

6.11.2008 kl. 1:42

Sælir ættingjar. Verð því miður að játa mig seka um að hafa ekki farið inná síðuna í nokkra daga. Til hamingju Nína með tilvonandi erfingjann.. alltaf svo gaman að fá svona fréttir. Sammála Ollu... fínt að vera leikskólakennari núna, er reyndar lsk.kennari í orlofi en fæ vonandi að koma aftur inn að loknu orlofi... ekkert um uppsagnir þar:) Snjórinn er búinn að minnka talsvert hér þó enn séu háir snjóhólar hér og þar um bæinn, það sem rutt var af götunum. Húsfreyjan á heimilinu að detta í jólagírinn, farin að dusta rykið af jóladiskunum og komin með tusku í aðra höndina a.m.k:)
Knús frá okkur mæðgum (næturbrölturunum)

Maja og Rakel Bára

5.11.2008 kl. 22:50

sælir ættingar nær og fjær! Innilega til hamingju Nína,,,gott að fá svona ánægjulegar fréttir! Annars er lítið að frétta af mér,ég ber mig nú bara vel í þessu ástandi hérna núna. Er guðslifandi fegin að vera leikskólakennari og á vonandi ekkert von á neinu uppsagnarbréfi. Vona að allir hafi það sem allra best! kveðja frá Akureyri

Olla

4.11.2008 kl. 17:30

Fréttir af Snorrabrautinni

Það hefur nú margt gerst hérna á Snorrabrautinni síðan ég kvittaði síðast. Þann 30 september var mér sagt upp ásamt fleiri, úr SPRON, vegna fyrirhugaðrar sameiningar þess við Kaupþing. (Þeir hefðu nú betur sleppt því). Þann sama dag fékk ég staðfestingu á því að ég væri ófrísk. Svo sá dagur var atburðamikill. Ég er nú komin í aðra vinnu, eins og mamma sagði. Ég rúlla tortillum upp fyrir Serrano á Hringbraut. Svo sem ekki mest spennandi vinnan í þessum heimi en peningar eru peningar.
Í kjölfar óléttunnar varð ég að láta annan köttinn minn fara þar sem hún fylltist sjúklegri verndartilfinningu í minn garð og réðst á alla sem komu nálægt mér. Þótt það sé krúttlegt þá er það ekki akkúrat það sem mann vantar. Svo Ingibjörg dóttir Huldu systur tók hana bara fyrir mig. Hinn kötturinn er nú í fínu lagi, sefur bara 20 tíma á sólahring og vill borða og fá klapp hina 4 tímana.
Barnsfaðirinn er þessi olíuborni gæi sem flutti inn á mig. Hann heitir Ásgeir Þór Arnar og kemur af Svalbarðsströndinni. Hann er rafeindavirki og starfar fyrir akureyskt fyrirtæki sem heitir Nortek. Okkur gengur bara mjög vel og þótt þetta barn sé að koma aðeins í fyrra fallinu þá erum við bæði hæst ánægð með það.
Eina spurningin er bara hvort að Ása ljósa geti ekki farið að vinna aftur fljótlega ;-)

Nína Björg

4.11.2008 kl. 8:57

Logn í dag.

Heil og sæl öll ætla að kvitta núna annars kíki ég flesta daga á þessa síðu,hér er allt gott að frétta af mínu liði enn halda allir vinnunni og það er fyrir öllu,búið að vera mjög hvast hér undanfarið en það er þá bara í stíl við annað í þjóðfélaginu,svo sendi ég ykkur mínar bestu kveðjur og vona að þið hafið gott.....ps.brosið svo framan í hvert annað.....kv....

Jófríður Halls.

30.10.2008 kl. 1:43

heimsborgari

langaði bara að monta mig af hitanum á meðan það hraunar niður snjói þarna hinum megin á hnettinum :D
það fer daglega upp í svona 30 stiga hita sem er frekar erfitt í skólanum og erfitt að halda sér vakandi við það,en ég lifi, er smá brunnin í kinnum er samt ekkert rauð en mér svíður all svaðalega, svo var ég að dansa greeas í skólanum og í þessum töluðu orðum er ég að setja inn myndir frá því inn á 123.is/jofridur90 og getið þið kíkkað á það :D
annars klára ég skólan 19 nóvember og fer á smá flakk til suður chile held ég svo fæ ég að útskrifast hérna með rauðan kassalagan hatt og rauðum kyrtli svo þann 8 jan mun ég leggja af stað heim :D 73 dagar í þetta :D

jæja kveðjur frá alltof heita Chile :D

abrazos y besitos ;*

jófrídur stebbadóttir

chilestelpa.bloggar.is

27.10.2008 kl. 9:56

*Brosið framan í heiminn...

....og þá mun heimurinn brosa framan í ykkur* :).
Já ég var í síðustu viku í borginni í skólanum. Átti bara fína viku, mjög gaman að fara í skólann og hitta andlit sem maður hafði aldrei séð eða bara 1x en bara átt samskipti við í gegn um síma eða á netinu. Einnig mjög gaman að hitta kennarana en það var samt enginn tími til að gera neitt nema að læraaaaa. En eins og Sissa nefndi urðum við Arnþór strandaglópar á Akureyri og fengum gistingu hjá henni Ömmu okkar, við vorum þar á föstudagskvöld og þangað til seinnipart á laugardag sem var auðvitað mjög gaman.
Við vorum svo heppin að komast yfir skarðið um 18. leytið á laugardag, þurftum bara að bíða fyrir neðan skarðið í klukkutíma eða svo (hvar eru GÖNGIN HA???) hehe. Það var afar ljúft að koma heim í sveitasæluna :). Er varðar kreppuna tek ég undir það sem vinur minn i skólanum segir oft ,,Kuldi & kreppa bíta ekki á mig", finnst það gott mottó. Held að sé mikilvægt að halda ró sinni á þessum tímum og ég tek undir með Maju frænku minni að það sem skiptir mestu máli í þessu blessaði lífi kostar einfaldlega ekki neitt (og við skulum ekki gleyma því).
Við eigum eftir að lifa þessa kreppu af, var að horfa á þátt á discovery í gær þar sem hann sýnir manni hvernig maður getur lifað af náttúrunni, það er nú heilmargt sem maður getur ,,étið" þó það væri kannski ekki með bestu lyst haha. Vonum að til þess þurfi nú ekki að koma :).
Hafið það öll sem best kæru ættingjar nær & fjær!
Kveðja af Reykjarhólnum, Anna Júlía & Arnþór.

Anna Júlía

26.10.2008 kl. 13:32

Fréttir úr Keilusíðunni.

Héðan úr Keilusíðunni er, þrátt fyrir allt, nokkuð gott að frétta. Við gerum reyndar fátt annað en fara í vinnuna á morgnanna og ef þörf er á, þá skeppum við í Bónus. Þannig að lífið hér er hverdagslegt og tilbreytingalaust. Horft á sjónvarp og skoppið í tölvu til að drepa tímann. Úti hefur geisað óveður bæði í veður og fjármálaskilningi. Við reynum bara að standa þau bæði af okku. Svona sem undantekningu frá reglunni þá fór ég á myndavélanámskeið til Þórhalls í Pedrómyndum í síðustu viku. Þar reyndi ég að læra á nýju Canon 400D myndavélina mína. Lærði nokkur trikk en betur má ef duga skal og þarf ég að vera duglegur að fikta og spyrjast fyrir. Reyni að hafa vélina með þegar ég fer af bæ til að safna fleiri myndum af ættingjunum, til að setja í gagnagrunn fyrir síðuna. Á nokkuð af myndum en ekki allar góðar.
Sendi ykkur öllum knús á þessum síðustu og verstu......

Kveðja úr Keilusíðunni
Þröstur

Þröstur Kolbeins

26.10.2008 kl. 10:12

Hæ hæ héðan er allt í nokkuð góðum gír snjóar bara og snjóar við Jón ætluðum að hjálpa til við slátrun á Arndísarstöðum í gær en það var ófært bæði VÍKURSKARÐ og líkaDalsmynnið allan daginn en opnaðist smástund um kvöldmatarleitið þá hefði verið gott að hafa Vaðlaheiðargöng.Mamma var svo heppin að hún fékk næturgesti en það voru Anna Júlía og Arnþór voru að koma að sunnan en komust ekki lengra út af ófærð austur yfir skarðið .annars BARA STÓRT KNÚS TIL YKKAR FRÁ OKKUR.SISSA OG JÓN.

sissa

25.10.2008 kl. 22:17

KNÚS

Takk fyrir KNÚSIÐ Maja það veitir ekki af á þessum síðustu og verstu tímum.Af okkur er allt gott að frétta,við rolumst þetta gömlu skörin,eg segi að eina sem við förum er í BÓNUS!!!!!!!!.Bara KnÚS til ykkar allra Ása

Ása

24.10.2008 kl. 19:36

Langar svo að senda ykkur öllum STÓRT KNÚS* Alltaf svo gott að fá knús;)
Snjókveðja frá Dalvík

Maja

23.10.2008 kl. 11:03

Sæl og bessuð elskurnar,það er að verða ansi langt síðan maður hefur kvittað hér,eiginlega alveg til háborinnar skammar,reyndar er fólk greinilega eitthvað andlaust sýnist mér,vona að menn séu ekkert að missa móðinn í þessu rugl ástandi sem ríkir núna.Það er nú helst að frétta af mér að ég misti vinnuna um daginn í bankahruninu mikla eins og svo margir aðrir,en maður tekst bara á við það eins og annað í lífinu,það kemur dagur eftir þennan dag og mér leggst örugglega eitthvað til eins og alltaf.Það eru allir frískir og hressir og það skiptir nú mestu máli þegar upp er staðið.Annars er nú sem betur fer allt nokkuð við það sama,Jóel bara að sinna sínu í skólanum í London og verður ekkert var við nein illindi út í Íslendinga þar,segist bar lesa um það á Íslenskum síðum á netinu svo þetta er nú líklega allt svolítið orðum aukið held ég.Svo er fólkið mitt í Mívó bara hresst méð sína hunda og ketti og hesta svo þetta er barasta allt í góðum gír sýnist mér,já og Nína búin að fá aðra vinnu og karlinn minn enn með sína svo þetta er nú bara allt í góðu hér.Vona að þið séuð líka barasta öll í góðum málum elskurnar og verum nú endilega dugleg að nota okkur þessa síðu til að fylgjast með hvort öðru því á svona tímum finnur maður best hvað það er sem skiptir mann mestu máli í lífinu,nefnilega fólkið manns.Hafið þið það nú sem allra best elskurnar,.......og heilmikið kreppuknús til ykkar allra.

Ester

Ester

20.10.2008 kl. 13:54

Vetur konungur mættur til Dalvíkur... manni varð bara kalt að heyra í veðrinu í morgun svo við mæðgur ákváðum að vera ekkert að stressa okkur á fætur... sváfum til að verða 12 og skömmumst okkar sko ekkert fyrir það;) Það er svona þegar maður vakir fram á nætur... þá safnast þreytan upp og þá er sko gott að sofa.
Annars bara fínt að frétta af okkur... nóg að gera á heimilinu eins og vanalega... stóri bróðirinn lætur foreldrana sko alveg hafa fyrir sér, er farinn að vera mjög erfiður á kvöldin að fara að sofa... enda er náttúrlega bara asnalegt að þurfa að fara að sofa kl. 8 þegar litla systir má vaka lengur... ekki alveg sáttur með þetta. En vonandi verður Rakel Bára dugleg að fara að sofa þegar hún hættir þessu næturveseni sínu og þá getum við vonandi vanið Alexander aftur á sinn svefntíma. Við reynum bara að vera bjartsýn á þessum svörtu tímum og hugsa ekkert of mikið um það sem er að gerast í þessu þjóðfélagi... reikna ekki með að fara til London þennan veturinn eins og 2 síðustu... svo ég get ekki séð leikritið hans Jóels;) En þetta lagast vonandi... meðan þetta er svona verðum við bara að vera extra góð við hvert annað, gefa fullt af knúsum því þau kosta ekkert og halda geðheilsunni. Sjáumst svo vonandi hress að vanda.
Kveðja frá Dalvík City... Maja og fjölskylda

Maja

14.10.2008 kl. 21:51

Sælir ættingjar,

langaði bara aðeins að kvitta fyrir mig hérna þarsem maður skoðar þetta nær daglega eða svona allt að því.
allt gott að frétta af mér bara á fullu að æfa leikrit sem ég ætlaði einmitt að segja ef einhver er í london dagana 30. okt til2 nov ( kannski ekki liklegt í ljosi kreppunar en maður veit aldrrei) þetta er voða flott verk og spennandi að vinna í þannig endilega láta mig vita ef þið eruð í lodnon og langar að sjá mann leika þá gæti ég bokað miða

en allavega vona að þið seuð öll jakvð og hress
íslendingar eru bunir að redda sér á "þetta reddast" frá því að ingólfur mætti á svæðið og það fer ekki að breytast núna:)

kv, Joel

Joel

12.10.2008 kl. 21:27

Jæja loksins komin í samband.

Halló allir ættingjar, er nú loksins komin í gott samband (það er að sega netsamband),annars allt gott að frétta af okkur hróonum vorum að flytja okkur um set, duttum í lukkupottinn og seldum íbúðina korteri fyrir kreppu, þannig að við brosum út í annað, ég verð nú kannski duglegri að skrifa hér á síðuna því að nú er allt í góðu, annars til lukku með afmælis dagana ykkar kæru ættingjar nær og fjær til sjávar og sveita, nei nei ekki missa sig allveg.
Annars allt í góðu og bestu kveðjur til ykkar allra.

Hafþór og Anna

Hafþór

9.10.2008 kl. 11:03

Þakkir

Hjartans þakkir fyrir hlýjar kveðjur.Héðan er allt fínt að frétta við hjónin höfum hvort annað og alla hina svo fær maður sér bara eitthvað gott í kroppinn í öllu þessu róti og reynir að njóta þess sem maður hefur sem er nú bara ansi margt.Kanski verða þessar þrengingar til þess að fjölskyldur þjappi sér saman og gefi sér meiri tíma til að sinna því sem skiftir sennilega meira máli en marg prjálið.Baráttukveðja úr sveitinni þar sem gleðin býr í hjartanu
Stefán

Stefán G

5.10.2008 kl. 21:37

Hugs hugs í bjartsýni;) Ég er sammála ykkur frænkur... þýðir lítið að leggjast í volæði ... þetta hlýtur að lagast einhverntímann.. verðum bara að vera róleg og jákvæð þangað til og reyna að halda okkur á mottuni í eyðslunni:)

Maja

4.10.2008 kl. 17:22

Pollýönnuandinn er rétti andinn, styð þessa hugmynd ykkar!! Hlutirnir gætu nefnilega alltaf verið verri. Þessi andi hefur sko margoft komið manni til hjálpar á erfiðum tímum. Eina vitið er að vera bjartsýnn og jákvæður og láta þessar svartsýnisumræður ekki ná tökum á manni.
Ef allir myndu nú fara að hugsa jákvætt, þá gætu nú bara hlutirnir breyst, þannig að ættingjar góðir, tökum okkur saman og verum bjartsýn.
:o) :o) :o)


Hulda Jóns

4.10.2008 kl. 16:52

Komiði sæl!

Já, tek undir með Ester með Pollýönnuandann ;) Auðvitað er maður nú orðinn svolítið sótsvartur af neikvæðni vegna undanfarinna daga, ekki var ég hamingjusöm þegar ríkið keypti 75% í Glitni, krónan bara fellur, bensínið bara hækkar eins og jú allt annað...en nú er ég hætt. Pollýanna er mætt á svæðið, já Anna Júlía Pollýanna ;).
Ég er búin að vera að vinna núna um helgina, en verð í fríi á morgun því ég ætla í afmæli til systursonar míns, hans Ísars Hjalta, en stubburinn er sko orðinn 1.árs ;). Já tíminn líður aldeilis!. Annars er allt bærilegt bara held ég, lífið gengur sinn vanagang, verð einmitt að segja að ég er búin að vera ferlega andlaus eitthvað undanfarið og ekki haft mikið að segja, en engar fréttir eru í raun góðar fréttir svo það er bara ágætt ;). Ég vona auðvitað að þið öll hafið það gott og veriði bara dugleg að kaupa innmat - hann er sko billegur... en ég er nú svo sem ekki mikið fyrir slíkt... hóst.... jú borða nú steikta lifur & súra blóðmör með hungurgraut (eins og afi sagði alltaf).. jæja nóg bull í bili! :)
Er ekkert að frétta hjá ykkur hinum?

Kveðja, Anna Júlía

Anna Júlía ;)

4.10.2008 kl. 9:50

Komið þið nú sæl og blessuð elskurnar,maður er bara alveg búinn að vera andlaus og ekkert skrifað hér inn í langan tíma,þetta nær bara engri átt.Það er búið að vera allt svo undirlagt af þessari svartsýnis umræðu síðustu daga að maður fer að verða þunglyndur og þá er bara að drífa upp ,,pollýönnuandann"og það var bara ekkert mál,alhvít jörð í Reykjavík og glaða sólskin og logn,ekki veit ég hvað menn vilja hafa það fallegra svo eru allir frískir og hressir af mínu fólki svo ég sé ekki annað en allt sé eins og það á að vera,hitt lagast örugglega einhvern tíman.Annars er svo sem ekkert að frétta hér hjá mér eins og ég sagði,allt við það sama.Verið þið nú hress og kát elskurnar. Kveðja Ester

Ester

2.10.2008 kl. 17:47

Frábært! ;)

Bara ný uppfærsla á 123.is ;) og allt virðist í lagi ;)!
Jibbý ;)

Hafið það gott öll með tölu og verum dugleg að skrifa fréttir af okkur hérna inn ;)

Kveðja Anna Júlía frænka ;)

AJA

1.10.2008 kl. 16:59

Hér ...

hlýtur að vera maðkur í mysunni!

Fór inn en sá ekki hvað þetta gæti verið. Hugsanlega einhverjir tækniörðuleikar hjá 123.is.
Þetta hlýtur að komast í lag fljótlega.

Kv.
Anna Júlía

AJA

1.10.2008 kl. 16:26

Nei Mæja þetta er ekki tölvan þín mín er svona líka.bara að láta vita .kveðjur Sissa

sissa

1.10.2008 kl. 10:32

Hvað "skeði" eiginlega fyrir síðuna??? Ætlaði að fara að skoða hvort eitthvað nýtt væri komið inn en þá var hún bara tóm... fyrir utan hluta úr myndum og texta neðar á síðunni?? Eða er þetta kannski bara tölvan mín?? Bara að forvitnast.

Maja

1.10.2008 kl. 10:15

helgi þakkar goðar kveðjur á afmæisdegi hans 29 sep og Gunna eg for í krækiber 29 sep Helga langaði í saft,,
og fekk. enn núna alveg hætt að tyna her var alveg krokt af bæði bláberjum og krækiberjum bestu kveðjur til ykkar ættingjar joka og helgi

helgi og joka

29.9.2008 kl. 22:13

Sælir ættingjar góðir
Langar að benda ykkur á síðuna www.skjalfandafljot.is
endilega kíkið á það
kveðja

Hulda Jóns

29.9.2008 kl. 0:11

Halló elskurnar
Eg fór til berja í dag nóg er af þeim
en ansi eru þau farin að linast tíndum samt eina fimm lítra en nú held eg að eg láti staðar numið í berjamó þetta haustið Hafið það sem allra best Bless Gunna

Gunna

28.9.2008 kl. 21:37

Sælir kæru ættingjar og takk kærlega fyrir allar hamingjuóskirnar. Dagurinn í gær gekk bara vel og allir glaðir:D
Bestu kveðjur frá Dalvík, Maja, Addi, Alexander Már og Rakel Bára

Maja

22.9.2008 kl. 12:57

Hæ - hó ;)

Hæ ættingjar mínir ;)

Fínt að frétta úr Reykjahverfinu ;).
Maja mín, þú veist að nafnið Anna Júlía er á lausu ef þú ert í vandræðum með að finna nafn á prinsessuna haha, jú eða Arna Júlía í höfuðið á okkur Arnþóri, er það ekki smart? ;) hehe.... varð bara að koma þessu að hehe. Nei,nei bara smá spaug, en ég hlakka voðalega mikið til að heyra nafnið á Mæju Junior - enda er hún klárlega mesta krúttið ;)
Já, maður situr sveittur fyrir framan tölvuna alla daga, allan daginn að læra, eða svona lang oftast. Það þýðir amk. ekkert að slá slöku við. ;) En þetta er allt saman voðalega skemmtilegt ;).
Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt ;).
Síðan mín sem mátti sjá hér til hægri er ekki lengur til en ég ákvað að stofna í hennar stað myndasíðu þar sem ég hef mjög gaman af ljósmyndun og verður hún opnuð von bráðar og ég set þá nýja linkinn þarna inn þegar að því kemur ;).
En annars óska ég ykkur bara alls hins besta kæru ættingjakrútt!

Lærdómurinn bíður nefnilega :O)

Kveðja - Anna Júlía Alladóttir.

AJA ;)

22.9.2008 kl. 8:38

Halló kæru ættingjar og fylgifiskar. Eins og móðir mín hafði orð á hér á undan mér stendur til að skíra dömuna okkar næstu helgi, laugardaginn 27. september, og halda upp á afmæli sonarins um leið þó það sé ekki fyrr en 3. október. Hér á bæ er því allt farið á fullt í undirbúningi fyrir veisluna... búin að fá mömmu og tengdamömmu með mér í þetta svo ég stend nú ekki alveg ein í bakstrinum. Addi byrjaði að vinna aftur í morgun eftir mánaðar fæðingarorlof... skrítið að vera bara við mæðgurnar heima... og þurfa að vakna og koma syninum í leikskólann... en þar fæ ég góða aðstoð tengdamóður minnar sem ætlar að fara með hann í leikskólann fyrir mig þegar ég kemst ekki sjálf... yndislegt að eiga svona góða að. En ætli sé ekki best að reyna að leggja sig aðeins með dömunni meðan hún sefur... hún er nefnilega algjör nátthrafn, sefur yfirleitt mjög vel á daginn en vakir svo á kvöldin og helst til 2 á nóttunni... okkur foreldrunum til mikillar gleði þar sem við náum yfirleitt að sofna á undan henni... eða amk dotta:) Annars er bara gott að frétta af okkur, litla mús varð mánaðargömul í gær og Alexander er allur að koma til, orðinn mikið betri við hana en hann var og vill sko alltaf vera að halda á henni, sitja með hana og kyssa hana. Kemur þó alveg fyrir ennþá að hann lætur hendina á sér vaða í hana en það er mun sjaldnar en fyrst.
Hafið það gott elskurnar... Maja

Maja

21.9.2008 kl. 12:54

Halló langt síðan ég hef tjáð mig hér ,greinilega mikið um að vera á stóru heimili.Er búin að vera í Kristnesi í endurhæfingu síðustu 5 og hálfa viku var búin þar á föstudaginn var.búin eð vera gifting og barnsfæðing og verður bráðum skírn líka.´´I gær var skírður einn lítill frændi og hlaut hann nafnið Adrían Máni það er sonur Ingvars og Berglindar sem fæddist 2.ágúst .Til hamingju með nafnið á syninum bæði tvö ,og svo allir aðrir ættingjar.hafið það gott elskurnar.Sissa

sissa

16.9.2008 kl. 23:55

Ég fékk email frá vini mínum Sandro í dag. Hann hafði farið inn á Stafnssíðunna og séð þar að Ester ætti afmæli og var að senda henni kveðjur . Hann er ennþá alsæll eftir kynninn af Stöfnungum en sér bara eftir því að hafa ekki haft digital myndavél með sér

Sæmundur

16.9.2008 kl. 20:51

Sælir ættingjar!
Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar. Ég vil líka óska afmælisbörnum síðustu daga (já og vikna) til hamingju með afmælin. Það eru svo ótrúlega margir sem eiga afmæli í september.
Við Árni áttum alveg frábæran brúðkaupsdag, og skemmtum okkur svo vel í veislunni að fórum ekki fyrr en um 3 leytið (um nóttina) í svítuna á Hótel Kea, sem við fengum óvænt að gjöf. Við erum svo sannarlega að njóta hveitibrauðsdagana.
Knús

Hulda Jónsd

14.9.2008 kl. 11:08

Heil og sæl öll!!!!!!
þá er maður komin heim úr þessu líka snilldarinnar fríi,var alveg ótrúlega ljúft og gott og ekki klikkaði veðrið á Spáni frekar en fyrri daginn,fór held ég aldrei undir svona 33°.Komum heim aðfaranótt föstudags aldeilis sólbrún og sælleg.Svo er nú bara vinna á morgun svo þetta sumarfrí er liðið,en við erum nú búin að hlaða vel batteríin svo það er nú í fínu lagi.Annars er nú bara allt þetta fína að frétta,Jóel farinn aftur út í skólann svo við gömlu erum aftur orðin ein í kotinu sem er bara alveg ljómandi gott í sjálfu sér.Ég byrjaði auðvita á því að skoða síðuna okkar þegar ég kom heim og sé að það er fullt af gleðitíðindum af ættingjunum,barnsfæðingar og brúðkaup og ég veit ekki hvað og hvað,...ég sendi mínar bestu hamingjuóskir til brúðhjóna,nýbakaðra foreldra og allra afmælisbarna síðustu þriggja vikna.Hafið það svo sem allra best elskurnar.

kveðja Ester

Ester

14.9.2008 kl. 9:30

Blessuð & sæl ;)

Jæja kæru ættingjar, fannst að það væri nú ómögulegt annað en að kvitta aðeins í gestabókina, mér finnst svo voðalega gaman að lesa þegar aðrir skrifa ;)
En við vorum í afmæli Daniels Freys og brúðkaup Huldu frænku og Árna Hólm í gær, alveg frábært og stórglæsilegt allt saman ;)
Datt einmitt í hug að setja kannski eina mynd á síðuna á eftir af þessum fínu nýbökuðu hjónum Árna & Huldu :).
Annars er sko bara nóg að gera hjá okkur, allt voðalega svipað bara, alveg ágætt ;).

Bið að heilsa ykkur bara ;)

Anna Júlía ;)

14.9.2008 kl. 0:58

ný myndasíða!

ég var ad stofna mér myndasídu!! því ástkæru foreldrar mínir voru ad verda brjáladir á myndaleysi

en myndaíðan er




123.is/jofridur90



er reyndar ekki með margar myndir, netid er pínu lengi herna

en eins og er þá eru 5 myndir frá því ég var ad dansa páskaeyjudans (húlla húlla dans)

kvedjur frá chile
jófríður stebbadótir

jófríður stefánsdóttir

chilestelpa.bloggar.is

13.9.2008 kl. 11:37

Góðan og blessaðan daginn mig langar að setja hér inn vísu sem pabbi og mamma fengu einhverju sinni frá Kristínu móður Steinunnar á Reykhólum
Þrettánda og sautjánda september sólin beri ykkur kveðju mína
á hverju ári sem yfir fer
þess óskar af hjarta gamla Stína

oftast sendir sólin geisla sína á
þessum dögum til okkar
Blessuð sé minning pabba og mömmu guð veri með ykkur öllum kæra frændfólk og vinir

bestu kveðjur Gunna

Gunna

6.9.2008 kl. 11:57

Lítil hreyfing í gestabókinni sé ég. Sennilega allir jafn andlausir og ég hehe... eða bara í berjamó alla daga.
Hér gengur allt sinn vanagang... erum mestmegnis heima þessa dagana og hvílum okkur, daman er farin að taka upp á því að vakna á 2 tíma fresti á nóttunni og vilja fá sinn sopa svo ég er frekar þreytt þessa dagana... hún var nefnilega svo góð fyrstu dagana og svaf frá miðnætti til ca 5-6 sem var algjör lúxus. En maður verður bara að búa sig undir allt. Svo er spurning hvort hún ætlar að taka upp á magakveisum eins og bróðir hennar gerði... bíðum spennt eftir því;)
Alexander þykir voða vænt um systur sína en er enn annað slagið að slá aðeins í hana... ekki eins mikið og fyrst og er meira í því núna að knúsa hana... þarf að sjálfsögðu að kyssa systur sína góða nótt eins og aðra fjölskyldumeðlimi:D
Kveðjur frá Dallas City... Maja

Maja

1.9.2008 kl. 21:19

Komið þið nú öll sæl og blessuð.

Hér er nú allt gott að frétta, skólinn byrjaður hjá Hafsteini og fanns honum sumarið heldur fljótt að líða,en svona er lífið,við Hafsteinn fórum með Önnu Júlíu og Arnþóri í afmæli Jakobs og Benna í Kálfborgará í gær ég var ekki búinn að vinna fyrr en klukkan fimm þannig að við vorum svolítið seint á ferðinni og hittum því ekki alla ættingana,en þetta var mjög gaman,hafið það svo gott,bestu kveðjur frá okkur á Kvíslarhóli.

Jófríður Halls.

31.8.2008 kl. 22:44

Sæl & bless ;)

Af okkur er gott að frétta. Ég er hætt að vinna á leikskólanum og komin í fullt nám (í fjarnámi) frá H.Í. í þroskaþjálfafræðum til B.A. gráðu. Í síðustu viku var ég einmitt í borg óttans í staðlotu í skólanum en ég þarf að fara í tvær slíkar yfir önnina. Það gekk rosa vel og mer líst vel á þetta allt saman ;).
En svo er ég í Framhaldsskólanum á Húsavík og ætla að klára stuðningsfulltrúanámið mitt um áramótin. Samhliða því er ég að vinna aðeins um helgar í vetur í N1 auk þess að taka dag & dag í leikskólanum þegar vantar. Svo það er nóg að gera. Arnþór bara í sinni vinnu og hefur í nógu að snúast þar og heima, Þessar vikurnar er hann í Kröflu svo ég er bara grasekkja eins og oft áður. Vorum í afmæli Jakobs & Benony á Kálfborgará í dag, rosa gaman ;) ;).
Hafið það öll sem allra best bara.

Bestu kveðjur frá okkkur á Reykjarhólnum ;).

Anna Júlía & Arnþór

Anna Júlía & Arnþór Haukur

30.8.2008 kl. 22:29

Fréttir af mér og mínum;)

Ása... svo skemmtilega vill til að íbúðin sem þú varst í er einmitt í eigu tengdamömmu minnar og bróður hennar, amma hans Adda míns átti semsagt heima þarna þegar hún lifði... gaman að lesa þetta:D
Annars bara gott að frétta af stórfjölskyldunni... litla daman dafnar vel, við köllum hana Frk. Sísvöng þar sem hún vill alltaf vera borðandi hehehehe:D Sver sig í móðurfjölskylduna þar. Stóri bróðirinn vill nú áfram fá sína athygli og gerir hin ýmsu prakkarastrik til þess... á það til að dangla svolítið fast í systur sína og fær athygli út á það en þetta á vonandi eftir að lagast með tímanum. Hann er nefnilega voða hrifinn af henni en samt eitthvað pínu afbrýðisamur líka.
Ætlum að skella okkur í Bárðardalinn á morgun, n.t.t. í Kálfborgará í tvöfalda afmælisveislu þeirra Jakobs og Benna.

Maja

alexanderm.barnaland.is; barnaland.is/barn/78614

29.8.2008 kl. 22:43

Fréttir af brjáluðu berjakonunni

Sæl öll sömul.Var að koma úr viku ferð frá Akureyri,veðrið búið að leika við mann.Íbúðin meiriháttar,orlofsíbúð í Hafnarstræti 7.Berjamórinn æði búið að safta og sulta og komin heim södd og sæl.Kveðja Ása

Ása

29.8.2008 kl. 10:23

Fréttir af brjáluðu kattarkonunni

Sæl öll sömul. Ég er víst búin að vera í sumarfríi undanfarið og hef notið mín í algerri leti á Íslandi (til tilbreytingar). Núna er vinnan komin aftur hinsvegar og skólinn byrjar eftir helgina. Ég er að ráðast í mastersnám í Fjármálahagfræði (hvað svo sem það nú er). Lífið gengur annars bara vel og er stelpan sem bjó með mér í vetur að flytja út og önnur stelpa inn í staðin. Það er nú svo sem ekki allt heldur ætlar strákur af Svalbarðsströnd nú að flytja inn líka. Reyndar furðaði Karl Óskar (Huldu son, Esterardóttir) sig á því að nokkur maður myndi hætta á sambúð með eins klikkaðri kattarkonu og móðursystur sinni. Mamma (Ester) og pabbi eru í mestu makindum á Spáni og Hulda systir og Hólmgeir maðurinn hennar fóru út til þeirra í gær, Jóel bróðir fór svo aftur til London á miðvikudaginn í skólann svo að maður er nú hálf einmanna bara á þessu skeri næstu daga.
Alla prossima belli

Nína Björg

26.8.2008 kl. 18:56

Halló ættingjar
Uppgötvaði að mjög langt er síðan ég kíkti síðast á síðuna, enda hefur svo sem verið nóg að gera. Tæpar 3 vikur í brúðkaup, og það er sko nóg að skipuleggja. Ekki er betra að unnustinn er í útlegð á Grænlandi, kemur reyndar heim eftir tvo daga :o)
Hann Árni átti einmitt 35 ára afmæli um daginn, en þar sem hann var í vinnunni langt frá heimahögum, þá hefur ekkert verið gert í tilefni þess dags.
Rosalega ánægð með nýju frænkuna, held að Maja eigi nú svolítið í henni.
Knús

Hulda Jóns

25.8.2008 kl. 17:51

Innilega til hamingju með prinsessuna, Maja og fjölskylda! Gangi ykkur allt í haginn!

Olla

24.8.2008 kl. 15:18

Mæja og fjölskylda. Til hamingju með litlu dóttur og systur. Gangi ykkur vel.
Gömlu hjón á Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.8.2008 kl. 14:17

Takk kærlega fyrir hamingjuóskirnar. Hér heilsast öllum vel, Alexander tekur því furðuvel að vera orðinn stóri bróðir... ennþá:D Er samt ekki alveg búinn að átta sig á þessu ennþá held ég og á svolítið erfitt með sig stundum, áttar sig heldur ekki alveg á hvað hann má vera harðhentur við hana en það kemur allt saman. Reynum bara að passa að vera ekki að skamma hann heldur ræða frekar við hann svo hann fái ekki óbeit á nýja fjölskyldumeðlimnum. Við komum heim í gær og fáum heimaþjónustu frá ljósmóðurinni hér á Dalvík sem er mjög fínt. Gott að komast heim í sitt rúm og sitt umhverfi.
Bestu kveðjur frá hamingjusömu tveggja barna móðurinni:D

Maja

23.8.2008 kl. 16:57

Til hamingju med prinsessuns elsku Maja og Addi og Alexender til hamingju med litlu systur kveðja fra ester og sæmundi

ester

23.8.2008 kl. 11:32

Til hamingja Maja og Addi

Til hamingju með dótturina. Alexander, til hamingju með litlu systir.

Þröstur og Svala

22.8.2008 kl. 22:56

Velkomin í heiminn litla prinsessa Maja Addi og Alexander til hamingju með dömuna nóg að gera hjá ykkur á næstunni kveðja frá Gunnu langömmusystur

Gunna

22.8.2008 kl. 22:32

Mæja, Addi og Alexander

Innilega til hamingju með dömuna, greinilega vel í hana lagt. Óhætt að segja að fiskisagan fljúgi EKKI á Dalvík og fór ég meira að segja á Kríló tvisvar í dag.
Bestu kveðjur, Kristín og prímadonna Amanda.

Kristín

22.8.2008 kl. 20:15

Maja og Addi.

Innilegar hamingjuóskir með litlu prinsessuna ykkar, gangi ykkur vel kveðjur frá okkur á Kvíslarhóli.

Jófríður Halls.

22.8.2008 kl. 18:35

Elsku Mæja og Addi, innilegar hamingjuóskir með litlu prinsessuna! Alexander Már, til hamingju með að vera búinn að eignast litla systur. Kær kveðja Kolbrún, Mark og Katrín Inga

Kolbrún

22.8.2008 kl. 0:24

MAJA & ADDI

Hamingjuóskir með prinsessuna ykkar foreldrar, Alexander Már, til hamó með það að vera orðinn stóri bró! ;) Gangi ykkur vel í Dallas-city

Kveðja úr R-hverfinu
Anna Júlía

Anna Júlía & Arnþór Haukur

21.8.2008 kl. 22:51

Halló ættingjar í dag kl.19.15.fæddist lítil prinsessa hjá Mæju og Adda hún var 16 merkur og 53 cm.allt gekk vel varð að setja þetta inn á síðuna .annars allt gott af mér og mínum.Kveðjur hin stolta amma Sissa

sissa

20.8.2008 kl. 11:29

Sæl verið þið elskurnar,jæja,þá er komið að því,mín komin í sumarfrí loksins og Spánarferðin að skella á,förum í loftið kl.3:30 í dag.Það verður nú aldeilis ljúft.Annars bara allt gott að frétta,áfram þetta ljúfa veður í Reykjavíkinni,sól og blíða.Jóel fer aftur til London um mánaðarmótin og þá hefst loka törnin og hann klárar í vor.Það er alveg ótrúlegt hvað þetta líður hratt.Ég kíki nú alveg örugglega hér inn á meðan ég er úti ef ég kemst einhversstaðar á netið og fylgist með ykkur,það er alveg ótækt að missa úr 3 vikur.Hafið þið það svo gott gullin mín, kveðja Ester

Ester

17.8.2008 kl. 20:20

Í fréttum er það helst að það er ekkert barn fætt ennþa;) Við tókum okkur til nokkrar kellur í gær og gæsuðum Huldu systur, en eins og einhverjir vita sennilega eru þau Árni Hólm að fara að ganga í það heilaga 13. september n.k. Hulda var hin sælasta með daginn og við komum henni algjörlega í opna skjöldu, hún hélt sko að hún væri að fara í pikknikk með 2 vinkonum en annað kom á daginn, hennar biðu rúmlega 10 kvensur í Lystigarðinum, tilbúnar að eyða deginum með henni. Vona bara að Hulda hafi ekki verið of óhress í dag því hún þurfti að fara í Bárðardalinn á Markaðsdag sem var þar.
Elsku Hulda, takk fyrir daginn í gær og allar yndislegu stelpurnar í kringum þig:D

Maja

17.8.2008 kl. 18:42

Sælt veri fólkið jæja nú er sumarfríið mitt að enda var á Dalvík föstudag og laugardag að hita kakó handa sjóstangveiðimönnum það var hið besta veður og mínu fólki Hafþóri Önnu og Mána gekk bara mjög vel Máni í sínu fyrsta alvöru móti.Fór í berjamó í dag í þvílikri bongó bliðu Ása mín þú hefðir þurft að vera komin em þú kemur bráðum. Verið nú stilt og góð eins og alltaf Bless Gunna

Gunna

12.8.2008 kl. 0:20

www.chilestelpa.bloggar.is

eg var ad setja inn nýtt blogg frá mér hédan úr chile :D endilega kíkkid og kommentid hjá littla heimsborgaranum :D
annars er allt gott ad frétta, thad fer ad stittast í sumarid, í dag var sól og blída og voru flestir á skyrtunni úti en ekki í 3 úlpum med húfu og vetlinga :D
vona ad thid eigid gódan dag tharna hinum megin :D

knús og kossar frá chileee :D

jófríí stebba

jófrídur stefánsdóttir

www.chilestelpa.bloggar.is

11.8.2008 kl. 15:51

Fiskidagshelgin mikla liðin... verð að viðurkenna að ég er ansi hreint búin á því eftir þessa helgi. Labbaði helling á föstudagskvöldið og laugardaginn svo barnið hlýtur að hafa ýtt sér aðeins neðar í grindina, vona það amk. Eins og er (miðað við síðustu skoðun sem var á miðv.d.) er það ekki búið að skorða sig svo ég verð bara að gjöra svo vel að leggjast niður á staðnum og hringja á sjúkrabíl ef ég missi vatnið... hvar sem ég er stödd þá stundina. En það er nú örugglega ekki alveg komið að þessu, ennþá 11 dagar í skráðan dag en einhvernveginn hef ég haft það á tilfinningunni að það gæti komið aðeins fyrr... hvort sem það er rétt tilfinning eða ekki. Vorum með aðeins af gestum um helgina sem var voða notalegt bara. Fengum betra veður en við bjuggumst við svo þetta gekk allt voða vel. Svo er bara allt að verða tilbúið fyrir fæðingu krílisins... mun reyna að setja inn tilkynningu eins fljótt og ég get hér inn... amk inn á barnalandssíðuna okkar sem er hér til hliðar... og alls ekki vera feimin að biðja um lykilorðið ef þið viljið skoða, vil ekki setja það hér inn því maður veit aldrei hverjir skoða hér, þó það séu nú mest ættingjarnir þá geta alltaf slæðst inn einhverjir "vitleysingar". Fyrir þá sem þekkja Adda minn þá er það liðið hans í NBA;) allt með litlum stöfum.
Bið annars bara að heilsa öllum í bili. Vonandi heyrið þið eitthvað frá mér fljótlega, bumban orðin ansi þreytt:O

Maja

5.8.2008 kl. 11:27

Bara að kíkja á ættingjana

Heil og sæl!
Alltaf gaman að kíkja hér inná síðuna ykkar, ákvað að kitta í þetta sinn en ég fylgist alltaf með síðunni ykkar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

123.is/lundarbrekka

5.8.2008 kl. 9:29

Ingvar og Berglind,hjartanlega til hamingju með erfðaprinsinn og Jósep til hamingju með afastubbinn.

kveðja Ester

Ester

4.8.2008 kl. 23:00

Ingvar og Berglind ,til lukku með litla prinsinn ykkar.Sissa frænka og co.

sissa

3.8.2008 kl. 23:42

Ingvarsson

Ingvar & Berglind!
Innilegar hamingjuóskir með litla stubbinn ykkar, gangi ykkur vel í nýju hlutverkunum ;)

Kveðja
Arnþór & Anna Júlía

Anna Júlía & Arnþór

2.8.2008 kl. 21:48

Fæddur drengur

Í dag fæddist Ingvari Frey Jósepssyni (Hallssonar) og Berglindi unnustu hans drengur, 14 merkur og 51 cm að því er ég best veit. Vil ég óska þeim til hamingju með litla snáðann og góðs gengis í foreldrahlutverkinu. Enn einn langömmustrákurinn hennar ömmu Mæju... spurning hvort mér tekst að gefa henni stelpu í safnið eða;)

Maja

31.7.2008 kl. 20:49

Heil og sæl elskurnar,frekar rólegt á síðunni þessa dagana enda kannski eðlileg í ljósi þessara einmuna veðurblíðu sem hefur leikið við okkur þessa dagana,þetta er alveg með ólíkindum og ótrúlega yndislegt.Ekkert að frétta svo sem nema allt gott,bara verið að sóla sig og njóta veðurblíðunnar,verst að þurfa að slíta það í sundur með vinnu,en það stittist nú í sumarfríið svo maður harkar það af sér.Við hjónakornin ætlum bara að vera heimavið um verslunarmannahelgina en unga fólkið Nína og Jóel ætla víst að skella sér til Eyja á þjóðhátið.Hann var aldeilis hrifinn hann Sandro,Ítalinn sem kom með okkur á hittinginn og heldur ekki vatni yfir öllu saman,bæði fólki og landi,órtúlega gaman þegar hægt er að gleðja aðra svona og skemmta þeim.Jæja gullin mín,bið að heilsa að sinni.

kveðja Ester

Ester

28.7.2008 kl. 22:46

Varð snortin

Sæl öllsömul!!Bara að kvitta fyrir mig.Eg var snortin af lýsingu Sandro,af hans upplifun í sveitasælunni fyrir norðan,og þessum fallegu orðum um ykkur,sem mest umgengust hann.Mikið megið þið vera glöð,þetta er mjög sérstakt.Kveðja Ása

Ása

28.7.2008 kl. 21:55

Thanks.

Thanks to Sandro for signing in our geust-book.

Þröstur Óskar.

28.7.2008 kl. 21:41

Þýðing á því sem að Sandro skrifar:
Þetta er sandro frá Ítalíu. Á þessari stundu sit ég í garðinum heima og hugsa til ykkar. Hvort þið trúið því eða ekki þá er þetta 2 nóttin sem ég sef heima hjá mér .
fyrst af öllu langar mig til að þakka ykkur öllum fyrir gestrisnina og að hafa fengið að kynnast hluta af ykkar lífi. Þegar að menn ferðast jafn mikið og ég geri á milli viðskiptavina þá kynnist maður bara hótelum, veitingastöðum , flugvöllum , leigubílum og þessháttar Þessvegna er enn stórfenglegra að fá að kynnast venjulegu fólki og því lífi sem það lifir.
Sérstakar þakkir fá Sæmi og Ester því án þeirra hefði þetta ekki orðið .
Kalli: ég er ennþá að hugsa um graðhestinn(horny horse og það er óvenjulegt að kynnast ungum dreng með svona miklar gáfur. Ég vill fá að vera vinur þinn.
Óskar (Þröstur) Ef allir hefðu þína lífsgleði þá væri Heimurinn betri. Nína og bróðir hennar (jóel ) ég er ennþá djúpt snortinn af hæfileikum ykkur til snöggra hreyfinga ( nína var í frisbí) Þetta voru 2 frábærir dagar.Ester mig langar að biðja þig um að þakka frænku þinni og manninum hennar (Dedda og Pálmi )fyrir gistinguna og gestrisnina. Ég hef ennþá í huga mér myndina af húsbóndanum þar sem hann stóð við eldhúshúsgluggan og reykti pípuna og og naut miðnætursólarinnar.
Stórkostleg lífsreynsla
sandro

28.7.2008 kl. 18:55

Hi guys,
this is sandro from Italy .At the moment I am sitting down in my garden relaxing my self and thinking of you. Believe or not since I have met you today is the 2nd night I sleep in my house and in my bed.
First of all, I would like to thank all of you for you hospitality and because you have shown me a real piece of your life. You know, when you travel quite a lot like me just moving between customers, hotels, restaurants, taxi, airports and so on, it is a great pleasure to meet real people with real life.
Special thanks to:
Saemi and Ester because without them I could not have this experience.
Kalle, I am still thinking about your horny horse and it is very rare to meet young people like you with your intelligence. I would lihe to be your friend.
Oskar: if everybody has got your life happiness the world could be better.
Nina and his Brother ( I am not able to write down the Icelandic name) Sono ancora colpito dalla Vostra velocità di movimento. Sono stati due giorni bellissimi.
Ester I would like you to thank your cousin and her husband to have guested me. I have in my mind the picture of his husband while smoking and looking outside the window during midnight sun.
Great experience!!!

sandro

26.7.2008 kl. 10:06

Héðan er bara fínt að frétta, búið að vera fínasta veður á Norðurlandinu síðustu viku skilst mér, en við nutum þess ekkert þar sem við vorum í borginni... samt gott veður þar fyrir utan smá rigningu annað slagið, en það gerði nú lítið til þar sem við vorum mest megnis innandyra í stórum mollum eins og IKEA, Smáralind og Kringlunni (þessi týpíski Norðlendingrúntur;)) Fórum reyndar í Húsdýragarðinn líka með Alexander sem honum þótti nú ekki amalegt og var sko ekki vitund hræddur við þessi stóru dýr... enda með bændablóð í sér drengurinn. Besti dagurinn kom svo að sjálfsögðu þegar við fórum heim, semsagt í gær... en svona er þetta bara. Hér er nærri 20 stiga hiti í dag, enn sem komið er svo ætli við fjölskyldan reynum ekki að nota daginn í eitthvað sniðugt... búin að vera 2 vikur í sumarfríi núna svo það eru 2 eftir, hjá þeim feðgum amk., bumbulínan fær að vera í fríi lengur þar sem ég er nú á leið í fæðingarorlof eftir vonandi ekki meira en mánuð og ætla mér að vera heima með litla krílinu fram í ágúst á næsta ári... aðeins að njóta þess að vera heima þar sem við reiknum með að þetta verði okkar síðasta barn;)
Annars sendum við bara bestu kveðjur til allra okkar ættingja sem var svo gaman að sjá um daginn í Stafni, erum strax farin að hlakka til næsta sumars, þó ekki farin að plana hvar á að hittast en það verður fyrr en seinna reikna ég með... verðum bara að halda Maríu-fjölskyldufund fljótlega. Biðjum að heilsa... Maja og fjölskylda á Dalvík.

Maja

24.7.2008 kl. 21:46

Blessuð og sæl öll,bara að kvitta fyrir mig.Það er nú allt frekar rólegt hér hjá okkur þessa dagana,ekki mikið í fréttum.Veðrið svona þokkalegt,hlítt frekar en rigning af og til og ekki mikil sól,getum nú reyndar ekki kvartað hér sunnanlands svo sem,erum búin að fá alveg ótrúlega marga sólardaga í sumar.Við hjónakornin erum nú eð verða langeyg eftir sumarfríinu en það styttist nú reyndar óðfluga í það,bara rúmar 3 vikur og þá leggst maður með tærnar upp í loft á Spáni,ekki amalegt það,maður er farin að detta í að skoða gamlar Spánarmyndir og fer að komast í frígírinn hvað úr hverju.Það væri ekki amalegt að vera með einn svona ,,hitting" eins og um daginn (sem var alveg ótrúlega skemmtilegur)á sólarströnd,þar væri nú aldeilis hægt að sletta úr klaufunum og njóta lífsins saman.
Verið þið svo áfram kát og hress,....kveðja Ester

Ester

24.7.2008 kl. 13:18

Þoka í dag.

Heil og sæl öll,þar sem rólegt er í gestabókinni þessa daga ákvað ég að kvitta núna þó lítið sé að segja,veðrið gott,að vísu þoka í dag(dæmigert fyrir nesið)en ekkert væl, Sissa,Auður og mamma komu í gær og fengu alveg dásamlegt veður,það besta sem komið hefur í sumar ég bar meira segja kaffið út á pall og við drukkum þar í þessari líka blíðu,svo sóluðum við okkur bara,kveðja til allra og vona að þið hafið það gott,kv.frá Kvísló.

Jófríður Halls.

23.7.2008 kl. 21:20

1,2,testing 1,2,,,,,,

Bara að athuga hvort kerfið virki..... Það er búið að vera svo hljótt hér inn upp á síðkastið.

Þröstur Kolbeins

19.7.2008 kl. 23:06

Ég var einmitt eitthvað að reyna að tjá mig hérna í morgun en þá kom bara upp einhver villumelding svo ég gafst upp bara:) Frábært að skoða allar þessar myndir.

Maja

19.7.2008 kl. 16:07

Obbosí,.......

.....komið í lag.Var eitthvað bilirí í gangi,var bara svona að tékka á því.Ég er búin að vera að skoða myndirnar frá hittingnum og þær eru sko ekkert hoj,enda átti ég ekki von á því,þetta er þvílíkt myndarfólk allt með tölu.Segi enn og aftur takk fyrir samveruna,þetta var alveg ótrulega skemmtilegt.Hafið það nú gott elskurna,..kveðja Ester

Ester

17.7.2008 kl. 20:45

Halló Nína!

Var það ekki í dag sem átti að sýna myndina með Ingu ömmu þinni á netinu?

Ein forvitin Fía

16.7.2008 kl. 13:58

Halló allir, takk kærlega fyrir síðast, þetta var nú bara frábært!
Þröstur og Kristín takk fyrir "stjórnsemina" (í góðri merkingu orðsins).
Klukkan tólf á hádegi sunnudaginn 13. júlí var ég á toppi Belgjarfjalls
(Vindbelgjarfjalls) og horfði yfir í dalinn. (varð að monta mig pínu.grunar að sumir hafi sofið enn). Bestu kveðjur frá okkur hér á Húsavík.

Fía

15.7.2008 kl. 22:59

Sælinú
Frábærar myndir sem búið er að setja inn og ekki voruð þið lengi að því. Takk fyrir það. Einnig : Höddi, Olga, Snorri og aðrir þeir sem koma að tjaldmálum og öðrum fylgihlutum þ.e. lán, uppsetningu og frágang á tjöldum, stólum svo og keyrslu til og frá Stafni fyrir og eftir hitting, bestu þakkir. Olla, Snorri og Marsý takk fyrir afnot af náðhúsi, rafmagni og landareign almennt. Maður verður bara dálítið glaður í hjartanu af því einu að vera af svona frábærri ætt.
Kær kveðja til allra,

Kristín

15.7.2008 kl. 12:54

Frábært að skoða allar þessar myndir... sérstaklega þar sem ég var ekki nógu séð að hlaða myndavélina mína áður en við fórum og gat því ekki tekið nema sennilega eina mynd:(

Maja

15.7.2008 kl. 0:09

Fullt af myndum.

Ég setti inn 3 möppur með myndum og ég sá að Anna Júlía setti inn slatta af myndum. Þær reyndar lentu inn í fyrstu möppunni minni en það gerir bara ekkert til. Við lögum það bara síðar. Njótið myndanna.
p.s. Ef einhverjir eiga myndir sem þeir vilja láta birta þá er best að hafa bara samband við mig, nú eða Önnu Júlíu svo hefur Fríður Helga líka aðgang að stjórnkerfinu.

Þröstur Kolbeins

14.7.2008 kl. 23:49

Sælir ættingjar

Takk fyrir síðast. Held nú bara að þetta hafi tekist bærilega allt saman. Að minnsta kosti fannst okkur Amöndu gaman og erum ákveðnar að koma á næsta hitting sem við gerum ráð fyrir að verði að ári. Þá stefnum við á að vera með tjaldgræju svo við missum ekki af stórum hluta af stuðinu. Annars barst alveg söngur til okkar upp í Vallholt svo við vorum með ;)
Bestu þakkir og kveðjur, hyskið á Dalvík.

Kristín

14.7.2008 kl. 21:33

Frábær helgi í Stafni

Sæl öll elskurnar!!! Þetta var meiriháttar helgi,alveg magnað að sjá allt frændfólkið.Við Inga komum heim um sjöleitið í kvöld,tókum það bara rólega á leiðinni suður.Kærar kveðjur til allra Ása og Inga

Ása

14.7.2008 kl. 20:42

Sæl og blessuð öll sömul elskurnar og takk takk fyrir helgina Hún var aldeilis frábær og afar vel heppnuð gaman hvað allir voru kátir og hressir Húrra fyrir okkur erum lang flottust Gunna

Gunna

14.7.2008 kl. 14:50

Snilldar fjölskylduhelgi......

Þetta var alveg magnað um helgina. Get ekki séð annað en það sé nánast 100% áhugi á að gera þetta að árlegum viðburði. Húrra fyrir okkur......

Þröstur Kolbeins

14.7.2008 kl. 12:48

Frábær hittingur!!!!!!!!!!!

Heilir og sælir og takk fyrir síðast kæru ættingjar.!!!!!!Alveg var þetta hreint frábær helgi hjá okkur,við skemmtum okkur alveg konunglega og það er ekki spurning að þetta er komið til að vera,hér eftir hittumst við sko árlega.Bíð spent efti að skoða myndir.Hafið það sem allra,allra best elskurnar,
Kveðja Ester og Sæmundur
P.S.Bestu kveðjur frá Sandro(Ítalanum sem kom með Sæmundi)hann er alveg alsæll með ferðina og heldur ekki vatni hvað var gaman á hittingnum.

kv. Ester

Ester

14.7.2008 kl. 12:02

Halló

Blessaðir allir saman
Tekk fyrir frábæra helgi og hitting. Ég var að fá fréttir um það hvenær þættirnir sem ég aðstoðaði við fara í loftið á ítalíu. þann 17´. júlí verður jarðvarma þátturinn og þann 7. ágúst verður stoðtækni þátturinn. Eins og mörg ykkar vita þá voru þó nokkuð margir ættingjar í jarðvarmaþættinum, meðal annars þá var hún Ingibjörg Helgadóttir í aðalhlutverki. Þættina má sjá á þessum link: http://www.superquark.rai.it/category/0,,1067172--1392,00.html Hins vegar er ekki íslenskur texti. Það er spurning hvort ég skelli ekki þýðingu inn hingað þegar búið er að sýna þáttin svo það þurfi ekki allir að fara í ítölskunám til að skilja hann. ;)

Nína Björg

14.7.2008 kl. 8:51

Sæl öll.

Takk kærlega fyrir skemmtilegan hitting þið eruð öll frábær,kv.

Jófríður Halls.

13.7.2008 kl. 22:47

Takk fyrir skemmtilega samveru, hlakka til næsta hittings
Kveðja

Hulda Jóns

13.7.2008 kl. 22:04

Mig langar líka til að þakka kærlega fyrir samveru ykkar allra um helgina... þetta var ósköp notalegt þrátt fyrir rigninguna... skilst að það hafi loksins náðst samband við Hann þarna uppi;)
Já Anna Júlía, mér skilst að þetta eigi eftir að verða árlegur viðburður og mun það koma í hlut okkar leggs (Maríu) að ákveða stað og stund á því næsta, svo Ollu-leggur o.s.fr.v... Gaman að því:D
En enn og aftur takk takk... gaman að sjá alla sem komu og vonandi sjáum við bara fleiri næst.
Bestu kveðjur frá Dalvík... Maja, Addi og Alexander Már

Maja

13.7.2008 kl. 20:18

Takk fyrir síðast!

Takk kærlega fyrir síðast elsku ættingar og vinir! Við skemmtum okkur konunglega og vonandi sjáumst við bara sem fyrst aftur. Þið eruð öll sömul alveg frábær! Kærar kveðjur úr Reykjavík, Kolbrún, Mark og Katrín Inga.

Kolbrún

13.7.2008 kl. 15:41

Smá tölvuvandræði :S

Sæl verið þið aftur.
Því er nú ver og miður að talvan / stjórnkerfi síðunnar er að stríða mér og því næ ég ekki að koma inn neinum myndum. Ætla að kanna málið, er búin að flokka og er með þónokkrar myndir sem ég hef hugsað mér að setja inn á síðuna í albúm undir ættarhittingur í Stafni.
Sjáum hvað setur, vonandi kemst þetta í lag ;) Blessuð sé tæknin.

Bið að heilsa ykkur í bili!

Anna Júlía

Anna Júlía aftur!

13.7.2008 kl. 13:44

Sælar elskurnar!! ;)

Jæja, þá er hittingurinn að enda kominn. Bestu þakkir fyrir samveruna og skemmtunina ;). Mun þetta verða árlegt???
Ég væri allavega til í það. Ég smelli inn myndum fljótlega af hittingnum.
Kveðja
Anna Júlía & Arnþór Haukur

Anna Júlía & Arnþór ;)

11.7.2008 kl. 16:50

Erum að leggja í ann, búið að pakka niður eigum bara eftir að loka vagninum ag þrusa af stað sjáumst..:):):)

Hafþór

10.7.2008 kl. 21:31

Áætluð brottför...

Áætluð brottför mín, mömmu (Ester) og Jóels Bróður er fyrir hádegi á morgun.
Sjáumst

Nína Björg

9.7.2008 kl. 10:40

Sælinú

Ég er búin að heyra í Snorra og það er hægt að komast í rafmagn bara spurning hversu langt er í það. Fer eftir staðsetningu vagnsins. Ef einhverjir búa svo vel að eiga langa framlengingasnúru þá hjálpar það. Veit ekki hversu margir vilja vera rafmagnaðir. Ég og mútta mætum á morgun á staðinn og förum að huga að tjaldi og slíku.

Kristín

8.7.2008 kl. 20:49

Þetta er rétti andinn Þröstur,....og ég er alveg viss um að það verður alveg rjóma veður.Ég er nú ekki farin að pakka en það tekur nú ekki svo langan tíma svo það er í góðu lagi,taka bara galla fyrir blíðu og svo annan fyrir rigningu og vona að maður þurfi ekki að nota hann,og svo auðvita góða skapið og húmorinn og þá er ég klár í slaginn.Hittumst svo galvösk,kveðja Ester

Ester

8.7.2008 kl. 19:37

Veðurspá......

Enn er veðurútlitið fyrir helgina tvísýnt. Ekki góð og heldur ekki vond spá. Kanski rigning og kanski ekki rigning. Við snúum bara á "veður gussann" og verðum viðbúinn öllu og þegar góða skapið og gleðin er með í för þá verður bjart og gott veður í hjörtum okkar og það sigrar allt........

Þröstur Kolbeins

7.7.2008 kl. 23:46

Góða skemmtun

Jæja ættingjar góðir! Ætlaði bara að kvitta hér og óska ykkur góðrar skemmtunar um næstu helgi! Það liggur við að maður hafi ekki þorað að kíkja hér inn seinustu dag því manni lagar þá svo að mæta á hitting,,,en maður getur ekki verið alls staðar! Ég sendi ykkur sólina frá Krít þó svo ég efist nú um að það þurfi því það er alltaf blíða í Reykjadalnum góða! :)Eigiði frábæra helgi saman og það er eins gott að þetta verði árlegur viðburður hér eftir! Kv.Olla yngri

Olla yngri

7.7.2008 kl. 22:41

Sælinú
Ég er nú svo illa að mér í nútímaferðamáta að ég hugsaði ekki út í það að við þyrftum rafmagn. Hringi í Snorra bónda á morgun og skoða málið. Geri þá ráð fyrir að við borgum fyrir það og spurning þá með snúrur eða eru þær í vögnunum?? Hvað veit ég.
Hvað um það tíminn líður......allir að pakka.

Kristín

6.7.2008 kl. 19:39

Vangaveltur

Ég var að velta fyrir mér, nú verðum við ekki á neinu venjulegu tjaldstæði, við verðum líklega með fellihýsi en er einhversstaðar hægt að komast í rafmagn þarna?

Maja

6.7.2008 kl. 17:23

gítargrip

Söngsafn Jómma = http://frontpage.simnet.is/jommi/menu.htm , svo finnst mér endilega að ég hafi einhverntíman séð einhverja söngbók með nótum/gripum í við lögin. En þarna er amk slatti af lögum, örugglega hægt að syngja eitthvað af þeim:) Sjáumst um helgina

Maja

6.7.2008 kl. 2:41

chileee

vildi bara skella inn smá kvedju herna :D
thad er allt gott ad frétta hédan, er ad fara í vetrar frí eftir eina viku :D thad er hrikalega kalt herna! en mér lídur mjog vel
endilega kíkkid inn á bloggid mitt sem er:
www.chilestelpa.bloggar.is

ég reyni ad skrifa tharna jahh sem oftast og thegar ég nenni :D

en ég verd med ykkur í anda í fjoldskyldu hittingnum ;)
vonandi verdur stud

kvedjur frá kalda chile
Jófrídur Stefáns
:D

Jófrídur Stefánsdóttir

chilestelpa.bloggar.is

5.7.2008 kl. 22:34

Við litlu krakkarnir verðum líka að mæta til að hjálpa til við að halda uppi fjörinu, er að reyna að fá kærastann með en það gengur illa þar sem að hann er enn með unglingaveikina :)

Inga "tvíbbi"

5.7.2008 kl. 12:06

Jább ég er sPeNnT ;) þetta verður sko G A M A N ;) Þannig ætla ég sko að hafa það ;)!!!!!! SjÁuMsT bArA hReSs & KáT uM nÆsTu HeLgI :)

KvEðJa Anna Júlía & Arnþór

AJA

4.7.2008 kl. 21:46

Maður er nú bara að komast í gírinn fyrir næstu helgi :) Þetta verður stuð
Kveðja

Hulda Jóns

4.7.2008 kl. 20:07

Fer strax í málið að leita að sönglögum með gítargripum (nótum)

Þröstur Kolbeins

4.7.2008 kl. 19:32

Gitarleikari

Mark er til i ad spila a gitar ef einhver a gitarnotur med songlogum fyrir hann. Hann kemur med sinn gitar. kvedja Kolbrun

Kolbrun

4.7.2008 kl. 19:03

Skilabod til Huldu

Hae saeta, eg reyndi ad hringja i thig adan. Svo vid naum orugglega saman adur en eg fer fra USA sendu mer tolvupost a eldred at simnet.is. Hlakka rosalega til ad hitta alla um naestu helgi! kvedja Kolla

Kolbrun

2.7.2008 kl. 21:46

Ég er farin að hlakka þvílíkt til... spurning um að fara að gera "to do list" fyrir ferðina, svo ekkert gleymist nú:)

Maja

2.7.2008 kl. 21:07

sælinú

Ester mín það var nú Olla móða og Snorri sem læddu þessu út úr sér með tjöldin en ég talaði samt við Hödda alein. Ég reyni semsagt. Hvað sem því líður þá eru amk 50 stykki ættingjar sem nú þegar vita það þeir ætli að mæta og er það bara hátt upp í þónokkuð. Það þarf að heyrast frá Þórustöðum, Arndísarstöðum, Kálfborgará,Glaumbæ, Húsavík,Laugahverfi,Einarsstöðum og fyrirgefið mér ef ég er að gleyma einhverjum. Þetta verður bara gaman. Látið nú endilega heyra frá ykkur við gætum hæglega farið í 65-70 manns. Að vísu má búast við að bændur verði í heyskap eða eins og Þröstur orðaði það svo snilldarlega "Ef við fáum gott veður þá verða bændur í heyskap". Þannig er það bara.
Ég get sjálfsagt reddað gítar...en kann ekki heldur að spila. ;)
Heyrumst, sjáumst og allur pakkinn, Kristín

Kristín

2.7.2008 kl. 19:26

jább... get lánað gítar ... kann Ekkert á hann!. ;)

Anna Júlía

aja

2.7.2008 kl. 14:45

Ég get líka lánað gítar ,kann ekkert að spila á hann........frekar en aðrir hittingar :):(

Hafþór

1.7.2008 kl. 22:31

Ég get lánað gítar, ég bara kann ekki að spila á hann.......:-(

Þröstur Kolbeins

1.7.2008 kl. 21:51

Ég aftur,datt allt í einu í hug,er enginn í öllum þessu fríða og föngulega og klára (ég er ekkert hlutdræg eins og þið sjáið)hóp sem spilar á gítar?bara svona álíka og Árni Jhonsen,það er nefnilega hægt að hafa alvöru brekkusöng í Kvíabrekku.

Ester

1.7.2008 kl. 21:45

Ég sagði það áðan og segi það aftur,þú ert snilli Stína litla,enda átti ég ekki von á öðru

Ester

Ester

1.7.2008 kl. 21:22

Heil og sæl

Það er búið að redda tjöldum en Olga og Höddi búa svo vel að eiga réttu græjurnar. Jafnvel er hægt að narra út úr þeim stóla. Frábært að þurfa ekki að flytja tjald um langan veg.
Kv. Kristín

Kristín

1.7.2008 kl. 19:58

Jú partýtjald er málið. Bíst við að ég mæti með hundinn, en karlinn verður enn í útlegð á Grænlandi.
Kveðja

Hulda Jóns

1.7.2008 kl. 18:20

Hittingurinn

Jæja er nú kominn í land úr útlegðinni í Grímsey, gekk á ýmsu eins og þið hafið eflaust lesið um og heyrt í fréttum,annars allt gott að frétta hjá okkur erum að þiðna og þorna eftir helgina,en látum það ekki stoppa okkur komum í Stafn í sólina að sjálfsögðu, partítjald er nauðsinlegt að hafa,get reddað því hjá tengdó ef að allt annað bregst,annars sjáumst í sveitinni

Hafþór

1.7.2008 kl. 13:05

Áttir þú von á öðru með Stínu litlu Ester mín En ég ætla þessa góðu helgi að vera BÓNDI í Vallholti Sjáumst Gunna móða

Gunna

1.7.2008 kl. 12:33

Þú ert nottlega bara snilli Kristín,!!!!!!!

Ester

1.7.2008 kl. 12:20

Yrði manna ánægðastur ef tjald er til á Einarsstöðum sem hægt væri að fá. Hjálpa glaður við að tjalda því.

Þröstur Kolbeins

1.7.2008 kl. 11:49

Partýtjald

Sælt veri fólkið.

Það voru að berast fregnir að mögulega séu til tjöld í Reykjadal og ætla ég að skoða það í kvöld. Ef til þess kæmi að við þyrftum að leigja þá er vert að skoða Byko á Akureyri svo það sé ekki verið að dragnast með 80 kíló aukalega norður í land.
kv.Kristín

Kristín

30.6.2008 kl. 20:12

Partytjald

Sæl öll! Eg held að Partýtjald sé ómissandi þáttur í þessum HITTINGI ef rignir hvað þá kv.Ása

Ása

30.6.2008 kl. 19:27

Hæ hó

Hæ hæ.

Já við ætlum auðvitað að mæta á hitting. Er alveg með því að hafa partýtjald! :). Alveg nauðsyn til að hafa ef veðrið verður okkur ekki hliðhollt, þá geta allir komið saman í partýtjaldinu og átt góða stund saman í stað þess að allir hópist í sín privat tjöld, hver í sínu horni.
Annars ekkert að frétta, náði mér í ælupest og hita. Ekkert spes sko. Hlakka bara til að sjá ykkur öll!.

Kveðja
Anna Júlía & Arnþór Haukur

Anna Júlía & Arnþór ;)

30.6.2008 kl. 10:21

Sælt veri fólkið , ég er með þessari "Partý tjalds " hugmynd .
kv úr Sólinni í Reykjavík

Auður Hallsdóttir

30.6.2008 kl. 9:45

Heil og sæl öll, langt síðan ég hef kvittað svo ég geri það núna,var í útilegu um helgina með Kíwanis í kulda og regni en það var samt gaman,bara klæða sig vel svo var líka partýtjald sem var mjög gott.En ég er sammála því að fá leigt partýtjald í hittinginn,mættu fleiri tjá sig um það.Kv.Jófríður.

Jófríður Halls.

29.6.2008 kl. 23:34

Heil og sæl,bara að kvitta fyrir mig.Búin að vera jafn löt og aðrir að kvitta undanfarna daga eins og aðrir en kíki samt daglega hér inn.Ég er farin að hlakka svo til að hitta alla á ,,hittingnum",svakalega skulum við hafa það skemmtilegt.
kveðja Ester

Ester

28.6.2008 kl. 21:12

Partýtjald

Við styðjum þessa hugmynd um að leigja partýtjald, 25000 kall er nú ekki mikið þegar margir taka sig saman og leggja í púkk:) Mér finnst það persónulega mikið öryggisatriði þar sem við vitum aldrei hvernig veðrið verður og leiðinlegt ef það rignir að allir hrúgist bara inn í sín tjöld eða sínar vistarverur og eru svo bara þar allt kvöldið... Sammála???
Annars erum við bara kát á Dalvíkinni, þrátt fyrir haglél fyrr í dag hehehe:D Bara búin að hanga innandyra í allan dag.

María Jónsdóttir frá Sandvík

http://maja1907.bloggar.is

24.6.2008 kl. 20:28

Kem ef Guð lofar

Sælt veri fólkið.Eg vonas til að geta komið,en veit ekki minn næturstsð enn sem komið er,eða hvort eg kem á föstud.eða laugardag,það skírist þegar nær dregur .Kveðja Ása

Ása

23.6.2008 kl. 21:53

Sælt veri fólkið.

Ég var í Stafni í gær að kíkja á fólkið. Þar var verið að viðra útilegugræjurnar og fellihýsið fyrir landsmót hestamanna. Snorri og Marsý fara þangað....held að Alli öfundi þau....ekki ég. Hvað um það, það var svosem ekkert niðurnelgt í tengslum við hittinginn mikla. Það er bara að mæta og kannski eru einhverjir sem vilja bara kíkja þá er laugardagurinn tilvalinn. Einhverjir vilja jafnvel fá sér göngu niður í gil eða í skógræktinni og er það bara fólksins að sammælast um það. Ef einhverjir hafa aðgang að partýtjaldi(tjöldum) þá væri gott að hafa svoleiðis. Það er búið að panta gott veður en maður veit aldrei.Síðan seinnipartinn mætti grilla saman það er að segja á sama blettinum en hver fyrir sig. Þar kæmu partýtjöldin sterk inn og svo ferðastólarnir sem vonandi allir eiga. Við höfum salernisaðstöðu í Stafni og við mamma amk verðum í Vallholti og þá hægt að nýta sér það. Það verður hægt að tjalda bæði fyrir ofan bæ og neðan ef því er að skipta. Við erum siðað og sannkristið fólk svo þetta ætti allt að ganga eins og í lygasögu ;)
Þið bara sendið mér fyrirspurn ef þið viljið fá eitthvað fast í hendi en eins og áður er sagt þá er ekkert niðurnelgt. Tilllögur eru vel þegnar og eins upplýsingar um viðburði í nærsveitum eins og til dæmis eru tónleikar í hlöðu í Mývatnssveit þessa helgi og svo er alltaf gaman að skreppa þangað og kaupa sér reyktan silung. Ég geri ráð fyrir að mæta á svæðið á föstudaginn, fyrr ef ég kemst upp með það.
Hitti Mæju í Sandvík í dag. Það hafði verið talað um að við myndum græja þetta eitthvað en ég held að það sé bara samvinna allra sem blívur.
Gaman væri að fá sirka tölu á fjölda þeirra sem ætla pottþétt að mæta. Nú vona ég bara að þeir sem fara reglulega inn á síðuna deili upplýsingum (ef upplýsingar skildi kalla)til sinna manna og kvenna og bræðra og systra og barna og svo framvegis. Olla og Inga eru á staðnum, mamma mætir, hef heyrt að Ása komi og Mæja líka amk eru þær allar upplýstar.
Svo er bara að safna upp gleði og góðu skapi og mæta.
Hittumst hress, kær kveðja, Kristín.

Kristín

23.6.2008 kl. 20:27

Sæl verið þið öll,...aðeins að kvitta fyrir mig.Allt gott að frétta,enda varla annað hægt í þessu fína veðri sem búið er að vera hér fyrir sunnan í marga daga,maður á þessu ekki að venjast svona marga daga í röð.Mamma fór norður í gær og ætlar með Ollu og öðrum eldriborgurum í Þingeyjarsveit í ferðalag á ,,Ísbjarnarslóðir" á morgun og hún verður svo fyrir norðan fram að hittingnum sem nálgast óðum.Annars óskup rólegt hjá okkur hér gamla settinu þessa dagana en lifnar nú líklega aðeins á fimmtudaginn því þá kemur Jóel heim.Hafið það svo gott elskurnar og ég hlakka til hitta alla eftir bara rétt rúmar tvær vikur.
Kveðja Ester

Ester

17.6.2008 kl. 20:23

Sælir ættingjar. Það er töluvert langt síðan ég kvittaði síðast. Búið að vera bísna mikið að gera hjá mér. Ennþá í úrabúðinni en var svo að bæta við annarri vinnu sem ég vinn heima á morgnana, og stundum á kvöldin líka. Þar sem kella hefur verið dugleg að sofa út á morgnana þá var hún ansi þreytt fyrstu vikuna, og var komin snemma í háttinn. En þetta venst.
og nú á að senda kallinn til Grænlands að vinna í mánuð. Þar verður hann í afskekktum firði, þar sem ekkert símasamband er, en netsamband, þannig að hægt að tala saman í gegnum netið. Nú er bara að vona að mánuðurinn verði fljótur að líða. Hann fer á fimmtudag og kemur aftur 17. júlí.
Við höfðum hugsað okkur að kíkja til ömmu og co í Munaðarnesinu, en þar sem þetta Grænlandsævintýri kom skyndilega upp á, þá sáum við okkur ekki fært að fara. Heyrði í þeim mæðgum um helgina og þá voru þær allar komnar í pottinn og létu fara vel um sig.
Ekki meira í bili
kveðja

Hulda Jóns

17.6.2008 kl. 12:42

Nei,nei,nei Ása,...ég var nú aldeilis ekki étin út á gaddinn,mannskapurinn lagði svo vel á borð með sér og Hjónabandsælan gerði heldur betur lukku og fór ekki moli til spillis,......kveðja Ester

Ester

16.6.2008 kl. 22:48

Sæl og blessuð öll.Letin að drepa mann,svo maður nennir ekki einusinni að skrifa nokkrar línur.En Ester er ekki búið að borða þig út á gaddinn.Eg fékk aðeins að sjá þetta sama fólk en það fékk ekki mikið að borða hjá mér,eg frétti að það hefði verið "Hjónabandssæla" í morgunmat hjá Önnu í Vesturberginu.Við Inga ætlum að heimsækja Maríu sistur okkar í súmarbústað upp í Borgarfjörð ámiðvikudaginn.Annars er lítið sem skeður hjá okkur hér í Mávanesinu.Hlakka til að hitta ykkur í Hittingnum kv.Ása

Ása

16.6.2008 kl. 20:09

Sæl og blessuð elskurnar,mannskapurinn eitthvað sloj þessa dagana?nei,sennilega allir eitthvað að stússa og komnir í sumarfrí og svona.Það er búið að vera heldur betur stuð hjá mér síðustu daga,fékk að hafa gesti alveg frá fimmtudegi og þar til í dag.Þröstur og Svala komu aðfaranótt fimmtudags útitekin og afslöppuð eftir langt og gott frí á Spáni og við gátum nú aldeilis spjallað og borðað góðan mat eins og þið getið nú rétt ímyndað ykkur.Þau fóru svo norður á laugardag og þá komu Þórustaðahróin,Stefán og Anna svo það var bara haldið áfram á sömu braut með spjall og át,þau brunuðu svo norður í dag.Svo er maður bara farinn að dauð hlakka til að hittast á ,,hittingnum"góða,það stittist nú óðum í hann.Veðrið er búið að vera bara alveg ljómandi gott undanfarna daga og hefur þvílíkt léttst á manni brúnin við það.Kolbrún,Mark og Katrín eru að leggja í 'ann til Ameríku á morgun í sitt sumarhús,verða sjálfsagt áð ditta að og stússa þar eins og súmarbústaðafólk þarf að gera sama hvort það er á Íslandi eða í Ameríku.Jóel er svo að koma heim í sumarfí eftir næstu helgi svo hann ætti að geta kíkt á hittinginn.Jæja gullin mín,þetta er nú svona það helsta sem er að frétta héðan frá mér þessa dagana,farið þið svo varlega elskurna,........kveðja Ester

Ester

12.6.2008 kl. 22:20

Alltaf er jafn gaman að kíkja á þessa síðu og lesa hvað ættingjarnir eru að aðhafast. Hér eru bara rólegheit, svona eins og hægt er þegar EM er annars vegar... minn maður mikill áhugamaður um knattspyrnu svo hann kemur snemma heim úr vinnunni þessa dagana til að horfa á EM... vildi stundum að ég hefði sama aðdráttarafl og TV-ið hehehehe:D En það er hins vegar voða gott að hann hætti svona snemma núna þar sem ég er búin að minnka vinnuna við mig og vinn nú til 2 á daginn og þá getur Addi sótt guttaling í leikskólann fyrir 4, sem Alexander finnst nú ekki leiðinlegt, að fá að sitja á hjólinu með pabba sínum... það er sko toppurinn á tilverunni. Veðrið er búið að vera fínt hér í utanverðum Eyjafirðinum, soltið kalt með sólinni í dag reyndar.. þessi B-vítans hafgola sem á það til að pirra mig ótrúlega mikið... ekki það sem maður er alinn upp við. Ókosturinn við þetta EM er sá að ég þarf að bíða rúmum hálftíma lengur eftir þættinum mínum - Desperate houswifes - vegna samantektarþáttar... *pirr pirr* svo ég hef lítið annað að gera en að vafra um á netinu og skoða.
Ég reikna ekki með að við komumst í bústaðinn til þeirra mæðgna, þó það hefði nú verið gaman að kíkja og gista eina nótt... þetta er bara full langt finnst mér að fara fyrir svona stuttan tíma.
Eigið góðar stundir um helgina sem og aðra daga... Pamela í Dallas:D

Maja

11.6.2008 kl. 18:21

Halló ættingjar alltaf jafn gaman að fylgjast með hvað þið eruð að gera hér er þetta svona í venjulegum gír ég er laus við gifsið af tánum þetta er allt að gróa og verður vonandi betra á eftir ég var nefnilega að láta taka bein og laga tær og er búin að lifa letilífi síðustu 4 vikur .Við systur erum að fara Með móður okkar í sumarbústað í Munaðarnesi núna 13-20.júní það er svona í tilefni af afmælinu og á óskalista hjá henni einhverjir fleiri ætla að reyna að kíkja eitthvað á okkur menn mis uppteknir við bústörf og fleira .endilega kíkið ættingjar ef þið verðið á ferðinni þessa viku.Takk fyrir fallegar kveðjur til Jóns kv :Sissa

sissa

10.6.2008 kl. 17:21

Halló!

Daginn, daginn.

Gestabókin búin að vera heldur róleg undanfarið, svo margir uppteknir í sumarfríi og eyða tíma sínum í eitthvað annað en að vafra á veraldarvefnum :)he,he. Það er rúm vika síðan ég byrjaði aftur á leikskólanum og það er rosalegt FJÖR ;), og sú gamla (ég) heldur þreytt (bölvaður aumingjaskapur) þegar hún kemur heim á daginn, bara smá viðbrigði fyrst, en þetta er voðalega gaman alltaf ;). Er svo grasekkja um þessar mundir, Arnþór er núna að vinna í Kröflu í nokkrar vikur. Lítið hefur farið fyrir garðstörfum á þessum bæ (þar sem enginn garður er ennþá) svo ég get nú ekkert grobbað mig af blómum og svoleiðis fínerí þó ég gjarnan vildi, en keypti samt eitt (Betlehemstjörnu minnir mig) og hengdi upp við forstofuna, voða fínt finnst mér.

Hlakka til sumarhittingsins! ;)
Verið nú dugleg að kvitta og segja okkur hvað þið eruð að brasa ;).

Kveðja
Anna Júlía

Anna Júlía Aðalsteins & Jófríðardóttir

9.6.2008 kl. 22:57

Sæl og blessuð elskurnar.Komin heim á klakann,verið mjög löt síðan við komum heim,veðrið hefur verið köflótt svo ekki hefur gefið til sláttar,en logsins í dag steig bóndinn á sinn sláttutraktor,og afurðirnar svona eitt belju-fóður.Smá bið í töðugjöldin kærar kveðjur til ykkar allra Ása

Ása

7.6.2008 kl. 18:38

Sælir ættingjar.

Kíki oft á síðuna og ákvað að kvitta núna. Hér er allt bara gott að frétta, var að rífa hluta af runnunum úr garðinum og er búin að vera að smíða ný blómabeð og setja niður sumarblóm & fjölært, þó ekki enn í gönguskó (en góð hugmynd!) :).
Aldrei þessu vant hefur verið bongó blíða á nesinu undanfarið!:). Við höfum því verið mikið utandyra síðustu vikuna í blíðunni.

Sólarkveðjur frá Tjörnesi :)

Jófríður Halls. og fjölskylda.

Jófríður Hallsdóttir

7.6.2008 kl. 10:46

Heil og sæl öll.Allt gott að frétta héðan frá mér.Ekki eins gott veður og þarna fyrir norðan,það er komin mígandi slagveðurs rigning,eins og maður sé ekki búinn að fá nóg að svoleiðis það sem af er árinu,en það hlýtur að stitta upp einhvern tíma.Ég er nú bara farin að hlakka til að hitta manskapinn í hittingnum í júlí,það er næsta ferðalag sem ég ætla í og svo er það bara SPÁNN í ágúst,verður flott að leggjast þar með tærnar upp í loft sveittur og sæll,fá sér eitt og eitt nudd á ströndinni og borða góðan mat.Verið svo stilt elskurnar, kveðja Ester

Ester

7.6.2008 kl. 10:40

Hér kemur eitt lítið fréttabréf úr sveitinni hans Helga magra.
Það sem helst telst til tíðinda að börnin okkar eru dugleg að viðhalda þeim góðu genum sem forfeður þeirra stofnuðu til. Frún hér á bæ eignaðist sitt fyrsta langömmubarn 30. maí og viku seinna lítil dama á Skaganum(barnabarn). Nú eins og tryggir lesendur vita þá er krakkahópurinn stór og sumir rétt að byrja í barneignum og aðrir bíða betri tíma.
Nú nú vorverkin standa enn yfir..búið að höggva runna, drepa blöðku, færa grjót, setja niður blóm, í gamla gönguskó, hraðsuðukatla og svo er húsfreyjan að gæla við gamlan bláan vask..sem á eftir að verða fallegur blómapottur...Stefán minn hristir hausinn sem aldrei fyrr. Annars er allt gott að frétta af öllum afkomendum, stórum sem smáum, heimasætan hún Jófríður alltaf jafn sæl í Chile, og við hróin blómstrum eins og sólir í heiði.
Læt hér staðar numið.
PS: Kristín mín þú klikkar ekki:)

Þórustaðahróin, Stebbi og Anna

7.6.2008 kl. 10:01

Það er líka GOTT veður á klakanum

Var vaknaður snemma og ákvað að kíkka á síðuna lítið að gerast hjá ættmennum okkar ,enda eru allir erlendis,eða flestir,Það er komin 15 stiga hiti hérna núna þannig að þetta er flott, annars allt gott að frétta héðan,erum farin að stilla hugan til ferðalags "erlendis" nei nei erum að fara út í Grímsey í lok mánaðarins á sjóstangaveiðimót það verður flott.Annars kveðjur til ykkar allra heima og utan.

Hafþór

5.6.2008 kl. 8:26

Gott vedur a Spani

Ja thad var sma rigning her um daginn en hitinn for aldrei nidur fyrir 16-17 stig. Sidustu daga hefur verid svona 25-30 gradu hiti. Mamma og Jon foru heim seinnt i gaerkoldi og krakkarnir fara heim seinnt i kvold. Allt gott ad fretta. bid ad heilsa ollum og serstaklega ollum afmaelisbornunum.
Kvedja ur solinni,
Throstur og Svala.

Throstur og Svala

3.6.2008 kl. 21:55

Það spurning hvort hefði ekki bara verið betra að fara norður í land þar er búið að vera 15-20 stiga hiti í 2-3 vikur (smá grín)

Jósep Hallsson

3.6.2008 kl. 12:32

Kvedja frá Spáni

Nú er eg búin ad vera hér í 3 vikur,í kalsa og rigningu,smá sól stundum madur má ekki barakvarta.Vid Jón sendum bestu kvedjur til allra og hamingjuóskir til theirra sem hafa átt afmdli.Komum heim seint annad kvöld kv.Ása

Ása

1.6.2008 kl. 15:18

Hópurinn farinn

Jæja þá er ég búin að skila þessum Ítölum á völlinn. Þeim stóð ekki á sama með þessa skjálfta og því hættum við við að fara Gullfoss, Geysir hringinn, fórum frekar Perlan Reykjanesið hringinn. Þeir voru hæstánægðir og ég guðslifandi fegin að þurfa ekki einu sinni enn þarna um suðurlandið. Þeim fannst Húsavík og Mývatnssveitin standa upp úr í þessari ferð, enda ekki skrítið...

Nína Björg

31.5.2008 kl. 15:19

Halló allir er búinn að vera í útlegð í sumarbústaðnum ekkert netsamband ,en skrapp í bæinn til að kíkka á síðuna,og sendi hérmeð síðbúnar afmæliskveðjur til þeirra sem hafa átt afmæli síðustu daga,annars allt gott héðan að norðan,smá rigning í dag, þurfti að vöka hvort sem er.Bara passið ykkur á bílunum ef þið eruð að þvælast eitthvað,erum svo dýrmæt..hafþór

Hafþór

31.5.2008 kl. 13:08

Sæl og blessuð elskurnar,...bara aðeins að kvitta fyrir mig.Það er nú allt meinhægt hér hjá mér,aðeins meira um að vera á suðurlandinu,maður getur varla ímyndað sér hvernig fólki líður þegar svona náttúruhamfarir ríða yfir eins og stóri skjálftinn á fimmtudaginn,hlýtur að vera skefilegt að sjá heimili sitt í rúst og geta ekki rönd við reist.Veðrið er nú búið að vera alveg þokkalegt hér undanfarna daga,milt og nánast þurrt.Annars líður tíminn svo hratt að sumarið verður búið áður en maður veit af,allt í einu bara kominn júní.....Hafið það nú gott gullin mín,.kveðja Ester

Ester

27.5.2008 kl. 22:37

Halló gott fólk, við höfum ekki verið í netsambandi síðastliðna viku vegna flutnings frá Hive í Tal ..(annars kíki ég nokkuð reglulega hingað)..nýr beinir (router) kom í dag og samband komið á. Það hefur verið mikið um að vera hér á Ásgarðsvegi 14 í maí, þriðjudaginn 13.maí var byrjað að skifta um glugga í húsinu, föstudaginn 23. maí útskrifaðist Tómas frá FSH , og vorum við með "stúdentshitting"hér fyrir fjölskylduna það var skemmtilegur og góður dagur. Laugardaginn 24.maí "Júrógrill" í Mývó. Sunnudaginn 25. maí lóðin sleginn í fyrsta sinn þetta árið og í dag 27. maí eru allir 24 gluggarnir komnir í og búið að ganga frá öllu. Annars bara allt gott Einar vinnur hjá Jarðborunum í sumar og Tómas í N1. Bestu kveðjur til ykkar allra hérlendis sem erlendis. Fía

Fía

24.5.2008 kl. 21:06

Óska ykkur hjartanlega til hamingju með áfangann Anna Júlía og Tómas
Kveðja til fjölskyldna ykkar

Gunna ömmusystir

Gunna

24.5.2008 kl. 13:07

:)

Kærar þakkir frænkur ;)!

AJA

24.5.2008 kl. 13:07

Til hamingju Anna Júlía og TIL HAMINGJU ÍSLAND!! Ég er nú svo viðkvæm þessa dagana að ég hreinlega grét þegar Íslendingarnir stigu á stokk... þau voru frábær. Við förum að sjálfsögðu í júrópartý á Dalvík í kvöld... rosa stemning í bænum og júródiskotek ala Júlli í Víkurröst... hef nú ekki farið á ball þar síðan 1994!!!
Ég hef því miður ekki komist neitt í sauðburð þetta vorið og reikna ekki með að ég finni mér tíma í það þar sem við erum að leggja af stað á mánudagskvöldið suður og svo strax út til Fuerteventura og verðum þar í viku, ætli verði ekki allt búið þegar við komum heim.
Allavegana... vonandi skemmta allir Íslendingar sér vel í kvöld, sem á annað borð hafa áhuga á júróvision og ÁFRAM ÍSLAND!!!

Maja

24.5.2008 kl. 12:41

Til hamingju Anna Júlía!!!
kveðja, Kolbrún og fjölskylda

Kolbrún

24.5.2008 kl. 12:25

Til hamingju með áfangann Anna Júlía!!!!!!!!!!!!
kveðja Ester

Ester

24.5.2008 kl. 10:21

Sælir ættingjar góðir og skemmtilegir!
Júrópartý í kvöld? ja allvega verður meira spennandi en venjulega, verð að viðurkenna að ég varla horft síðan 2004 ;)
Var að útskrifast sem stúdent af félagsfræðibraut frá FSH í gær ;) Það var voða gaman ;).
Hafið það sem best!

Kveðja
Anna Júlia

Anna Júlía!

22.5.2008 kl. 22:28

Halló allir,,,,alltaf jafn gaman að kíkja hér inn og ákvað að kvitta í þetta sinn í tilefni að þessu flotta kvöldi! Áfram Ísland!!!! Af mér er allt gott að frétta sumarið að færast yfir og því fylgir að að aðlaga litla grísi á leikskólann minn,ótrúlega skemmtilegur tími! Er því miður ekki búin að komast heim í Glaumbæ að kíkja á sauðburð en þar gegur víst allt sinn vanagang nema hvað mamma er auðvitað eiturhress nýkomin úr Hveragerði! Ég vona að það verði svaka stuð hjá ykkur í sumarhitting en ég verð því miður stödd á Krít þessa helgi,,,þannig þið hin verið bara að skemmta ykkur fyrir mig líka! Hafið það ætið sem best! kv. Olla litla

Olla yngri

22.5.2008 kl. 21:21

TIL HAMINGJU ÍSLAND og að sjálfsögðu DALVÍKINGAR,þá er loksins hægt að hafa alvöru Evrovisonpartý á laugardaginn,.........og stelpur,...iss það er bara æði að vera rennsveittur á sólarströnd með öllara eða hvítví eða bæði,...það er nú bara gott fyrir húðina.Verið svo kát og hress öll. Kveðja Ester

Ester

22.5.2008 kl. 20:07

Hahahaha... Kristín þú ert yndisleg:D Ég á nú alveg von á að ég eigi eitthvað eftir að svitna þessa viku sem við verðum úti en ég hangi þá bara við sundlaugina og læt lýsið leka ofaní laugina;)

Maja

21.5.2008 kl. 22:52

Hey, gleymdi þegar ég fór til Cambridge það var sama sagan, mín glansandi á stuttermabol en ferðafélagarnir í jökkum með trefla. Heima er best.
Kveðja Kristín

Kristín

21.5.2008 kl. 22:50

Sælir ættingjar

Ég er nú bara sátt með að vera hér heima. Ég fór um árið til Danaveldis og Þýskalands og beggja vegna landamæra var hitabylgja og mín allan tímann glansandi af svita. Mín fór til Tyrklands í viku (þá átti að vera farið að kólna miðað við árstíma) Það lak af minni svitinn, afgreiðslufólk í búðum blakaði blöðum og setti viftur í gang þegar ég mætti. Núna er ég bara heima á breytingaskeiðinu, glansandi af svita en þarf ekki að borga krónu fyrir það. Svo ég er nokkuð góð. Annars ekkert þannig að frétta, bara allir nokkuð heilir á geðsmunum og það þykir jú gott í nútímasamfélagi.
Megi guð og gæfan fylgja ykkur.
Kveðja, Kristín

Kristín

21.5.2008 kl. 19:57

Gaman að vera Dalvíkingur í dag... svo mikil stemmning hér þessa dagana, allir að missa sig yfir Eurovision (fyrir þá sem ekki vita er Friðrik Ómar gamall Dalvíkingur), búið að skipuleggja heilan helling kringum þessa keppni, taka upp stuðningsmyndband og ég veit ekki hvað.
Annars bara gott að frétta héðan, sólin farin að skína aftur og svona og ég byrjuð að styrkja sundlaugina aftur í leit að smá brúnku fyrir Kanarí... ekki nema 6 dagar þangað til við verðum komin í sólina í viku.

Maja

20.5.2008 kl. 21:46

Sæl elskurnar,bara að kvitta fyrir mig,allt gott að frétta hér,við hjónakornin vorumj að koma úr smá golftilraun og það var bara mjög gaman,greinilega hægt að ánetjast þessu og erum að hugsa um að prófa aftur fljótlega.Gaman líka að sjá bloggið hjá Þresti og Svölfrá Spáni og ekki þá síst myndirnar,maður getur varla beðið eftir fríinu,við Sæmundur ætlum að fara þarna í ágúst.Jæja,gullin mín hafið það nú gott,..kveðja Ester

Ester

20.5.2008 kl. 10:01

Mosquito Bar blogg

Nýtt blogg komið inn á www.123.is/oskar1958

Þröstur Kolbeins

www.123.is/oskar1958

18.5.2008 kl. 10:17

Minni hér með á Spánar blogg...

MOSQUITO BAR er með fría þráðlausa internet tengingu sem gerir mér kleift að senda smá Spánar blogg á veraldar vefinn. Endilega kíkið.
Kveðja úr sólinni á Spáni (þetta er að verða ansi þreyttur frasi, þessi um sólina á Spáni)hahaha....

Þröstur Kolbeins

www.123.is/oskar1958

17.5.2008 kl. 16:03

Komið þið öll sæl og blessuð og hvað segið þið gott í dag?Mikið var ég fegin að sjá að það er asahláka hjá Þórustaðahróunum á Tenerife og að afmælisbarn dagsins hefur það notalegt á Spáni.Kristín mín þú ert alveg að standa þig eins og hetja sem síðustjóri enda ekki við öðru að búast af svona eldkláru og meinfyndnu eintaki af Stafnsættinni.Það er nú allt í rólegheitum og mjög tíðindalítið hérna hjá mér,maður bara dinglast í vinnu og heim aftur.Hafið það svo gott elskurna,
kveðja Ester

Ester

15.5.2008 kl. 23:53

Heil og sæl
Gott að erlendisfarar hafa það gott í sólinni. Ég gladdist yfir því að síðasti snjórinn hvarf í fyrradag af lóðinni hjá okkur. Oft þarf ekki mikið til að gleðja mig.Þannig að Þórustaðahróin hefðu getað sparað aurinn og komið til Dallas: asa hláka hér líka.
Alli alltaf á sjó, stóru börnin á Akureyri svo við Manda mús sitjum uppi með hvor aðra. Vorum í Lerkilundi í rúma viku um daginn það var frábært, mig langaði ekki til Dalvíkur aftur en þetta venst.
Bestu kveðjur frá Dalvík.

Kristín

15.5.2008 kl. 19:29

Halló halló...erum í gódu yfirlaeti á eyjunni tenerife..frábaert asa hláka,,,
Kvedjur,
Anna og Stebbi

Thórustadahróinn

15.5.2008 kl. 13:38

Kvedja fra Spani

Allt gott her, ekki of heitt en samt gott.
Bestu kvedjur.
Trostur og Svala

Trostur Kolbeins

15.5.2008 kl. 13:20

Aftur Norður

jæja þá er ég aftur á leiðinni norður í land með hóp af Ítölum. Í þetta skiptið er það bæjarstjórn San Benedetto del Tronto sem ætlar að fara að skoða ruslahauga á Húsavík. Annars hitti ég nú hann Hallmar frænda minn í kvöldmat í gær. Við sátum úti í sólinni í Reykjavík og átum. Það var nú aldeilis fínt

Nína Björg

12.5.2008 kl. 13:28

Takk fyrir kveðjuna Hafþór minn,alltaf flottastur og gaman að hitta ykkur hjónakornin um daginn,sjá vinaleg andlit í þessari ljótu miðborg.Það er annars bara allt gott að frétta héðan,Dedda var hjá okkur um helgina og við gátum aðeins spásserað í Kringlunni og svona.Annars sínist mér allir vera eitthvað að drífa sig til útlana þessa dagana og ég óska þeim öllum górar ferðar og góðrar skemmtunar.Hafið þið það svo gott elskurnar, ...kveðja Ester

Ester

11.5.2008 kl. 22:09

Sæl og blessuð öll!!Datt í hug að láta vita að eg væri á lífi,er búin að vera að drepast eins og það heitir á góðri Íslensku,held að mér sé að batna,enda ekki seinna vænna því það er brottför á miðvikudag til Benidorm.Takk fyrir kveðjuna Hafþór kveðja Ása

Ása

11.5.2008 kl. 17:21

Heil og sæl öll datt í hug að skrifa nokkur orð inn á síðuna okkar,lítið að segja en var staddur í Reykjavíkurhreppi um síðustu helgi, og fór með veggjum til að verða ekki laminn eða rændur,sem sagt lét lítið á mér bera,þegar ég læddist um miðbæinn hvað haldiði verða ekki á vegi mínum tvær fallegar frænkur mínar þær Kolla og Ester á leiðinni í kaffi pásu,þannig að þetta er nú lítill heimur.Bestu kveðjur og til hamingju með mæðradaginn Stafnskonur.:):):)

Hafþór

10.5.2008 kl. 17:51

Sæl öll datt í hug að kvitta núna þó lítið sé að segja nema við hjóninn erum búinn að vera með flensu,hún er víst enn að ganga þetta er ljóta pestin,en erum að komast á lappir,því betur eru rollurnar ekki farnar að bera hér er hálfgert vetrarveður búið að vera síðustu daga,hafið það svo gott kveðja.

Jófríður

8.5.2008 kl. 23:00

Elsku ættingjar og vinir...það gladdi mitt litla hjarta að sjá allar þessar frábæru kveðjur, það og það er nú ekkert smá að fá að tilheyra þessum fríða og föngulega hópi, en ekki hvað.. við hjúin hér á Þórustöðum lifum eins og blóm í eggi, alsæl að vera orðin tvo í kotinu..enn og aftur takk takk.
PS. Mæja frænka..takk fyrir góða afmælisveislu á sunnudaginn.

Anna Ring

5.5.2008 kl. 20:36

Sammála systur minni, góð veisla hjá ömmu í gær, gaman að sjá allar myndirnar sem komnar eru á síðuna.
Kveðja

Hulda Jóns

5.5.2008 kl. 19:07

Þetta var bara hin prýðilegasta veisla í gær hjá henni ömmu minni fannst mér... ég borðaði mig amk vel sadda af kjöti og kökum:) Verð samt að viðurkenna að mér finnst pínu skrýtið að hún sé að verða 8ræð konan... finnst svo stutt síðan hún varð 7tug:O En tíminn líður bara svo hratt... ætli ég verði ekki orðin 8ræð áður en ég veit af hehe:D
Hér á Dalvíkinni er veðrið aðeins að skána, búið að vera voða hlýtt og gott í dag amk. Sonurinn kominn með hlaupabólu en hún er víst að ganga þessa dagana... var bara nokkuð sátt að hann fékk hana núna, það er þá búið þegar krílið lítur dagsins ljós í haust:D
Bestu kveðjur frá Dalvíkinni... Maja

María Jónsdóttir

5.5.2008 kl. 18:07

Sæl og blessuð öll,..
Allt gott að frétta hér,kallin í Köben fram á fimmtudag svo ég er nú bara ein að rolast í rigningunni.Mikið var gaman að skoða myndirnar úr afmælisveislunn hjá Maju,fullt af fólki sem maður þekkir og svo komst maður að því að það er líka fullt af ungu fólki sem maður hefur ekki einu sinni séð.Mikið verður gaman að hittast í sumar,ég er farin að hlakka svo til.Verið nú hress elskurna,..kveðja Ester

Ester

5.5.2008 kl. 14:28

Sælir ættingjar góðir.

Ákvað bara svona að kvitta í gestabókina þar sem maður kíkir hingað á hverjum degi eða þegar tækifæri gefst til. Við komum til landsins í gær og brunuðum beinustu leið norður. Enda vinna eða próflestur hjá fólkinu ;). Danmörk var meiriháttar og skoðunarferð um ,,Kristjaníu" stóð algjörlega upp úr, algjör snilld að skoða sig um þar. Annars er ekki mikið annað að frétta, ég einmitt komst ekki í afmælið hjá ömmu og fannst það mjög súrt en svona er lífið :S.
Svo var yngsti bróðir minn hann Hafsteinn 15 ára í gær, tíminn líður hratt verð ég að segja. ;) En það er víst betra en að standa í stað. ;)
Hafið það sem allra best, kveðja úr bongó-blíðu í Reykjahverfi.

Anna Júlía

AJA

4.5.2008 kl. 20:36

Sælir ættingjar nær og fjær!! Nú er eg orðin dálítið spent að fá fréttir úr afmælis-veislunni hennar systur minnar,hún stendur kanski enn. Maja mín eg óska þér innilega til hamingju með daginn.Kveðja þín systir 'ASA

Ása

4.5.2008 kl. 10:08

Afmæli 4. Mai 2008

Í dag 4. mai á Hafsteinn Aðalsteinsson 15 ára afmæli. Hafsteinn er sonur Jófríðar Hallsdóttur og Aðalsteins Guðmundssonar á Kvíslarhóli. Hafsteinn er enn ein sönnun þess hve vel þessi ætt er úr garði gerð. Hafsteinn verður trúlega í Bárðardal á afmælisdeginum að halda upp á 80 ára afmæli ömmu sinnar. Hann fær allar bestu kveðjur frá okkur ættingjunum.

Afmælisvaktin.

3.5.2008 kl. 17:51

Halló

kæru ættingjar, hef aldrei skrifað hér áður en að sjálfsögðu kíki ég hér inn reglulega, ég vonast til að sjá einhverja á morgun hjá elsku ömmu minni.

Inga Rún Jónsdóttir

2.5.2008 kl. 20:28

Veisla í Bárðardal

Boðið hefur verið til stórveislu í barnaskólanum (öðru nafni Kiðagil) í Bárðardal, næstkomandi sunnudag kl: 14.00. Það er sómakonan María Helgadóttir sem ætlar að þjófstarta 80 ára afmæli sínu einum 10 dögum fyrir afmælisdaginn. María vonast eftir því að sjá sem flesta ættingja og vini við þetta tækifæri. Núna legst maður bara á bæn að veðrið sé að batna og heilsi afmælisbarninu með blíðu.

Þröstur Kolbeins

28.4.2008 kl. 23:33

Ég verð að tjá mig um þessa helgi kemst því miður ekki .Þar sem við Jón verðum í Færeyjum á Norrænni þjóðdansaráðstefnu með danshópnum Vefaranum.mér finnst leiðinlegt að missa af þessu .En það er alltaf svo að eihverjir komast ekki .kveðja Sissa

sissa

27.4.2008 kl. 21:28

Heil og sæl öllsaman og gleðilegt sumar.Það er nú loksins farið að verða svolítið vorlegt hér í Reykjavíkinni,búið að vera alveg rjóma veður síðustu daga.Dedda var hjá okkur um helgina og ef þið haldið að við höfum setið þeyandi allan tíman þá er það mikill misskilningur.Annars er bara allt gott að frétta af okkur og léttist bara á manni brúnin með hverjum degi í takt við hækkandi sól.Ég er bara farin að hlakka til sumarhittingsins og líst vel á þessa helgi.Verið svo stilt elskurna. Kveðja Ester

Ester

26.4.2008 kl. 21:31

Gleðilegt sumar allir og takk fyrir veturinn .hér er búin að vera einmuna blíða undanfarna daga en samt kaldara síðustu 2 daga við jón ásamt félögum okkar vorum að dansa á Húsavík í dag og hér á Akureyri síðasta sunnudag .verðum svo á Dalvík 1.maí kl 15.00 gaman að þessu .Ætla að geta þess hér að móðir okkar systkina verður 80 ára í vor, hún verður með opið hús í Kiðagili í Bárðardal sunnudaginn 4.maí frá 14.00-17.00 þar vonast hún eftir að sjá ættingja og vini og fleiri sumar kveðja frá þeirri sem er að verða 80 ára ,kveðjur úr Melasíðunni,Sissa og fjölsk.

sissa

26.4.2008 kl. 7:13

Gleðilegt sumar það er nú ekki mjög sumarlegt þennan morguninn hitinn 1 gráða og farið að grána í rót niður við sjávarmálen það er nú bara apríl vonandi verður maí með rjómablíðu kveðja úr Holtateignum Jósep H.

25.4.2008 kl. 19:42

Gleðilegt sumar!

Já krúttsprengjurnar mínar! Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Ég er alveg komin í sumargírinn eftir þessa rjómablíðu sem hefur verið síðustu daga, það var fyrst í morgun sem var frekar þungskýjað, annars bara búið að vera ,,mega" gott veður. Það er bara fínt að frétta, í dag fórum við mamma og Hafsteinn til Akureyrar, aðalerindið var að finna á mig útskriftarkjól, við vorum ekki lengi að því! :) Hittum svo Huldu frænku í JB skart og skelltum okkur líka til Sissu og Jóns í Melasíðu, jú og auðvitað til Ömmu líka þar sem Olla systir hennar var í heimsókn nýkomin úr skemmtiferð í borginni ;). Þannig að það var bara heldur betur gaman í dag. Svo er bara lærdómur, við munum svo bruna suður eldsnemma á þriðjudagsmorguninn ( kl. 4-5) því við eigum svo að mæta á Keflavíkurflugvöll kl. 14, en við erum að fara til Danmerkur í skemmtiferð, ég, Arnþór og Mummi ásamt þremur öðrum. Svo kemur maður heim beint í prófin ;). Fór á frábæra tónleika á miðvikudagskvöldið með Echoes í Ýdölum en þar hitti ég Stjána frænda minn ( Kristján Jósefs ), í dag hitti ég líka Hall Jóseps á Ak., maður er alltaf að rekast á ættingja ;) Gaman af því... held að það sé ekki fleira í bili, hafið það gott! :)

Kveðja úr sveitinni!
Anna Júlía

Anna Júlía Aðalsteinsdóttir

24.4.2008 kl. 21:49

Gleðilegt sumar kæru ættingjar. Það er nú aldeilis búið að vera indælis veður þennan fyrsta dag sumars. Held jafnvel að dagarnir verði lengri líka :) Ég náði allavega að afreka ýmislegt í dag. Við Pjakkur fórum í góðan göngutúr í blíðunni, afþýddi ískápinn, fór í bónus, þreif íbúðina, útbjó dýrindis kvöldverð, já og tók upp nokkur snið... hmmm að minnsta kosti er þetta nokkuð mikið hjá mér (miðað við hvað gengur og gerist).
Líst vel á sumarhitting
Kveðja

Hulda Jóns

24.4.2008 kl. 18:13

Gleðilegt sumar kæru ættingjar og vinir nær sem fjær. Takk fyrir veturinn. Kveðja, Kolbrún, Mark og Katrín Inga.

Kolbrún

24.4.2008 kl. 16:22

Heil og sæl öll gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn,hér er allt svipað veðrið búið að vera mjög gott og snjórinn er aðeins að hopa,hafið það svo gott kv.

Jófríður

24.4.2008 kl. 15:06

Kæru ættingjar óskum ykkur öllum gleðilegs sumars takk fyrir veturinn Olla Inga Ása Gunna Jón og Gunni

Asa

23.4.2008 kl. 20:48

Hér á Dalvík er búið að vera yndislegt vor veður síðustu viku en því miður skilst mér að spáð sé kólnandi næstu daga. Ég er alveg komin í vor/sumargírinn, get ekki beðið eftir því að snjórinn fari alveg og við getum farið að vera útá lóð með Alexander að leika. Annars var hann svo duglegur í dag að hann labbaði alla leiðina í og úr leikskólanum og þetta er nú bara sæmilega langt fyrir svona stutta fætur, þó mér finnist þetta ekki mjög langt:) Ég er að fara í námsferð austur á land með vinnunni minni á morgun og kem aftur heim á laugardaginn svo strákarnir mínir verða bara 2 heima á meðan, ágætt fyrir okkur öll held ég en þetta verður samt erfitt.
Fleira var það ekki að sinni... bestu kveðjur til ættingja minn nær og fjær, sérstaklega fjær þar sem maður sér þá sjaldnar;)

Maja á leið í mæðraorlof

http://maja1907.bloggar.is

20.4.2008 kl. 23:14

Halló ekki þarf nú mikið né merkilegt til að kæta okkar góðu systir við hlökkum líka til að hitta fólkið Sjáumst Olla og Gunna

Gunna

20.4.2008 kl. 21:38

Hæ.Hæ.

Það má sega að eg sé sprelllifandi,miðað við aldur og fyrri störf.Það er helst í fréttum hjá mér að eg á von á systrum mínum í heimsókn,þeim Ollu og Gunnu,get valla beðið eg hlakka svo til.Annars allt við það sama hér,mér líst vel á 4-6 júlí fyrir hitting,sjáumst kv.Ása

Ása

17.4.2008 kl. 19:41

Sæl og blessuð elskurnar og takk fyrir síðast Anna Júlía,það var gaman að hittast svona óvænt og það er alveg rétt hjá þér það hefur aldeilis tognað úr þér síðan ég sá þig síðast.Mér sýnist að það sé mest stemming fyrir 4-6 júlí fyrir hittinginn svo nú getur maður aldeilis farið að hlakka til.Annars er nú allt frekar rólegt og tíðinda lítið hér hjá mér,vonandi aðeins að fara að tosast í vorið og svona og þá léttist nú brúnin á manni,Hafið það svo gott,elskurnar,kveðja Ester

Ester

17.4.2008 kl. 8:49

Já og gaman að geta þess að í dag á Silfá Sól Almarsdóttir (systurdóttir mín) 11.ára afmæli :O)

Kv.
Anna Júlía

Anna Júlía aftur ! :O)

17.4.2008 kl. 7:36

Halló!
Ég er alveg sprelllifandi. Það er ágætt. Ég hitti nú frænku mína Ester og hennar mann Sæmund á Árshátíð N1 um síðustu helgi, það var gaman...þau höfðu ekki séð mig síðan ég var pínu pons, ég hef nú sennilega eitthvað stækkað síðan þá haha :O). Gaman að því. Hjá okkur er allt gott að frétta, ég vaknaði við fuglasöng ( og gæsagarg líka hehe) í morgun og það er bara búin að vera rjómablíða hér norðan heiða síðustu daga, ekki amalegt :). Ég kaus 4-6. júlí fyrir hitting. :)
Kveðja úr sól og yl í Reykjahverfi.
AnnaJúlía

..::;;AnnaJúlía;;::..

16.4.2008 kl. 22:07

Helgin 4-6 júlí hentar mér vel ég er að vinna hina helgina kveðja úr Holtateignum Jósep H.

14.4.2008 kl. 22:22

Halló bara líf og fjör hérna núna menn að komast í sumarskap enda farið að styttast í sumardaginn fyrsta .ég kaus seinni helgina ,en annars skipti það ekki máli mín vegna .annars allt í rólegheitum hér .Búin að vera í barnaafmælum í fjölskyldunni og éta á mig gat. kveðjur úr Melasíðunni Sissa og co

sissa

14.4.2008 kl. 20:02

Jájá... við Kristín ættum nú alveg að ráða við að halda utan um eitthvað, svo framarlega sem það kostar ekki mikið líkamlegt erfiði... verð orðin ansi sver um mig miðja í sumar (sko sverari en vanalega hehehhe:)) Ég hitti KG alltaf annað slagið svo við ættum að getað rætt eitthvað saman.

Maja

14.4.2008 kl. 18:19

Hittingur

Fyrstu hugmyndir eru að halda þetta í Stafni, ef Snorri samþykkir. Ég er að reyna að fá Kristínu Gunnars til að halda utan um þetta og kanski værir þú, Maja til í að mynda svona Dalvíkur teimi með Kristínu og hjálpa til líka. Margar hendur vinna létt verk. Bara svona hugmynd.

Þröstur Kolbeins

14.4.2008 kl. 17:30

Búnað kjósa og kaus seinni helgina en annars skiptir það ekki öllu máli fyrir okkur, erum laus hvora helgina sem er. En mér líst rosalega vel á þessa hugmynd. Á þetta að vera í Stafni eða??? Bara svo maður geti farið að skipuleggja gistingu og þess háttar:)
Héðan er svo bara allt gott að frétta... bumban stækkar og er það vel... ekki oft sem maður er ánægður með stækkun bumbunnar hehe:D Sólin skín á Dalvíkinni þennan daginn svo veðrið er yndislegt... ef maður er klæddur í hlý föt því það er enginn hiti sem fylgir sólinni í þetta sinn;D

Maja

14.4.2008 kl. 11:44

Innilegt þakklæti

Kæru ættingar!Ég þakka ykkur fyrir allar fallegu afmælis kveðjurnar sem þið senduð mér.Lifið heil kv.Ása

Ása

13.4.2008 kl. 19:57

Jibbí

Nú fer að færast líf í leikinn. Þetta verður bara gaman. Best að fara að huga að svefnaðstöðu svo allt verði nú klappað og klárt.
Frábært og vonandi geta sem flestir mætt þá helgina sem verður fyrir valinu.
Kveðjur úr snjónum á Dalvík.
P.s búin að kjósa.

Kristín

13.4.2008 kl. 18:06

Hittingurinn mikli:):):)

Halló
helgin 4-6 júlí er flott fyrir mig.Verð úti í Grímsey 27-29 þannig að svona standa málin hjá okkur....

Hafþór

Sjoak.is

13.4.2008 kl. 17:30

Um að gera að taka þátt í skoðannakönnuninni.

Gunna, þá er bara að taka þátt í skoðannakönnuninni hér til hliðar.

Þröstur Kolbeins

13.4.2008 kl. 16:50

Ef ég má vera memm þá er 4-6 Júlí góð Heyrumst Gunna

Gunna

13.4.2008 kl. 16:00

8000 gestir

Tuttugasti gesturinn í dag verður jafnframt 8 þúsundasti gestur síðunnar. Hver sem þú ert, til hamingju með það.

Þröstur Kolbeins

13.4.2008 kl. 11:56

Sæl öll,.........ég veit ekki annað en við hér gætum verið laus hvora helgina sem er,ég bara held þeim lausum,lýst nefnilega ljómandi vel á þann tíma.kveðja Ester

Ester

13.4.2008 kl. 9:16

Sæl öll mér líst betur á fyrstu helgina í júlí fyrir hittinginn er upptekin síðustu í júní kv.

Jófríður

13.4.2008 kl. 0:42

Sumar-hittingur.

Ef ég man rétt þá var tillaga mín að sumarhitting sú að hittast, annaðhvort síðustu helgina í júní eða fyrstu helgina í júlí. Mín tillaga er sú að hafa þetta sem allra óformlegast. Enga skrifaða og fyrifram planaða dagskrá, heldur að hver komi á sinum eigin forsendum og sjálfviljugur, þetta er jú, ekki skyldu mæting heldur tilraun til að safna saman sem flestum ættingjum á einn stað og hafa verulega góðan tíma saman við óþvingað andrúmsloft. Eina sem er skylda er að koma með jákvæða og góða skapið í farangrinum. Hver og einn sér sér fyrir gistingu, hvort sem það er í tjaldi, tjaldvagni, fellihýsi eða hóteli og eins er æskilegt að hver og einn sjái sér og sínum fyrir fæði. Þetta er aðeins mínar tillögur, endilega látið í ljós ykkar skoðanir og tillögur að vel heppnaðri fjölskyldu-Helgi.

Þröstur Kolbeins

12.4.2008 kl. 22:42

Heil og sæl öll eg verð að tjá mig eins og aðrir fór í leikhús með karlinum í næsta húsi því karlinn hér er á Flórída og til hvers er að eiga nágrana Stúdíóus er alveg mögnuð persóna Stefán fer á kostum í þessu Bless ykkur Gunna

Gunna

12.4.2008 kl. 20:58

HÆ ÉG ER Á LÍFI SATT ALLIR EITTHVAÐ DOMM,SAMMÁLA ESTER MEÐ SUMARHITTINGINN ÞAÐ VAR KOMINN UPPÁSTUNGA FRÁ ÞRESTI EN HÚN DATT ÚT ÞEGAR ALLT KLIKKAÐI VÆRI GOTT AÐ FÁ HANA INN AFTUR ÞRÖSTUR ÞEGAR ÞÚ HEFUR TÍMA,KV.

JÓFRÍÐUR

12.4.2008 kl. 13:49

Hæ allir. Er á leið í tvöfalda afmælisveislu hjá Stefáni Hallssyni, Veislan er bæði fyrir Önnu Maríu og Hall Hólm. Vildi bara kvitta fyrir mig, þar sem maður er nú ekki alveg nógu duglegur að skrifa.
Hilsen

Hulda Jóns

12.4.2008 kl. 11:38

Nei hættið nú öllu gríni,ég slæ núna Kristínu og Kolbrúnu algerlega við,á bara hverja færslu hér í gestabókinni.Er mannskapurinn eitthvað sloj?Nú er bara að drífa sig og kvitta aðeins og láta vita að maður sé á lífi og svona.Annars er nú allt við það sama hjá mér og mínum eins og sjálfsagt vvíða hjá ykkur líka.Við þurfum annars endilega að fara að spekulera í smá sumarhitting er það ekki?finna út hvaða tími gæti nú hentað sem flestum og svona,endilega tjáið ykkur nú aðeins um það,það er nú bara skemmtilegt að spá og spekulera og hlakka til einhvers,finnst ykkur það ekki?....Koma svo!!!!!!! kveðja Ester

Ester

5.4.2008 kl. 12:45

Hil og sæl,elskurnar,..maður er orinn svo háður þessari síðu að maður veit ekkert hvað maður á að gera við sig þegar hún er í þessu lamasessi,engar myndir af afmælisbörnum og engir fínir pistlar frá Þresti,en þetta hlítur nú að fara að lagast,verum bara dugleg að skrifa hér inná gestabókina.Allt gott að frétta héðan úr Vesturberginu,Jóel enn heima í fríinu sínu,fer ekki aftur til London fyrr en 14.apr.og Nína norður í Múvatnssveit með Ítalska sjónvarpsfólkið að sýna þeim Kröflu og Bjarnarflag og Jarðböðin og ég vet ekki hvað og hvað og Hulda eldar svo handa þeim og gefur þeim eitthvað gúmmulaði á hverju kvöldi að hætti Stöfnunga.Þau eru alsæl með þetta allt og mér skilst að við eigum aldeilis hauka í horni þegar næst verður farið til Ítalíu.Farið þið svo vel með ykkur elskurnar,..góðar kveðjur úr Vesturberginu.

Ester

4.4.2008 kl. 9:16

Begga,Begga!! Til hamingju með afmælið um daginn, betra seint en aldrei ;O) Hafið það sem allra best! ;O)

Kveðja
Júlía og Arnþór

Anna Júlía

2.4.2008 kl. 21:14

Elsku Begga mín til hamingju með daginn.
Sjáumst fljótlega
kv Auður og co

Audur frænka

2.4.2008 kl. 20:32

Hjartanlega til hamingju með afmælið Berglind.
Góðar kveðjur úr Vesturberginu

Ester

2.4.2008 kl. 17:52

Elsku Begga.
Til hamingju með 3tugs afmælið... skrýtið að þú sért orðin 30 ára þar sem þú ert 5 árum yngri en ég og það er svo stutt síðan ég varð þrítug;)
Bestu kveðjur frá okkur öllum hér:D

Maja

2.4.2008 kl. 16:26

Elsku Begga til hamingju með daginn,ég trúi bara valla að það séu liðinn 30 ár frá því þú fæddist mér finnst svo stutt síðan,bestu kveðjur í bæinn kv.Jófríður og kó.

Jófríður

2.4.2008 kl. 15:56

Elsku Begga til hamingju með árin 30 .Vá hvað tíminn líður fljótt .kveðjur til Benna jr.og hennar Öddu hafið það gott áfram .Leiðinlegt að síðan er að stríða okkur vonandi kemst hún fljótlega í lag.bestu kveðjur .Sissa

sissa

2.4.2008 kl. 1:45

Afmæli í dag 2. apríl

Þar sem það er enn rugl á síðunni okkar á verð ég að nota gestabókina til að tilkynna um afmæli. Í dag á stórafmæli, Berglind Helgadóttir frá Kálfborgará. Hún er fædd 1978 og er því 30 ára. Hún fær bestu kveðjur í tilefni dagsins.

Þröstur Kolbeins

1.4.2008 kl. 0:14

Allt í steik !!!!!!

Enn er allt í steik með síðuna. Myndaalbúmin í rugli og ég kemst ekki inn á stjórnkerfið til að setja inn blogg. Ég er búinn að senda póst á stjórnendurna og er að bíða eftir svari.
mbk,

Þröstur Kolbeins

31.3.2008 kl. 10:27

Heil og sæl öll,.....já,já,það var eitthvað rugl á síðunni okkar í gær,eitthvað tæknilegt hér fyrir sunnan skilst mér,ég var nú aldeilis búin að skrifa pistil og hann bara hvarf.Að sjálfsögðu stóð liðið sig frábærlega sem sjónvarpastjörnur,ekki við öðru að búast af þessu kyni.Gunna,þú kíkir nú í kaffi ef þú færð smá hlé á milli keppnisgreina.

kveðja Ester

Ester

31.3.2008 kl. 9:56

Halló ættingjar ég var einmitt að lesa helling í gær ,en svo var það allt í einu horfið og síðan eitthvað skrítin .Einhver draugsi þar á ferð að skemmta okkur .Annars allt gott hér á bæ ,nema að það snjóar núna en það er víst vetur .svo það þíðir ekkert að væla yfir því .Annars vorum við með þjóðdansasýningu í gær fyrir ferðamálafrömuði hér í bæ og nágrenni um 60 manns boðið á sýninguna en mættu ekki nema 5 það fannst okkur frekar súrt .jæja verum svo dugleg að skrifa .Kveðja úr snjónum fyrir norðan Sissa

sissa

31.3.2008 kl. 9:07

Það er ekkert annað, færslur farnar að hverfa úr gestabókinni, spúkí! ;). En við komum norður í gær, heima er best og daglegt líf tekur við sem er ágætt. Gaman að sjá hvað allt er fullt af lífi og fjöri í gestabókinni ;) Og Nína bara að koma okkur á kortið, flott hjá henni ;)
Hafið það sem allra best!.

Kveðja
Anna Júlía

AjA

30.3.2008 kl. 23:30

Elskan hún Nína hún klikkar ekki á því er ekki lengi að finna stjörnurnar ég datt hér inn á síðuna á trúlega að vera farin að sofa fer að vinna á morgun svo fer eg þegar liður á vikuna í mitt árlega íþrótta ferðalag til Rvk keppnisgrein óákv góða nótt

Gunna

30.3.2008 kl. 21:50

leiðrétting

*Milljón er að sjálfsögðu með 2 ellum

Nína Björg

30.3.2008 kl. 21:48

Kvikmyndastjörnurnar í Ljósalandi

Eins og margir vita þá er hér hjá mér þáttagerðarmenn frá ítalska ríkissjónvarpinu núna. Í dag fórum við í Ljósalandið til Kollu, Mark og Katrínar Ingu. Þar var Inga amma líka og gaf öllum pönnukökur og fleira góðgæti. Að kaffi loknu voru þau öll mynduð í bak og fyrir og þá sérstaklega Katrín, sem spilaði "Krummi svaf í klettagjá" fyrir þau á píanó. Einnig var Ingibjörg Helgadóttir mynduð í bak og fyrir við uppvaskið. Herlegheitin verða svo sýnd í júní á RAI Uno. Þátturinn er sýndir fyrir rúmlega 60 miljón áhorfenda á Ítalíu auk þess sem rásin næst um allan heim. Hér á landi eru þeir sem hafa Skjá Heim með þessa rás.
Kvikmyndastjörnurnar stóðu sig frábærlega. Takk fyrir þetta.

Nína Björg

24.3.2008 kl. 22:29

Kæru ættingjar kallinn hérna í Lerkjó biður fyrir kveðjur og þakkir fyrir afmælis kveðjurnar í gær vonum að allir séu í þokkalegu ástandi eftir þessa hátíðina kveðja Gunna

Gunna

24.3.2008 kl. 10:33

Gleðilega páska!

Kærar þakkir fyrir afmæliskveðjur, það var ekki gengið á fjöll um páskana en bara því meira gengið á skíðum bæði upp á Reykjaheiði og á Mývatni. Svo var smá sýnishorn af hittingi hér á Ásgarðsvegi 14 á laugardaginn, þá voru myndir frá hittingi í Mávanesi skoðaðar það var mjög gaman. Vona að allir hafi haft það gott um páskana, bestu kveðjur frá okkur hér á Húsavík.

Fía

23.3.2008 kl. 22:02

hæhæ

hæhæ
ég hef aldrie skrifað áður......en mér datt bara allt í einu í hug að skrifa :)
Gleðilega páska allir
kv.
Katrín Inga:P

Katrin Inga Eldred

23.3.2008 kl. 14:31

Gleðilega páska ! Kæru ættingar

Takk fyrir síðast,þið sem voruð hér á föstudaginn-langa!!!Þetta var frábært.Allir mjög afslappaðir og rólegir,enda kom það sér betur þar sem "Fangaklefinn" var ekki lengur til staðar.En þetta með kanínurnar þær eru allavega ekki með lögheimili hér,en gætu hafa slæðst með gestunum.Gangi ykkur vel í fyrverandi og múverandi "hittingum".Kveðja Ása

'ASA

23.3.2008 kl. 12:31

Sæl og blessuð öll og gleðilega páska.Það var alveg ótrúlega gaman í hittingnum hjá okkur í Arnarnesi og ég efast ekki um að það hafi verið gaman á Kvíslarhóli,væri nú rosa gaman ef einhver hefði tekið myndir þar að fá eitthvað af þeim hér inn á síðuna.Sammála þér Jófríður,þurfum endilega að fara að ákveða sumarhittinginn.Og Kristín mín,ég sé að þú átt ekki roð í Kolbrúnu,..önnur hver færsla hvað,..hún á orðið hverja einustu færslu.Hafið það nú gott elskurnar,kveðja Ester

Ester

23.3.2008 kl. 12:01

Gleðilega páska frábæru ættingar,hér var páskahittingur í gær allir fengu nóg að borða svo ég á ekki von á að neinn hafi farið svangur heim ,ég tek undir með Kristínu væri gott að fara að ákveða sumarhittinginn tíminn er svo fljótur að líða,kv.

Jófríður

23.3.2008 kl. 11:39

Hvaða grín er nú þetta? hahaha ég skrifa svo sjaldan að þegar það loksins gerist þá kemur það tvisvar inn á síðuna. Gaman af því.

Kolbrún

23.3.2008 kl. 11:37

Gleðilega páska!

Gleðilega páska kæru ættingjar!
Það er nú ekki mikið að frétta héðan. Ég sit bara og læri og borða páskaeggið hennar Katrínar. Það er ekki svo slæmt. Í lok apríl verð ég svo komin í sumarfrí frá skólanum og verð þá hálfnuð með námið! Tímnn líður ótrúlega hratt. Mark var svo heppinn að hann lenti í vaktafríi um páskana svo við erum búin að hafa það gott saman fjölskyldan. Kær páska kveðja, Kolbrún

Kolbrún

23.3.2008 kl. 11:36

Gleðilega páska!

Gleðilega páska kæru ættingjar!
Það er nú ekki mikið að frétta héðan. Ég sit bara og læri og borða páskaeggið hennar Katrínar. Það er ekki svo slæmt. Í lok apríl verð ég svo komin í sumarfrí frá skólanum og verð þá hálfnuð með námið! Tímnn líður ótrúlega hratt. Mark var svo heppinn að hann lenti í vaktafríi um páskana svo við erum búin að hafa það gott saman fjölskyldan. Kær páska kveðja, Kolbrún

Kolbrún

22.3.2008 kl. 10:45

OO ooooo hvað hefur verið gaman hjá ykkur í Mávanesinu fékk tár í auga að sjá ykkur öll þið eruð flottust það þarf ekki meira en þetta til að gleðja mig Fer hress og kát til vinnuá eftir Knús frá mér Gunna

Gunna

22.3.2008 kl. 3:31

kvedjur frá Chile

eg vildi bara lata vita sma af mer hérna, her er ekkert nema sól og blída og eg er ad skemmta mer frabaerlega :D er buin ad fara i stórborgina Santiego og er ad fara aftur med AFS a thridjudagin eda fimmtudagin og verd thar i 5 daga annars vildi eg bara senda sma kvedju herna

kv. Jófrídur Chilebúi

Jófrídur Stefánsdóttir

21.3.2008 kl. 22:47

Sælir ættingjar

Best að byrja á síðbúnum afmæliskveðjum til handa Maju Stínu og Fíu. Vonandi hafið þið átt góða afmælisdaga. Hér er gert ráð fyrir að hitta fjölskylduna í Lerkilundi á sunnudaginn. Borða saman og svoleiðis. Ætti nú ekki að vera vandamál að smala familíunni saman þar sem við erum nú bara tvö systkinin en eitthvað vill þetta nú vefjast fyrir okkur. En þar sem tilefni féll upp í hendurnar á okkur þ.e.s afmæli pabba, þá var bara að hringja í Hafþór og Önnu og segja þeim hvar þau ættu að vera á sunnudaginn og ótrúlegt nokk þá hlýddu þau. Ása mín er komin með bílpróf og lagði leið sína hingað á þriðjudaginn. Guðlaug og Helgi komu á miðvikudag og fóru í dag Elísa vinkona okkar frá Þýskalandi er hér núna og er stefnan hjá henni og Alla að skreppa á Stjörnutölt á Akureyri á morgun. Við Amanda dúllum okkur bara hér heima. Gunnar, einkasonurinn, kemur helst ekki á Dalvík segir að þetta sé leiðindabær. Svona er nú lífið hjá mér og mínum, ekki alltaf einhverjar merkisfréttir en eitthvað þó.
Bestu kveðjur til allra og óskir um góða páska, Kristín og co.

Kristín Gunnarsdóttir

amandalifdalvik.barnaland.is

21.3.2008 kl. 15:07

Bara til að segja eitthvað

Jæja kæru ættingjar og vinir,datt nú bara í hug að setja nokkra stafi hérna virðist vera eini karlpenninn sem hefur tíma til að skrifa í gestabókina,annars nó um það.Langaði að þakka Ollu Yngri fyrir frábæra þjónustu skrapp á Friðrik IV um daginn og allt í lagi með það náði bara ekki að þakka Ollu fyrir en það er komið núna.Þetta er ekki staður fyrir svanga stafns maga sat í 3,klukkutíma og fór svo heim og fékk mér að borða!!! flottur sýnishorna matseðill.Annars bara gott að frétta héðan úr sólinni á Akureyri ,er bara heima um páskana og læt kvefið leka úr mér meðan konan vinnur um páskana,flottur kallinn,nú er komið nó röfl og bull í bili hafið góða páska elskurnar mínar og gangið hljótt um gleðinnar dyr!!!!
Kv Hafþór

Hafþór

20.3.2008 kl. 20:12

Gleðilega páska ættingjar góðir! Hér á bæ er allt í rólegheitum, og bíst við að verði þannig þessa helgi. Ég ætla þó helst að mæta í páskaboðið hjá Jófríði, en veit ekki hvort mér tekst að draga Árna með, einhver smá fjallahugur í karlinum...
Hafið það gott
Kveðja

Hulda Jóns

20.3.2008 kl. 10:52

Ákvað að kvitta fyrir inlitið í þetta sinn,,,maður er nú mjög tíður gestur á þessari síðu! Frábært að heyra að fólk ætlar að vera svona duglegt að hittast um páskanna. Hafið það sem best yfir hátíðirnar! páskakveðjur

Olla yngri

19.3.2008 kl. 22:36

Velkomin

Það verður gaman að sjá ykkur sem allra flest,kv.Ása

Ása

19.3.2008 kl. 17:00

Við mætum í páskahygge á arnarnesinu!
kv Guðlaug

Guðlaug

18.3.2008 kl. 21:50

Ohhh.. ég er bara orðin spennt fyrir ykkar hönd "sunnanheiðabúar"... verður örugglega mjög gaman hjá ykkur:) OG ég efast ekki um að það verði stuð á Kvíslarhóli... vonandi verður veðrið gott svo maður nenni að leggja land undir fót... verðum á Illugastöðum svo það verður aðeins styttra að fara;)
Gleðilega páska allir saman

Maja

18.3.2008 kl. 19:53

Frábært Auður að þú ætlar að vera með okkur í hittingnum og varðandi hvað þú ættir að koma með þá er það bara það sem þér finnst gott,við Ása sögðum í gær að maður kæmi með það sem maður er góður í að gera og er einfallt og ekki mikið mál að útbúa.Þetta verður bara æði,hlakka svo til.Kveðja Ester

Ester

18.3.2008 kl. 15:48

Breyting: Páska-hittingur 2008

Páska-hittingur Reykjavík 2008. Sú breyting hefur orðið að hittingurinn verður í Mávanesi 16 í Arnarnesi hjá Jóni og Ásu. Tímasetning að öðruleyti óbreytt, föstudagurinn langi um kvöldmatarleyti c.a. 18.00. Sama er upp á teningnum í okkar hitting eins og í Arndísarstaða-hitting, allir leggja í púkkið og gera góða veislu. Við ætlum að taka Auði að okkur svo hún fái líka hitting. Vonum að sem flestir úr ættinni sem eru staddir á suður horninu mæti. Ef þær eru ekki þegar búnar að talast við, Auður og Ester, þá er, Auður, síminn hjá Ester 554-1295. Guðlaug, látt þú líka vita af þér.
Gleðilegan hitting......

Þröstur Kolbeins

18.3.2008 kl. 14:01

Halló,ég var að lesa um páskahittingin fyrir sunnan það er mjög sniðugt hjá ykkur,við skríllinn frá Arndísarstöðum tókum upp á þessu fyrir 4 árum þá koma allir með eitthvað sem lagt er á næktarborðið,svo er bara borðað og borðað,þessa páska á það að vera hjá mér og stefnt á 22 mars vona bara að það gangi,en auðvitað hefur Auður ekki getað verið með okkur þar sem hún dvelur alltaf í borg óttans eins og Hafsteinn segir,en annars allt svipað hér kv.

Jófríður

17.3.2008 kl. 18:10

Hæ ég er til, sammála Ásu látiði mig bara vita hvað ég á að koma með.
strax farin að hlakka til.
kv Auður

Audur frænka

16.3.2008 kl. 21:02

Sælt veri fólkið!!!Eg hef nú ekki alveg verið að fylgjast með,eru þið að hugsa um að hittast á föstudaginn-langa,eigum við ekki að tala okkur saman um kvað hver komi með svo Ester þurfi ekki að standa í þessu ein,Ester hafðu samband við mig við tækifæri kv.Ása

Ása

16.3.2008 kl. 18:26

framhald af leynigestinum

Fannst þetta því tilvalið að æfa mig á kópi og peist takkanum.

Sá sem gerði þetta heitir
Hallmundur Kristinnsson og titlar sig Þúsund þjala smið og hagyrðing

sæmundur hennar Esterar

16.3.2008 kl. 18:23

Leynigesturinn

Ég verð að taka á mig sökina af því að hafa sett þetta inná gestabókina.
Í morgum þegar að ég var að fara yfir fréttirnar í tölvunni þá kikti ég á bloggsíðurnar geri það oft og rakst þar á þetta minningarbrot frá Laugum og frá því að ég komst inn í þessa ættt , reyndar sem viðhengi þá hefur verið talað um Laugaskóla í þessum tón

sæmundur hennar Esterar

16.3.2008 kl. 17:19

Hæ allir gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að skrifa í gestabókina ég segi eins og þið hin forvitni með leynigestinn
.En þið fyrir sunnan Halla og Jónatan verða fyrir norðan um páskana Jónatan kom til okkar í gær en mamma hans kemur á skídag.Sammála Mæja við vorum að tala um að þetta væri ekta slönguveður í Sandvík það var toppurinn í svona veðri eins og í dag .hafið það gott um páskana .kveðja úr Melasíðunni Sissa og co.

sissa

16.3.2008 kl. 16:10

Við hérna í Ljósalandinu erum svo sannarlerga til í hitting á föstudaginn langa. Ég hlakka mikið til og vona að sem flestir geti mætt.
Kveðja
Kolbrún

Kolbrún

16.3.2008 kl. 14:59

Páska-hittingur í Vesturbergi 96

Líst ljómandi á páska-hitting á föstudaginn langa... (við þurfum nefnilega langan dag) ...til að hittast, borða og sprella. Þar sem Ester er einstakt partý dýr, í jákvæðri merkingu, veit ég að henni verður ekki skotaskuld úr því að "rigga upp" einni veislu fyrir ættingjana. Ég ætla að skreppa suður til að heilsa upp á liðið mitt um páskana. Ég mun leggja mitt að mörkum við til að gera veisluna glæsilega og ef ég þekki mitt fólk þá munu allir gera slíkt hið sama og þá mun ekkert skorta til að gera þennan dag að þeim lengsta og skemmtilegasta "föstudeginum langa" sem sögur fara af.

Þröstur Kolbeins

16.3.2008 kl. 14:48

Sælt veri blessað fólkið já gott er nu blessað veðrið eg er nú svo forvitin og langar mig að vita hver átti þessar minningar Gaman væri nú að geta hitt ykkur um páskana en það er vinnan sem bíður mín á morgunn næ ykkur síðar elskurnar kveðja

Gunna

16.3.2008 kl. 14:34

Pálmasunnudagur

Það lítur út fyrir að veðrið sé yndislegt um allt land... amk er hér á Dalvíkinni glampandi sól og logn... svona ekta páskaveður... nú væri ekki amalegt að geta verið í Sandvík og farið í brekkuna að renna sér á slöngum;) Fengum okkur göngutúr með soninn í vagninum áðan í þessu yndislega veðri.
Ég tek undir með Ester, það væri gaman að vita hver ritaði þessi skemmtilegu orð í gestabókina um Laugaskólaárin sín:)
Sólarkveðjur frá Dalvík, Maja

Maja

16.3.2008 kl. 14:28

Sælt veri fólkið og hvað segið þið gott á þessum líka fallega pálmasunnudegi?svona á þetta að vera.Ég sé að bæði Guðlaug og Auður verða á suður horninu yfir páskana svo er ekki alveg kjörið að hittast og gera sér glaðan dag með ættingjum?mér var að detta í hug föstudagurinn langi,hvort hann hentaði,við getum komið saman og spjallað og sprellað og fengið okkur eitthvað gott að borða.Annars er nú allt gott að frétta af mér og mínum,engin stórtíðindi.Annars langar mig mikið að vita hver það er sem á svona ljúfar minningar frá Laugum,ekki það að það eru örugglega margir sem eiga það þar á meðal undirrituð.Gangið á guðs vegum elskurnar.
kveðja Ester

Ester

16.3.2008 kl. 9:11

Á síðari hluta uppvaxtarára minna eftir miðja síðustu öld var ég í héraðsskólanum að Laugum í Reykjadal.
Þar blómstraði að sjálfsögðu nokkur rómantík og var það eigi óalgengt að strákur og stelpa hefðu viðdvöl
norðan við skólahúsið þar sem umferð og lýsing var í lágmarki. Haustið eftir að ég útskrifaðist úr skólanum varð mér hugsað til staðarins með nokkrum trega:

Þess unga fólks er nú að Laugum leggur
leiðir sínar hrímkalt myrkvað haust
bíður enn að norðanverðu veggur.
Hann verður þarna sjálfsagt endalaust.

14.3.2008 kl. 16:43

Sælt veri fólkið , er núekki dugleg að kvitta fyrir mig ,en miklu duglegri að lesa þennann frábæa frétta miðil.
Þröstur ég verð á suðurhorninu yfir páskana .
Eigiði yndislega páska
kv úr borginni

Audur frænka

14.3.2008 kl. 15:12

sæl ég setti inn smá fróðleik um Galtará og Kleifastaði, hafið það gott Snorri

Snorri

12.3.2008 kl. 12:38

Páskar og samviskubit!

Jæja, þá er kominn tími til að ég geri hreint fyrir mínum dyrum og segi fréttir af mér og mínum! Nægar hafa verið pillurnar frá pa og co.! ;) Fyrir þá sem ekki vita er ég dóttir Stefáns Guðlaugssonar, gæðaleikara með meiru. Undanfarin ár hef ég alið manninn við nám í kóngsins Kaupmannahöfn en er komin heim aftur með Vigfúsi Björnssyni, manninum mínum og litla prinsinum, honum Stefáni Birni. Við Stefán Björn dúllumst heima við í Vesturbænum meðan Vigfús færir björg í bú. Síðan er stefnan tekin á frekara nám í haust, alveg kominn tími til að fara klára þann pakka!

Við munum halda okkur heima um páskana þannig að við erum alveg til í páska-hygge með ættingjum á suðurhorninu.

Kærar kveðjur úr vesturbænum,
Guðlaug og co.

Guðlaug Þóra Stefánsdóttir

12.3.2008 kl. 10:57

Æ. æ.. þá er líklega flensan komin til mín Hafsteinn með mikinn hita í nótt,hálsbólgu og fínheit,vona bara að ég sleppi,óskandi að allir verði frískir 22. ég vona svo að Anna Júlía og Arnþór hafi það gott með fjölskyldunni(Arnþórs)úti á sólarströndinni og komi heim með töskurnar fullar af sól og hita,annars allt svipað hér.kv.

Jófríður

12.3.2008 kl. 9:47

Ohh... er nýbúin að fatta að ég missi af páskaboði afkomenda Halls og Maríu sem verður haldið heima hjá móður minni og föður! alltaf er maður að missa af einhverju ... ekki nóg að ég missti af jóla-bláu (laufabrauðs)-thule peysunni þinni Hulda!!!! og auðvitað öllu skemmtilega fólkinu mínu heldur missi ég af páskaboði líka! :S En maður getur ekki verið alls staðar, því ætla ég að hugsa fallega til ykkar meðan ég hef það gott á Costa. Bara tveir dagar í brottför og ég að byrja að pakka...alltaf á seinasta snúningi!! haha :) :) Hafið það gott krúttin mín.

Mbk.
Anna Júlía og Arnþór Haukur.

Anna Júlía Aðalsteinsdóttir

11.3.2008 kl. 22:40

Þakkir

Addi minn vill þakka fyrir afmæliskveðjurnar sem hann fékk á afmælisdaginn... haldiði að kjellan hafi ekki bara boðið honum á "We will Rock you" - Queen-showið í London á afmælisdaginn og var hann heldur betur sáttur með það... alveg geðveikt show og ég táraðist þegar þetta byrjaði og hreinlega grét í lokin... svo áhrifamikið var þetta fyrir mig... samt ekkert sorglegt sko hehe... bara einhver hormónaflæði hjá mér;) Mæli með þessari sýningu:D Áttum góða viku í London en mikið er nú alltaf gott að koma heim... sérstaklega að faðma að sér litla stubbinn sinn... sem var í góðum höndum hjá ömmum sínum báðum á meðan við vorum úti.

Maja

11.3.2008 kl. 21:29

Páska-samkoma

Tek undir með þér Ester. Hvet ættingjana til að gefa sig fram hér í gestabókinni ef þeir verða staddir á suður horninu um páskana.Einnig lýsi ég eftir Auði Halls og Co, Höllu Jóns og syni hennar, honum Jónatan og fleirum og fleirum.

Þröstur Kolbeins

11.3.2008 kl. 19:44

Sæl og blessuð elskurnar,bara að kíkja á ykkur aðeins,það er nú sýnist mér ymislegt í gangi hjá fólkinu,sumir í útlöndum og aðrir á leiðinni þangað,Anna Júlía,þið komið auðvita með smá yl með ykkur frá Spáni handa okkur hinum.Árshátíðin sem við Kolbrún vorum á var bara alger snilld,ótrúlega glæsileg og skemmtileg,það klikkar ekki Landsbankaliðið.Núna bíður maður bara eftir páskafríinu,það verður mjög ljúft að fá svona langt frí og svo kemur prinsinn minn heim um páskana og ekki verður það leiðinlegt,Þröstur og Svala eru líka að velta fyrir sér að koma suður um páskana svo þið sjáið að það gæti orðið helja stuð hjá mér og ég tala nú ekki um ef einhver af ykkur yrði nú í Reykjavíkinni um þessa hátið þá væri nú alveg kjörið að hittast,ég lýsi hér með eftir því hvort einhverjir af þessum frábæru ættingjum verða sunnan heiða í páskavikunni.Verið svo kát og hress elskurnar,
kveðja Ester

Ester

11.3.2008 kl. 15:11

Halló ég er bara alltaf að tjá mig í gestabókinni þetta er svo góður fjölmiðill .Olla var að fara heim í dag svo mömmu finnst eitthvað tómlegt svona fyrst um sinn en það er búið að vera voða gaman hjá þeim þennan tíma .Jófríður systir það lítur út fyrir að allir komist til þín á laugardaginn 22.mars svo nú er bara að biðja um gott veður og færi.kveðja Sissa

sissa

10.3.2008 kl. 16:04

Halló Sissa ég mundi reyndar eftir því ég er að vinna á föstudaginn langa og annan í páskum hvaða dagur heldur þú að mundi passa?Þú nennir kanski að spæja það.kv.Jófríður

Jófríður

10.3.2008 kl. 15:43

Halló Halló bara að kvitta svona til gamans ekkert sérstakt í fréttum. En Jófríður systir er ekki komin röðin að þér að vera gestgjafi í hinum árlega páskahittingi bara svo þú getir farið að plana dag.heyrumst kv .Sissa

sissa

9.3.2008 kl. 13:22

Heil og sæl það er best að kvitta núna annars kíki ég flesta daga á síðuna en ég hef nú lítið að segja það er ekki mikill snjór hér nema í kringum húsið eins og venjulega er garðurinn fullur af snjó við Hafsteinn mokuðum göng í morgun út á plan eina 18 metra veðrið er mjög milt og gott smá hríðarmugga,annars er allt svipað hér ég er núna í 9 daga fríi í annari vinnuni sem ég fæ alltaf á 6 vikna fresti ég reyni kanski að laga eitthvað til hjá mér ef ég nenni en karlmennirnir á heimilinu eru ekki mjög duglegir við að taka til hér innandyra sem er örugglega algengt með KARLA .Bless í bili.

Jófríður

8.3.2008 kl. 23:49

Já!

Vá, það er aldeilis líf og fjör í gestabókinni núna! Alveg gríðarlega magnað!. Mjög lítið títt hjá okkur, skelltum okkur á Kardemommdubæinn á Húsavík í gærkvöldi en síðustu sýningar voru í dag, mjög gaman!. Svo eru bara rúmir 5. dagar þangað við Arnþór fljúgum út til Costa del Sol. Svo lífið er bara skemmtilegt ;). Svona svo að ég tjái mig um fótbolta... þá get ég með sanni sagt að ég er ekki hrifin af íþróttum almennt, en svona til að vera ,,memm" eins og unga fólkið segir þá ,,hélt ég með" Man.Utd. um tíma, en eina ástæðan var sú að búningarnir voru flottir (þá) fyrir sirka milljón árum síðan. Nú held ég ekki með neinum. (he,he). En hvað um það þá vona ég bara að þið eigið góða helgi og svona.

Mbk.
AJA og AHB

Anna Júlía og Arnþór Haukur

8.3.2008 kl. 23:02

Já, það er nú best að kvitta fyrir komunni, ég verð víst að viðurkenna að ég kvitta nú ekki í hvert skipti, enda alltaf að kíkja á síðuna ;o)
Annars ekki mikið að frétta af mínu heimili, strákarnir mínir báðir sofandi yfir fótbolta í augnablikinu og ég var að enda við að horfa á tvær kellingamyndir á Rúv, sérstaklega viðburðarríkt laugardagskvöld. Fórum nú aðeins út í gærkveldi og þá er bara hvíldardagur í dag.
Fjallaferðin um daginn var góð, þrátt fyrir mikinn krapa á heimleið og að bíllinn okkar var bara ekki ferðafær. Við skötuhjú skiptum okkur bara á milli bíla. Árna tókst svo að gera bílinn klárann í gær og fór í smá prufutúr í dag.

Hulda Jóns

8.3.2008 kl. 22:13

Alltaf eitthvað vitlaust skrifað átti að vera skella en ekki skekka.kv .sissa

sissa

8.3.2008 kl. 22:10

Heil og sæl alltaf gaman að lesa gestabókina maður skekkir bara úppúr þið eruð svo mikið brandarafólk enda ættingjar mínir .ekkert vol og væl lítum á björtu hliðarnar og hlæjum mikið .Olla er ennþá hjá mömmu alltaf nafn gaman hjá þeim .ég var að passa litla prinsinn á Dalvík í 3daga núna í vikunni nó að gera á meðan.Foreldrarnir brugðu sér til London sér til gamans.kveðja Sissa og co

sissa

8.3.2008 kl. 21:48

Alltaf gott að vera öðrum til gleði ; )

Heil og sæl
Drottningin af Bárugötu stendur í ströngu þessa dagana því litla prinsessan er með hor og hósta og hita og dynti og frekju og það þarf að snýta og gefa stíla og púst og kúra og kyssa og standa og sitja eftir höfði prinsessunnar. Fyrir fólk á efri árum þá er þetta bara þónokkuð. Snjórinn plagar okkur ekkert svakalega því ég var svo duglega að moka fyrir helgina og svo er bara ekkert farið út. Ekkert flókið kerfi svosem. En hvað varðar það að klikka svona svakalega á skrifum hér þá hef ég nokkuð góða afsökun: Ég er að reyna að halda heilum þeim fáu brjótanlegu hlutum sem eftir eru á því svæði sem tölvan er (stofan) Prinsessan mótmælir tölvunotkun á hennar vökutíma með mjög afgerandi hætti. Annars er bara allt í sóma hér enda við bara tvær í kotinu og Alli veiðir loðnu. Þannig að "ég er góð" eins og unga fólkið myndi orða það.
Bestu kveðjur frá Dallassittý.

Kristín

amandalifdalvik.barnaland.is

8.3.2008 kl. 18:30

Munaðarlausu hróin

Heil og sæl kæru ættingjar og vinir.
Munaðarlausu hjónin á Þórustöðum senda ykkur örskýrslu um okkur og börnin öll...
Af okkur er þetta helst að frétta:
Allir við hestaheilsu og dýrka og dá þetta yndislega veður...ekki kvörtum við!!!
Chíle-barnið er að springa úr hamingju á Suðurhvelinu, byrjuð í skólanum og býður eftir því að geta borðað páskaeggið sitt sem reyndar þoldi ekki flugið og er því núna súkkulaðibitar. Af stóru börnunum er það að frétta að þau eru orðin það STÓR að þau ættu að geta sett inn fréttapistil...ein og óstudd, en við munaðarleysingjarnir vitum ekki betur en að allt sé í sómanum þar.
Óskum öllum afmælisbörnum fyrr og nú velfarnaðar á Guðs vegum. Anna R er yfirmáta ánægð með sýna menn í Everton...áfram Liverpool!!!
Gaman að Dalvíkurdruslurnar séu svona hamingjusamar með Þórustaðaframleiðsluna.
Stúdiósus byður að heilsa og vonast til að sjá ykkur í Freyvangi..
Gangið á Guðs vegum,
Kveðjur Anna og Stebbi

Þórustaðahróin, Stebbi og Anna

8.3.2008 kl. 17:32

Leiðrétting

Halló aftur sorry:) út af stafsetningarvillum,situr í manni smá ryk ennþá síðan í gær.En gleymdi að kommentera á Þröst frá þvi á Fimmtudagin, það er bara eitt lið og það er LIVERPOOL svo að genin eru flott Þröstur minn,annars bara bless.....

Hafþór

8.3.2008 kl. 17:16

Hvað er þetta bara vol og væl í öllum út af veðrinu, við búum nú á klakanum svo ekkert svona sko.En annars flott að frétta héðan,dkrapp í leikhúsið í gærkveldi og vægast sagtFRÁBÆR síning svo var náttulega skroppið á öldurhús á eftir eins og unglingar gera,svo í kvöld skal haldið á Friðrik fimmta og etið á sig gat,allavega etið,þannig að það er engin lognmolla hérna þótt maður sé orðinn hálf níræður,líf gós onn,eins og maðurinn sagði á góðri íslensku,annars kærar þakkir fyrir góðar kveðjur á afmælisdaginn,takk og bless.

Hafþór

8.3.2008 kl. 9:29

Það er sama sagan hér, allt í hægagangi og leti. Maður lætur sig dreyma um sól og hita en það verður víst einhver bið á því. Ég geri líka fastlega ráð fyrir því að við eigum eftir að fá páskahretið jibbíii!!! Annars erum við Ester og Sæmundur á leiðinni á árshátíð í kvöld svo að það verður nú eitthvað stuð hjá okkur. Kveðja
Kolbrún

Kolbrún

7.3.2008 kl. 20:08

Nei halló,bíðið aðeins við, ég er ekki Kristín,svo ég er greinilega að troða mér hér inn á milli.......það er reyndar alveg sama sagan hér,snjóar og snjóar og ég er alveg búin að fá mig full sadda af þessu rugli,hver fann eiginlega upp á því að það væri lang best að hafa eintómt skítviðri endalaust bara af því að það heitir ennþá vetur á dagatalinu,það hlítur að vera einhver afleysingagæi á tökkunum þarna uppi.En svona að öllu nöldri slepptu þá er bara allt meinhægt að frétta héðan og allir bara í rólega gírnum,eiginlega bara í lága drifinu.Hafið það endilega ljúft og gott elskurnar og munið að það vorar fyrir rest.

kveðja Ester

Ester

7.3.2008 kl. 9:40

Snillingur Þrasi!!

þarna brókaði hann þig Kristín

Nína Björg

6.3.2008 kl. 23:36

Aðra hverja færslu....

..nú máttu byrja á næstu færslu.

Þröstur Kolbeins

6.3.2008 kl. 23:05

Hvaða, hvaða...

Hvað er að gerast? Voða dauft yfir ættingjum vorum. Dálítið hart þegar ég er farin að skrifa aðra hverja færslu í gestabókina. Annars ekkert að frétta nema hér snjóar og snjóar svo ég hef ekki undan að moka slóðann að kofanum. Fékk senda þessa líka fínu tösku hannaða og unna af Önnu Ring. Alltaf gaman að fá eitthvað fallegt. Violetta í næsta húsi sagði orðrétt þegar hún sá töskuna: "Geðveik taska druslan þín" sem þýðir á venjulegu máli að henni finnst taskan mjög flott og öfundar mig pínu mikið. Á eftir að knúsa Önnu fyrir þetta fínerí. Best að taka einn rúnt með sköfunni áður en ég fer að sofa, minna að moka á morgun.
Kveðja, Kristín

Kristín

amandalifdalvik.barnaland.is

5.3.2008 kl. 21:10

Sælir ættingjar

Ákvað að kvitta núna, en ég kíki hér nánast daglega til að fylgjast með ykkur hinum stafnsungum.
Kv Siggi Hreinn

Siggi Hjartar

www.123.is/lundarbrekka

3.3.2008 kl. 9:15

Heil og sæl

Við mæðgur vorum að koma úr dekurhelgi á Akureyri. Það er svo ljómandi að brjóta upp einveruna á Dalvík og hitta fjölskylduna. Brjáluðu Bínu finnst nú ekki leiðinlegt að láta hafa aðeins fyrir sér og amma og afi telja það ekki eftir sér. Endilega kíkið á heimasíðu prinsessunnar, ég reyni að setja inn myndir svona þegar ég nenni.
Bestu kveðjur til allra, Kristín og co Dalvík.

Kristín Gunnarsdóttir

amandalifdalvik.barnaland.is

27.2.2008 kl. 21:42

Sæl og blessuð,elskurnar.Sammála Ásu,gaman að heyra frá Fíu.Annars finnst mér að karlpeningurinn mætti vera duglegri að láta í sér heyra,kellurnar eru miklu duglegri við það.Annars er nú ekki mikið að frétta héðan,enn farið að snjóa og svona og við hjónin búin að vera í pestargírnum síðustu vikuna svo að það er búið að vera frekar fátt um að vera hjá okkur.Haldið endilega áfram að vera svona dugleg að skrifa hérna,það er svo ljómandi gaman að kíkja hér inn og fá smá fréttir.Sæl að sinni, Ester

Ester

27.2.2008 kl. 21:11

Sæl öll,nú ætla eg sérstsklegaa fagna Fíu vertu velkomin í slaginn.Mig vantaar svo að fá fréttir austan heiðar,gott að fá fréttaritara sem býr á Húsavík.Kveð að sinni Ása

Ása

27.2.2008 kl. 18:29

Sæl öll, miðvikudagar eru mömmudagar hjá mér(þá hringi ég í mömmu)ég var semsagt að tala við mömmu ,en hún er ráðskona hjá Maju systur sinni núna, þá birtist Gunna móða þar og ég fékk þau skilaboð að ég ætti að skrifa eitthvað hér, ég hélt að hún vissi að ég er ekki mikið fyrir það að tjá mig opinberlega. En ég mun halda áfram að setja inn myndir hér. Þið eruð öll frábær og standið ykkur vel í skrifum hér.
Bestu kveðjur frá Húsavík Fía

Fríður Helga

27.2.2008 kl. 16:01

Heil og sæl og til hamingju með afmæli og barnsfæðingar ,þeir sem það á við .Héðan er allt gott í fréttum við hjónakornin fórum í dekurhelgi í Reynihlíð um síðustu helgi fengum það í jólagjöf .og líka í jarðböðin þetta var afar lúft og rólegt,gistum 1 nótt.Komum svo við á nokkrum bæjum í Bárðardalnum á leiðinni heim.Olla er ennþá hjá mömmu en fer sennilega því miður að fara heim í næsra mánuði .þær eru búnar að hafa það mjög gott að ég held.kveðjur til allra .Sissa

sissa

26.2.2008 kl. 13:36

Nýjar myndir

Sá að Fía var að setja inn nýjar myndir í Ollu myndaalbúm. Takk Fía.

Þröstur Kolbeins

25.2.2008 kl. 16:03

Takk kærlega fyrir allar hlýju kveðjurnar!! :)
Kíki reglulega á síðuna þó ég sé nú ódugleg að kvitta.
Kveðja til allra frá Ernu Rut og fjölskyldu.

Erna Rut

24.2.2008 kl. 22:52

Hæ elskurnar!Við þökkum fyrir allar góðar kveðjur og hamingjuóskir undanfarna daga,Flóki og fjölskylda biðja að heilsa Ása og Jón

Ása

23.2.2008 kl. 9:16

Mig langar að byrja á að óska Ásu og Jóni til hamingju með Flóka litla... alltaf svo yndislegt þegar lítil kríli bætast við fjölskylduna.
Við eigum einmitt von á öðru kríli í ágúst og erum bara orðin spennt fyrir því.. verða þá tæp 2 ár á milli grislinganna okkar svo það verður án efa mikið stuð á þessu heimili;) Annars bara ágætt að frétta nema að þetta eyrnavesen hans Alexanders virðist engan enda ætla að taka, fékk rör í haust en fær alltaf annað slagið sýkingu í eyrun og er nú á sínum öðrum sýklakúr í 3 vikur og lyfið sem hann tekur núna er svo sterkt að það fer mjög í magann á honum svo hann er kominn með blöðrur á rassinn af niðurgangi:( vorkenni honum svo agalega þessu litla skinni. En fyrir utan það er bara ágætt að frétta héðan, nóg af snjó á Dalvíkinni ef ykkur langar að sjá snjó;)
MBK Maja

Maja

http://maja1907.bloggar.is

22.2.2008 kl. 22:46

Innilega til hamingju með Flóka litla eg á von á því að hann sé flottur kveðja til Ernu og fjölsk frá okkur í Lerkilundi með þökk fyrir gömlu árin

Gunna

22.2.2008 kl. 15:34

Ása og Jón, hjartanlega til hamingju með litla Flóka. Við biðjum kærlega að heilsa Ernu Rut, Sindra og Melkorku Mjöll með innilegum hamingjuóskum. Gott að vita af því að Jófríður er komin heil á leiðarenda. Héðan er lítið um fréttir, ég er búin að liggja i vikunni í slæmri flensu en er nú aðeins að skána. Það er spurning hvort maður láti til leiðast næsta haust og fari í flensusprautu.

Kolbrún

21.2.2008 kl. 9:07

Sæl öll,gaman að sjá að nafna mín er kominn á leiðarenda þetta gengur örugglega vel hjá henni,'Asa og Jón til hamingju með Flóka litla alltaf jafn gaman að þessum litlu krílum,eins og fram kemur hér að neðan er frænkuhvöld hjá Önnu Júlíu og þar sem ein frænka hennar ættleiddi mig einn dag á ári fæ ég líka að vera með,það verður örugglega jafn skemmtilegt og venjulega,svo erum við að fara á þorrablót í Hafralækjarskóla á föstudagshvöldið það er alltaf mjög gaman að sjá börnin troða upp og skemmta þeim fullornu,annars allt svipað hér,bestu kveðjur frá okkur á Kvísló.

Jófríður

19.2.2008 kl. 23:12

...

Til hamingju með Flóka litla ;) Alltaf gaman þegar það fæðast nýjir einstaklingar í þessa frábæru og flottu ætt! En héðan eru litlar fréttir. Ég er að vísu að fara að halda ,,Flaumagyllisfrænkukvöld " um helgina, en það finnst mér ótrúlega sniðugt frænku fyrirkomulag. Tókum upp á því að hittast allar konur komnar út af langömmu og langafa á Hallbjarnarstöðum einu sinni á ári og skiptumst við frænkurnar á að halda herlegheitin :) í ár er það í mínum verkahring og ríkir mikil spenna, þetta er einn af stórviðburðum ársins, það eru hnallþórur, leikir, sungið, spilað, sagt frá og HLEGIÐ MIKIÐ! :) ótrúlega skemmtilegt!! Gætum nú kannski gert eitthvað svona stúlkur ha? Stafnarafrænkukvöld :) Alltaf gaman að hittast segi ég ;)

Kveðja
Anna Júlía Alla.

AJA

19.2.2008 kl. 21:45

Sæl og blessuð elskurnar,maður er alveg orðinn háður þessari síðu og alltaf gaman að fá smá fréttir af fólkinu.Ása og Jón,hjartanlega til hamingju með þessa nýju viðbót í fjölskylduna og skilið hamingjuóskum til foreldranna.Gott að heyra að Þórustaðaheimasætan komst klakklaust á leiðarenda á sínu ferðalagi og verður gaman að fylgast með henni á síðunni hennar,hvernig hún kann við sig í latínólandinu,þetta verður örugglega rosa gaman hjá henni,.........og Nína,auðvita er alveg brilljant að fara með Ítalina í Bjarnarflag.Annars er bara allt gott að frétta héðan frá okkur gömlu slörunum,smá kvef í gangi en það er nú ekkert alvarlegt og þetta er nú bara tími pestanna.Sammála Ásu að veðrið er svona aðeins farið að reyna á þolrifin en það er þó farið að birta heilmikið og þá finnst manni vera farið að stittast í vetrinum.Hafið það svo öll sem allra best.
kveðja Ester

Ester

19.2.2008 kl. 20:56

Flóki fæddur

Sælt veri fólkið!Af mér er allt gott að frétta,en sjálfsagt að láta vita afsér öðruhvoru.Það fæddist drengur í fjölskyldunni þann 16 febrúar,hann var nefndur strax við fæðingu og hlaut nafnið Flóki.Foreldrar hans eru Erna Rut Elvarsdóttir og Sindri Sigurjónsson Erna er barnabarn Jóns.Erna og Sindri áttu eina dóttur fyrir hún heitir Melkorka Mjöll.Eg vildi óska að eg gæti sent ykkur mynd af drengnum en það kann eg ekki.Eg fór í dag suður í Reykjanesbæ til að skoða piltinn,þau eru nýflutt þangað.Annars er veðrið bara hundfúlt hjá okkur og búið að vera það lengi vona að það fari að lagast kv.Ása

Ása

18.2.2008 kl. 21:26

Kjörið! :)

AJ

18.2.2008 kl. 16:42

jájá

frábærar fréttir af henni Jófríði.
Ég ættla að drösla þessum Ítölum í Bjarnarflag sýnist mér og leyfa þeim að kvikmynda gufu og drullu í nokkra daga. Er það ekki kjörið?

Nína Björg

18.2.2008 kl. 11:11

Takk fyrir gott að vita að Jófríður er komin á áfangastað hef verið að hugsa til hennar kveðja úr Lerkjó

Gunna

17.2.2008 kl. 22:52

Hróin hérna norðan heiða vilja láta ykkur vita að heimasætan okkar hún Jófríður er loksins komin til Chíle, það var langt og strangt ferðalag.
Hún flaug til New York á fimmtud. og átti svo að fara samdægurs til Chíle...en eitthvað klikkaði, bókunin hjá AFS eða ferðaskrifts. ekki rétt þannig að dúllan okkar þurfti að redda sér hóteli..það var svolítið panik í fyrstu en auðvitað reddaði hún sér, eins og hún á KYN til. En sem sagt hún er komin á leiðarenda, voða ánægð með fólkið og landið.
Bendi ykkur svo á heimasíðuna hennar hér vinstra megin á síðunni.
kveðja úr sveitinni.
Anna og Stebbi

Þórustaðahróin, Stebbi og Anna

15.2.2008 kl. 20:29

Já sælt veri fólkið. Ekki gott að heyra af frænkum ónýtum í bakinu, og margir búnir að liggja í flensu. Við höfum það alveg ljómandi gott, við Árni og Pjakkur. Erum á leið í fjallaferð á morgun, 4x4 Eyjafjarðardeild er að blóta þorrann í Dreka og er ætlunin að leggja af stað í fyrramálið. Pjakkur getur því miður ekki komið með okkur þar sem hundar eru víst ekki leyfðir í þessum skála, en hann er í góðum höndum í Mývatnssveitinni hjá vinafólki.
Árni er búinn að vera sveittur við að gera fjallajeppann ferðbúinn síðustu daga, og er enn að.
Kominn dálítill fiðringur í okkur þar sem þetta er fyrsti almennilegi fjallatúrinn þennan veturinn.
Kveðja

Hulda Jóns

15.2.2008 kl. 19:35

Komið þið sæl öll,mér fannst kominn tími til að kíkja á síðuna,er því betur ekki að drepast í bakinu eins og Ester,vona að þér batni fljótt,það er bara öxlin á mér sem er eitthvað reyna að vera í verkfalli en ég vil helst ekki hlusta á hana,svo það væri nú ekki amarlegt að vera í sólinni núna,fór í gær á ferðaskrifstofu og tók mér nokkra bæklinga til að skoða og láta mig dreyma um sól og hita,annars þarf ég ekki að kvarta yfir veðrinu erum búin að vera mun heppnari með það hér fyrir norðan,erum að skella okkur á spilahvöld svo það er best að hætta að bulla bestu kveðjur frá okkur öllum á Kvísló.

Jófríður

15.2.2008 kl. 14:51

Halló öll.....ég er að væblast heima að drepast í bakinu,(ekki elli,sjáið þið)og það er frekar leiðinlegt,maður getur nefnilega ekkert gert sem þyrfti þó svo sannarlega,svo ég er bara að kíkja á netið og svona.Finna skemmtilegar ferðasíður og skoða sumarhús þar sem er bara sól og blíða meðan lægðirnar gera manni lífið leitt hér á norðurhjara,....netið er náttúrlega bara snilld,.......væri ekki amalegt að baka sig á einhverri sólarströnd,það væri allavega gott fyrir bakið.Annars er nú lítið að frétta af mínum,Jóel að spóka sig í Austurríki á snjóbretti og Nína að fara að aðstoða Ítali við að gera almennilega þætti um Ísland fyrir Ítalska Ríkissjónvarpið,það eru nú kannski fréttir þegar ég hugsa um það.Verið þið nú dugleg elskurnar að skrifa hérna inn,mér finnst alltaf jafn gaman að lesa hvað þið eruð að bardúsa.
kveðja Ester

Ester

15.2.2008 kl. 12:36

Smá pikk frí.

Þar sem það er smá uppihald í afmælis tilkynningum ákvað ég að taka smá pikk frí og vona að það sé fyrirgefið. Kem inn sprækur fljótt. Skora á ættingjana að stunda smá pikk í gestabókina, það er svo gaman að sjá hvað ykkur lyggur á hjarta, ekki vera feimin að tjá ykkur.

Þröstur Kolbeins

14.2.2008 kl. 22:28

Hér hefur verið pestarbæli eins og á fleiri stöðum, allir fjölskyldumeðlimir hafa veikst á síðustu 2 vikum og Alexander m.a.s 2svar sinnum. En þetta er nú allt að koma til, förum vonandi í vinnu og skóla á morgun og svo eraftur komin helgi:D
Hafið það gott.
Kveðja frá Dalvík

Maja

14.2.2008 kl. 9:38

Kvef....

Auðvitað var ég með pest um helgina þegar Þorrablótið var, gat nú svo sem verið! En ég hefði nú ekki látið það stoppað mig, bruddi bara smá íbúfen en tók nú ekki margar dansveiflur eins og gefur að skilja :) En er nú öll að hressast en þessi kvefpest er nú ansi anstyggileg verð ég að segja!!.
Annars allt í glimmrandi góðu hérna í Reykjahverfinu. Var einmitt að hugsa hvað væri búið að vera dauft yfir mannskapnum í gestabókinni undanfarna daga, lítið um færslur, en klapp fyrir þeim sem eru duglegir að láta vita af sér og sínum, það er rosalega gaman :) En vonandi hafa allir það mjög gott.

Kveðja
Anna Júlía og Arnþór Haukur.

Anna Júlía

13.2.2008 kl. 23:13

Halló elskuleg bara að gá hvort sé ekki allt í lagi hjá fólkinu engin flensa í ykkur ég er í góðum gír reynið að hafa það huggulegt kveðja Gunna móða

gunna

10.2.2008 kl. 14:22

Heil og sæl öll saman,er bara að kvitta fyrir mig.Ekkert svo sem að frétta nema þetta skítaveður sem verið hefur undanfarna daga,ekki hundi út sigandi enda hefur maður bara heldið sig innan dyra.Fékk reyndar gesti að norðan á föstudag,Þröstur og svala skelltu sér suður yfir heiðar á árshátíð um helgina og náðu hingað rétt á undan þessu fárviðri sem var á föstudagskvöldið.Það var ljúft eins og venjulega að fá þau í heimsókn.Verið þið nú hress og kát elskurnar og passið ykkur á veðrinu,

kveðja Ester

Ester

7.2.2008 kl. 22:44

Hallur Hólm afmæli

Vil óska Halli Hólm (Stefáns og Sonju-syni) innilega til hamingju með afmælið sitt á morgun :)
Svo er maður að fara að taka til í trogið, Þorrablót hjá okkur Reykhverfungum á laugardagskvöldið, svo förum við skötuhjú einnig á Þorrablót hjá N1 annað kvöld! Nóg að gera sko, hafið það öll sem best! ;)

Frænkukveðja
Anna Júlía

Anna Júlía

7.2.2008 kl. 20:58

Sæl verið þið öll!Nú er brjálað veður í Garðabænum,en hjá ykkur?Annara þokkalegt að frétta vona bara að veðrið fari að skána.Eg sé að Olla er komin til Maju það verður örugglega gaman hjá þeim.Kveðja Ása

Ása

7.2.2008 kl. 0:00

Heilir og sælir ættingjar alltaf að kíkja og ákvað að kvitta .Hér er allt þokkalegt Olla kom til mömmu í morgun svo nú er heldur betur skrafað og hlegið .Kv Sissa

sissa

4.2.2008 kl. 9:36

Kæru ættingjar takk fyrir allar góðu kveðjurnar í gær þið eruð frábær og langbest kveðja Gunna móða

gunna

3.2.2008 kl. 17:23

Sæl öll sömul. Ég vildi bara kvitta fyrir innlitið. Ég kíki alltaf reglulega hér inn og hef rosalega gaman af. Það er svo gaman að sjá hversu margir fylgjast reglulega með þessari síðu. Það er nú ekki mikið að frétta héðan. Skólinn kominn á fullt aftur eftir áramótin svo það er nóg að gera. Við Mark fórum á mjög skemmtilega árshátíð í gær með skólafélögunum. Við fengum mjög góðan mat og hlustuðum á frábær tónlistaratriði. Kveðja Kolbrún

Kolbrún

3.2.2008 kl. 13:45

Sæi öll rétt svona láta vita að ég lifði af þorrablótið það gerði líka formaður fjárlaganemdar og er nú flogin suður eftir að hafa vísiterað í þingeyarsíslu og endað á blótinu í Reykjadal.

Snorri

2.2.2008 kl. 10:13

Kvitta fyrir mig og óska afmælisbörnum síðustu daga hjartanlega til hamingju með sína daga,....og auðvita Reykdælingum góðrar skemmtunar á þorrablótinu í kvöld.Góðar kveðjur til ykkar allra úr frostinu í Reykjavík, Ester

Ester

1.2.2008 kl. 22:59

Jæja gott fólk nú ætla eg að kvitta,,það er alltaf gaman að kíkja og fá fréttir af þorrablótunum spennandi að heyra frá Reykdælska blótinu sem mér skilst að verði á morgun.Heyrumst síðar kveðja Ása

Ása

1.2.2008 kl. 17:02

Halló góðu ættingar,,,,alltaf gaman að lesa hér! maður kemst bara í þorrablótsgírinn af öllu þessu þorrablótstali hér! Sem er mjög gott þar sem þorrablót verður haldið í Reykjadalnum góða um helgina! Þar verður eflaust margt um manninn og mikið helgið og amma Olla sér til þess að afkomendur og gestir þeirra hafi nóg að borða! Eigið góða helgi! kv úr endalausum snjó á akureyri!

Olla yngri

1.2.2008 kl. 9:17

Jæja þá er best að kvitta þar sem ég kíkti í gestabókina,alltaf gaman að því, við ungu hjóninn(eða kanski bara ung í anda)ætlum að skella okkur á þorrablót í Keldukverfið á laugardagshvöldið það verður örugglega mjög gaman að vanda,er að vísu að vinna um helgina en læt mig samt hafa það,enda ung í anda og það er það sem skiftir öllu máli,bið að heilsa öllum kveðja frá Kvísló.ps.takk Anna Júlía fyrir þetta hér á undan.ho,ho,ho.

Jófríður



clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 174
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 275154
Samtals gestir: 57898
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:41:38